36 ára dagbók

29.10.2007

~til hamingju með daginn til mín og Winonu Ryder - erum 36 ára bæði

 

~ég er ekkert að verða yngri en það er eiginlega ok

Það er ekkert sérstaklega á dagskránni fyrir næsta tug nema kannski þetta helst:

~að gera eitthvað skemmtilegt í kringum jólin, gæti orðið mjög skemmtilegt

~að pabba finnst að ég ætti jafnvel að vera með það á dagskrá að lofa mig fyrir þann tíma, er samt "lofa" ekki eiginlega bara notað í ritmáli í dag, ef það er þá notað einhvers staðar:)

~að komast að því af hverju karlmenn almennt kvarta yfir minnkandi hárvexti en ég sé ekki betur en að hið andstæða eigi við um nefhár

~að vita hvort ég verði orðinn betri í golfi eða jafnvel hættur, finnst einhvern veginn í dag að það sé alveg sixty-fifty hvort verður niðurstaðan

~klára þetta MA nám sem ég er í, finnst það reyndar ekkert sérlega áhugavert þessa dagana en ég er búinn að skjóta svo á Halla með 12 ára verkfræðimasterinn hans að ég þarf eiginlega að klára mitt

~fara kannski á Bifröst aðra helgina í röð, það eru fínustu leikir á laugardaginn sem ég horfi pottþétt á, spurning um að horfa á þá með Jóni Bjarna, ætla að melta það aðeins

~plana eitthvað meira en korter frammí tímann, það er í vinnslu, er allavega farinn að velta jólafríinu fyrir mér. Fullt af fólki er með eitthvað masterplan í gangi, ég hef verið full mikið að pæla í því að lífið er það sem gerist á leiðinni að svona plani, held að það sé kominn tími til að viðurkenna að það er ok að plana aðeins fram í tímann, reyndar líka ok að standa við svoleiðis plan, allavega að hluta

~gera eitthvað annað en læra og vinna, er reyndar aðeins byrjaður á þessu með pilates og síðan bolta á sunnudögum, af því tilefni ætla ég að kaupa eitthvað gott að borða á eftir og horfa síðan á tv þangað til að sofna, ef niðurhal væri löglegt væri ég kannski búinn að sækja slatta af 30 rock til að horfa á í kvöld

~lesa málsgreinina hér að ofan og velta því fyrir mér hvort Birna vinkona mín hafi rétt fyrir sér í athugasemdinni sem hún skrifaði hérna áðan Smile

~flytja til Hveragerðis, allavega flytja en ekki oftar en einu sinni á næstu 4(gúlp) árum, hef flutt sirka árlega síðustu ár og nenni ekki að flytja mikið oftar, Hveragerði er líka fínn staður hef ég heyrt

~muna að lífið er gott Smile, ég á þessa líka fínu fjölskyldu og afbragðs vinahóp, það er víst á endanum það sem skiptir máli.

Man ekki eftir fleiru í svipinn


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Takk fyrir heimsóknina um daginn:) Ég var reyndar smá ofurölvuð...

Frábært að vera á Bifröst!

Fríða (IP-tala skráð) 29.10.2007 kl. 11:09

2 Smámynd: Pétur Björn Jónsson

gaman að hitta þig aftur. jebbs, það er greinilega gaman á bifröst

Pétur Björn Jónsson, 29.10.2007 kl. 11:50

3 identicon

Til hamingu með daginn afmælisbarn.

Vonandi áttu eftir að njóta dagsins til hins ítrasta, ég er sammála pabba þínum  mér finnst þú eigir að festa ráð þitt og eiga fullt af börnum minime virðist nú vera vel lukkaður enda ekki við öðru að búast. Það vantar allavega klárlega að ala upp almennilega knattspyrnumenn fyrir landsliðið ;-) ég á bara stelpur þannig að ...En kannski óþarfi að halda að þeim Liverpool

Hjartans kveðjur, Birna

Birna (IP-tala skráð) 29.10.2007 kl. 12:12

4 Smámynd: Pétur Björn Jónsson

takk fyrir það :)

minime er allavega á góðri leið í landsliðið, skortir í það minnsta ekki áhugann. Þú manst að þú þarft að vanda þig til að eignast stráka ;)

Pétur Björn Jónsson, 29.10.2007 kl. 12:34

5 identicon

Þú verður bara að senda okkur hjónum uppskriftina :-)

Birna (IP-tala skráð) 29.10.2007 kl. 14:36

6 identicon

Til hamingju með daginn :) 50% líkur á að ég geti bætt við í þetta landslið. Nú ef ekki, þá bara upp með kvennaboltann ;)

Lovísa (IP-tala skráð) 29.10.2007 kl. 15:42

7 Smámynd: Pétur Björn Jónsson

Takk :) jamms það vantar samt held ég meira í karlaliðið

Pétur Björn Jónsson, 29.10.2007 kl. 15:50

8 identicon

Til hamingju með daginn gamli....

Ella Þóra (IP-tala skráð) 29.10.2007 kl. 20:03

9 Smámynd: Pétur Björn Jónsson

takk unga/gamla framsóknarkona

Pétur Björn Jónsson, 29.10.2007 kl. 20:06

10 identicon

Jæja gamli, verð nú eiginlega bara að henda því á þig, vissi ekki að það væri svona langt síðan ég hefði séð þig 

Innilega til hamingju með daginn. Vonandi hefurðu það gott nú og alltaf. Þú veist að koníaksflaskan bíður ennþá hjá múttu þegar námið er afstaðið!! Annars ertu alltaf velkominn í fjörðinn fagra.

Kv. Lisa og lítil nýfædd prinsessa

Lísa Ólafsfjarðarskvísa (IP-tala skráð) 29.10.2007 kl. 20:13

11 Smámynd: Pétur Björn Jónsson

hehe, hæbbs. til hamingju með litlu prinsessuna, ég hef eitthvað misskilið koníakið, hélt að það væri eftir grunnnámið, ok, ég mæti klárlega í fjörðinn fagra í koníak ef ég klára einhvern tímann þetta MA nám

Pétur Björn Jónsson, 29.10.2007 kl. 20:17

12 identicon

Já djók! Til hamingju með daginn!!

Fríða (IP-tala skráð) 29.10.2007 kl. 20:28

13 identicon

Til hamingju með daginn rúsínurassgat.

Mundu svo bara að -life is what happens when you are busy making other plans- Svo slakaðu bara á í plönunum og njóttu líðandi stundar.. hehehe

Hafðu það gott drengurinn

Íris Dögg (Marteins) (IP-tala skráð) 29.10.2007 kl. 21:24

14 Smámynd: Pétur Björn Jónsson

takk báðar tvær

Pétur Björn Jónsson, 29.10.2007 kl. 21:31

15 identicon

Til hamingju minn kæri. Frábært nám sem við erum í, alveg snilld. Leiðinn er örugglega vegna þess að þú hefur of mikið að gera...

Hafðu það gott gamli minn...

Fjóla (IP-tala skráð) 30.10.2007 kl. 03:50

16 Smámynd: Pétur Björn Jónsson

takk frú fjóla, jamms það er sennilega ástæðan, ég mjatla þetta áfram

Pétur Björn Jónsson, 30.10.2007 kl. 10:09

17 Smámynd: Pétur Björn Jónsson

takk vinur minn, ég hef orðið var við það hjá mér að þetta fer allt til fj... með aldrinum

Pétur Björn Jónsson, 30.10.2007 kl. 12:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband