Leikjadagbók Man City-Liverpool 30.12.2007

Naustabryggja 29, sérlegur aðstoðarbloggari er Aron Freyr.

16.10 ég er heldur seinn að byrja þetta, var að koma úr bolta, það eru búnar 9 mín.

16.11 Liðið er Reina, Finnan, Arbeloa, Carra, Aurelio, Yossi, Gerri, Mascherano, Harry, Kuyt og hinn gullfallegi Fernando Torres

16.12 Er ekki heldur slappt að vera farinn að stirðna upp 10 mínútum eftir að ég klára boltann, venjulega verður maður ekki stirður fyrr en eftir svona 3-4 tíma þegar maður hefur setið aðeins kyrr.

16.14 Yossi að reyna smá laumustungu á Torres sem klikkaði, það er annars óttalegt bras á Arbeloa og Carra þarna saman í hafsentinum, ég var að vonast eftir Hobbs en so be it 

16.16 Joe Hart er í markinu hjá City, ég veit ekki almennilega á hvað hárið á honum minnir mig, einhvers konar lambagæra á kollinum á honum, dáldið spes

16.17 Rafa er brosmildur eins og vanalega

16.18 Petrov klobbaði Gerra hressilega, reyndar missti síðan af boltanum þannig að það telur ekki

16.19 Harry með smá run, gott að hann fái dáldið boltann, það er erfitt að gera mikið sem kantari ef þú færð ekki boltann, svona þegar ég hugsa um það þá á það við um flestar stöður

16.20 Gummi er einn að lýsa, einnhver þarf að rölta til hans og segja honum að Mascherano og Kuyt eru ekki líkir, Kuyt er þessi ljóshærði 

16.22 Tuttugu búnar, eggið ennþá, leikurinn er þokkalegu jafnvægi, Harry með afar skemmtilega týpu af ýtaöðrummeginhlaupahinummegintrixi, fyrirgjöfin hins vegar svona la la

16.24 Arbeloa með aðra lélega hreinsun, getum alveg eins verið með Hobbs ef þetta á að vera svona, hann er þó allavega stór

16.27 Harry með skot sem Hart varði á endanum, Kuyt var rétt áður í skotséns sem Micah komst fyrir

16.29 Ágætis moment núna hjá City, Carra komst fyrir skot, ekki alveg fyrsta skipti sem sá ágæti maður þvælist fyrir, það er eiginlega sérsviðið hans, dáldið spes að þykja góður fótboltamaður og það sem þú gerir best er að þvælast fyrir

16.31 Kuyt örlítið seinn að afgreiða færi, Liver fékk horn, hefði heldur viljað mark

16.33 Aurelio með ágætis skot af svona 35 metrum eftir hornið, rétt framhjá, Hart ryendi einhvers konar magaskutlu á eftir þeim bolta, Liver aftur horn núna

16.33 Boltinn barst út eftir hornið, Aurelio með ágætis skot og Liver fékk horn, þetta er að verða eitthvað þema, nei annars, boltinn til Reina eftir þetta horn, það þýðir yfirleitt að hornið var ekkert spes, Torres reyndi hjólhest eftir síðasta klafs, skulum bara segja að hún hafi ekki tekist almennilega

16.37 Auki af 35 metrum hjá City, fór af Richards afturfyrir, útspark. Micah væri velkominn í Liver

16.40 Smá bögg á Liver núna, allar sendingar í magahæð, veit yfirleitt ekki á gott

16.41 Yossi að reyna að sóla fjóra í staðinn fyrir að renna á Kuyt, þoli ekki svoleiðis gáfupinnaspilamennsku, Torres fékk annars skoppandi bolta á sig og reyndi látannfaraoghlaupatrix, boltinn var hins vegar aðeins og laus þannig að Dunne náði að stoppa það með vinstri mjöðm, hann er dáldið þannig varnarmaður

16.45 þrjár eða fjórar eftir, lítið að gerast síðustu mínútur, í þeim töluðu orðum fékk Yossi eðalskotfæri beint fyrir utan teig, ákvað hins vegar að reyna renniskot framhjá, dáldið spes eða eiginlega ekkert spes

16.48 Harry sólaði Ireland en ákvað að gefa ekki fyrir, sólaði hann þá aftur og gaf ekki fyrir, Ireland akvað þá að taka bara af honum boltann, dapurt hjá Harry.

16.49 Kominn hálfleikur, 0-0 og ekki mikið af færum, Spái því að þetta endi 3-1 fyrir Liver, þeir eru búnir að vera betri en ekki mikið

17.05 Seinni byrjaður, óbreytt lið, Torres fékk tvö færi á fyrstu mínútunni, ekkert mark. Komst einhvern veginn ekki alveg clean í færin en lofar góðu

17.09 Micah með stökktæklingu á Torres, auki rétt fyrir utan teig en slakasti dómari Englands, Uriah Rennie spjaldaði ekki. Gerri skaut framhjá út aukanum, svona ok auki en samt ekki

17.10 Yossi með annað fullkomlega óásættanlegt rugl, var á run-i með boltann og Kuyt var alveg frír fyrir framan hann, Yossi hélt hins vegar áfram með boltann og missti hann svona sekúndu seinna, algjört crap hjá Yossi og hann þarf eiginlega að fara útaf eftir þetta, hann er greinilega að hugsa um eitthvað annað en fótbolta

17.16 þokkalegt break hjá Liver, Harry kom með boltann fyrir í fyrsta, sem er yfirleitt betra, Dunne hreinsaði í horn, Liver getur eiginlega hætt að taka þessi horn, Crouch og Hyyia ekki með, veit ekki alveg hver á að skalla þetta

17.18 Gott run hjá Gerra, Yossimeð skot sem Hart varði yfir, hmm ég hélt að Yossi væri farinn útaf, nei annars, ég vonaði það

17.20 Stephen Ireland farinn útaf, það eru búnar sextíu þannig að þá eru um 7 í skiptingu hjá Rafa

17.22 Itandje,Voronin, Riise, Babel, Alonso á bekknum, gleymdi að tékka á því áðan, væri fínt að fá Babel inná fyrir Yossi

17.24 Ætli það séu engir kjúklingar sem geta verið á bekknum í staðinn fyrir Voronin, hann er ekkert spes og er sennilega búinn að missa sjálfstraustið líka, hefur sennilega séð vídjó af sjálfum sér í leik

17.26 hmm, setíuogsjö búnar og ekkert ber á skiptingu hjá Liver, jæja, það verður þá bara að vera á 74. mínútu í staðinn

17.28 Enn eitt hornið í rugl hjá Liver, Elano útaf fyrir Bianchi, Rafa er sennilega svona ánægður með alla hjá sér, reyndar hefur Liver verið að spila vel en ekki svona vel

17.30 Yossi með sendingu á Joe Hart, verst að hann er markmaður hjá City og þetta átti að vera skot, Yossi drífur sem sagt varla frá vítateig, tuttugu eftir

17.33 Babel á leiðinni inná, merkilegt nokk á 74. mínútu, það er ekki alveg nýtt, ætli þetta verði ekki fyrir Harry, vona samt að það verði fyrir Yossi, jebbs, það er Hary sem fer útaf, nú höfum við eiginlega engan til að setja inná fyrir Yossi, og þó, kannski Alonso, hann er svona klassískur kantari Errm 

17.36 Aurelio með afbragðs 15 metra hæl, er nefnilega Brassi skiljiði, Gerri með skot framhjá

17.38 Torres innfyrir, Dunne braut á honum  en lélegasti dómari Englands Uriah Rennie dæmdi ekki einu sinni á það, dæmdi síðan á Arbeloa fyrir minna. Þurfti svo að tala við Arbeloa og Bianchi þrátt fyrir að það væri ekkert í gangi á milli þeirra, hann hefur sennilega vantað athygli, afleitur dómari enda sá eini sem hefur veirð felldur niður um deild, féll síðan á þrekprófi líka, ef hann væri sjónvarpsmaður þá væri hann Gaupi, ef hann væri tónlistarmaður þá væri hann William Hung

17.44 og þá spjaldaði hann Torres fyrir lítið.

17.45 Babel með gott run, gaf boltann einu skrefi of seint, Liver fékk horn sem lítið varð úr, City reddaði síðan á línu mínútu seinna eftir eitthvað skallaklafs. Gerri síðan með góðan bolta fyrir en City komst fyrir skotið og Liver fékk horn sem merkilegt nokk varð lítið úr

17.48 City með auka en síðan dæmt á þá inní Liverteignum, var verið að endursýna þegar Dunne henti sér fyrir skotið áðan, vel gert hjá honum

17.50 þremur bætt við en þetta endar víst 0-0, þarf að nýta færin sem maður fær til að vinna

17.51 Yossi tókst að vera einu sinni enn of lengi með boltann, gat skotið eða gefið á Babel, ákvað hins vegar að hlaupa á varnarmann, kannski er það bara ég en ég man ekki eftir því að það hafi tekist að hlaupa í gegnum varnarmann, ever

17.54 Gerpið búið að flauta af, endaði 0-0, líklega sanngjarnt þó Liver hafi verið betri


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband