Og þá voru þrír

tímar þangað til að ég fer í vinnu. Er allavega búinn með fyrstu seríuna af so you think you can dance. Alveg ágætt. Veit ekki alveg hvernig það verður að horfa á næstu tvær en við sjáum til, get þá allavega hent inn einum og einum þætti af the wire með einhverju millibili. Einn galli við þessa þætti er samt að maður þarf að horfa á þá, þ.e. með idol er einfalt að vera á netinu, horfa með öðru og hlusta. Erfiðara með þetta.

anywho.... minime verður hjá mér um helgina, grunar einhvern veginn að það verði fótbolti, æfingarnar byrjaðar aftur og slatti af leikjum um helgina sem eðlilega þarf að horfa á. ég veit ekki hvort ég er orðinn áttræður eða er bakari, allavega er ég farinn að sofna fyrir 9 og vakna fyrir 5, reyndar ekki alvitlaust það er einhver ró yfir öllu á þessum tíma sólarhringsins.

Spes tími ársins annars, svona ekki ósvipað september, samfélagið að fara í gang aftur, hlutabréf að lækka, skólar að byrja og svoleiðis. Skemmtilegt vor framundan, Eva og co að koma í næstu viku, er að spá í Sverige í sumar, að því gefnu að ég flytji ekki til Hveragerðis, sjáum hvernig það fer

það gæti farið endanlega með reppið en kveð að sinni dúddanum sem vann season 1


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Lásum bloggið um náunga kærleikan... og vorum að spá hvort þú værir en þá á bílnum Trausta ? Var spegilinn í lagi þegar þú rannst afturábak

P.S. Hefur Boris látið sjá sig í heimilishjálpinni.

Ein spurning hérna meginn.. Er hægt að fá þig sem veislustjóra 1.júní?

Þorsteinn Sigursveins,Heiðar Gunn, Hlynur , Helga + ein tóm vodkaflaska (IP-tala skráð) 10.1.2008 kl. 23:21

2 identicon

Kveðja úr firðinum fagra !

Þorsteinn Sigursveins,Heiðar Gunn, Hlynur , Helga + tvær tómar vodkaflaska (IP-tala skráð) 10.1.2008 kl. 23:22

3 identicon

Frá Grunnskóla ÓlafsfjarðarKennara / leiðbeinanda  á unglingastig vantar sem fyrst í hlutastarf. Um er að ræða samkennslu í 9.-10. bekk þar sem tveir kennarar hafa samvinnu um kennslu. Fögin sem um ræðir eru enska, danska, samfélagsfræði og lífsleikni.



Frekari upplýsingar fást  hjá: skólastjóra eða aðstoðarskólastjóra Grunnskóla Ólafsfjarðar.



Þórgunni R Vigfúsdóttur s. 464-9220 netfang: threyk@olf.is skólastjóri



J.Vilhelmínu Héðinsdóttur s.464-9230 netfang: vhedins@ismennt.is aðstoðarskólastjóri

3 tóma vodkaflaskan (IP-tala skráð) 10.1.2008 kl. 23:41

4 Smámynd: Pétur Björn Jónsson

hehe, nei Trausti er gleymdur og grafinn, er hins vegar á forláta escort ´96.

veit ekki með 1. júní, þarf að athuga það þegar nær dregur, útiloka það svo sem ekki

Pétur Björn Jónsson, 11.1.2008 kl. 12:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband