Færsluflokkur: Bloggar

K20

erum flutt á Kambsveg, ég búinn að bera og Steinunn að koma okkur fyrir. Býsna kúl íbúð reyndar.

Veðurspá hörmung fyrir fimmtudag og föstudag þannig að ekki fer ég í golf þá. VALITOR-dagurinn á laugardag, ætti að verða skemmtilegt.

Er kominn með tvö ný pör af golfskóm, 100 bolta og tvær nýjar kylfur, pútter og 24°blendingur. Allt klárt sem sagt.


Ný/gömul stjórn

verður mynduð fljótlega eftir helgi miðað við kannanir.

Samfylking og VG verða áfram í stjórn og þá er ég að velta fyrir mér hvað á eiginlega að gera.

VG ætlar ekki í evrópusamningaviðræður og Samfylking vill álver.

Þetta er þá í raun Samfylking án ESB og VG með stóriðju. Það eru spes flokkar.

Vona að þetta verði ekki svona en er hræddur um að við fljótum sofandi að feigðarósi.

Næstu kosningar þá væntanlega eftir 12-18 mánuði. Vonandi gerist eitthvað af viti þá.


Kosningar

á laugardag og ég er búinn að velta því fyrir mér um hvað við eigum að kjósa. Hvað þá hverja við eigum að kjósa. Hef orðið vonsvikinn, pirraður, vonlítill, reiður, fúll, dapur, brjálaður, yfirvegaður og umfram allt hugsi.

Komst að því að kosningarnar snúast fyrir mig bara um tvennt, að sótt verði um aðild að ESB og þjóðin fái síðan að ákveða hvort við við förum síðan þangað inn. Hitt er að einhverjar alvöru aðgerðir hefjist strax til að hjálpa heimilinum.

Þetta rugl með greiðsluaðlögun, einstaklingsbundnar aðgerðir og slíkt er ekki nærri því nóg. Landið verður farið endanlega í rugl ef ekkert drastískt er gert á næstu mánuðum.

Sú stjórn sem nú situr lofaði slatta en gerði lítið, var reyndar ánægður með að þau losuðu okkur við Davíð úr Seðlabankanum, það var löngu tímabært. Úttekt viðbótarlífeyrissparnaðar var fínt útspil en þessi skjaldborg um heimilin varð ekkert meira en tjaldborg eins og einhverjir ágætir gárungar sögðu.

Sjálfstæðisflokkurinn kom ekki til greina, ekki síst eftir þetta rugl með Geir, Guðlaug og styrkina. Hefði sennilega ekki kosið þá hvort eð er. Vintri grænir vilja ekki ESB og ekki hafa þeir komið með neinar aðgerðir til að forða heimilum frá gjaldþrotum.

Endaði því á að gleðja Ellu Þóru vinkonu mína rétt áðan, sagði henni að eini flokkurinn sem ætlar að sækja um aðild að ESB og láta þjóðina kjósa um það ásamt því að koma með einhverja leið til að redda heimilunum fái mitt atkvæði. Ætla að kjósa Framsókn, x-b sem sagt.


einn í útvíkkun

var hjá tannlækni í byrjun vikunnar, þurfti að láta rífa úr tvo endajaxla. Það gekk býsna greiðlega fyrir sig, var búið á ca 45 mínútum, borgaði 18.000 fyrir það. Ekki alslæmt tímakaup sem tannlæknar skammta sér.

Allavega þá gerði ég ráð fyrir að þetta yrði ekki of mikið bögg eftir það. Fór eitthvað að bólgna á mánudagskvöld og sérstaklega á þriðjudag. Á þriðjudagskvöld var ég kominn með hita og var stokkbólginn í framan.

Fór aftur til tannlæknisins á miðvikudagsmorgun til að láta skoða þetta. Hún sagði að allt væri að gróa vel en það væri komin sýking og setti mig á einhver sýklalyf, átti að gefa því tvo daga til að lagast. Er búinn að taka þau núna í tæpa tvo daga og hef skánað lítið.

Get ekki opnað munninn mikið, cirka þannig að ég kem einum fingri á milli tannanna, sem sagt einn í útvíkkun. Ætla að gefa þessu daginn til að skána, annars er ég farinn til einhvers alvöru læknis til að láta tékka á þessu.

Merkilegt kommnt annars sem kom fram hja tannsa á miðvikudaginn þegar ég var kominn þangað með sýkinguna, hún sagðist hafa heyrt af því að fólk hefði þurft að fara á spítala og fá sýklalyf í æð eftir svona.

Hún sagði þetta svona eiginlega í óspurðum fréttum þegar ég var að fara eftir að hún var búin að láta mig hafa lyfseðilinn, fannst það dáldið spes komment.


Ég held

að mér hafi tekist að jinxa þetta fyrir Villa.

Jafntefli í gær í leik þar sem ég skil ekki ennþá hvernig þeir skoruðu ekki. Það vantaði reyndar Ashley Young. Hann hefur líklega verið maður tímabilsins til þessa. Ronni hefur ekki verið jafn fáránlega góður og í fyrra enda líklega erfitt að toppa það. Hann skorar samt slatta.

Gerri hefur verið býsna góður en með Torres dáldið frá toppstandi þá gengur þetta ekki upp í Rafaheimi. Gerri og Torres þurfa sennilega að skora 40-50 mörk í deildinni til að Liver eigi séns því það fer enginn annar inní teig.

Stórleikurinn annars klukkan 4, það er síðasti séns til að taka annað sætið.

Vona að nýtti ríkisstjórn takist það sem hinni fyrri tókst ekki, að tryggja framtíð landsins með því að forða fjöldagjaldþrotum hjá heimilum og fyrirtækjum. Ef það tekst fá þau allavega mitt atkvæði í vor.


Idol

er held ég gæfulegra en Liver og stjórnmálin í dag.

Þetta er Promo fyrir season 8


Framsókn

ég vissi ekki að framsókn væri í þessari nýju stjórn???

Eru það augljóslega víst þeir skipta sér af málefnasamningi.

En að því sem skiptir máli.

Rafa er að reykja það sama og venjulega, tímabilið ekkert öðruvísi nema fyrir þá tvo leiki sem þeir unnu á móti ManU og Chelski. Það er kannski planið, reyna að grísa þetta bakdyraleiðina.

Fyrir þá sem fylgjast með fótbolta í Rafalausum heim þá er staðan svona, ManU eru bestir en Villa er eina eina liðið sem getur stoppað þá.

Liver mega þakka fyrir að enda í fjórða sæti.

Já, alveg rétt, ég var að pæla í stjórn. Hvað ef sjálfstæðismenn tækju upp á því að vinna með nýju stjórninni?

Af hverju þurfa allir stjórnmálamenn að vera á móti öllu sem gerist í hinum flokkunum?

Ég allavega kýs aldrei aftur sjálfstæðismenn á meðan einhver núverandi þingmanna er í framboði. Finnst reyndar að þeir sem eru þar í dag ættu að taka sér dag og hætta að væla yfir verðandi stjórn og fara sjálfir yfir frammistöðu sjálfstæðismanna síðustu árin.

Já og skammast sín í kjölfarið.

Já og skammast sín aftur.

Staðan í samfélaginu er allavega ekki gæfuleg eftir valdatíð Valhallarfólksins


mbl.is Telur forsendur fyrir stjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bora(t) til sölu

Eða réttara sagt dökkblár VW Bora 2001, keyrður 67000.

Keypti hann í vor á 780.000 en hef áhuga á að selja hann á 550.000.

Ef einhver hinna 8 dygga lesenda síðunnar minnar(sem lítið er skrifað á) hefur áhuga á að kaupa boratinn þá er númerið mitt 8202056.


Eyjan/Egill

Skoða Eyjuna svona 60 sinnum á dag, svona letingjafjölmiðill, þ.e. þeir safna fréttum saman fyrir mann. Kannski væri nær að tala um tímasparnað en leti, whatever.. góður vefur allavega.

Ég var hundfúll útí Egil Helgason ekki alls fyrir löngu þegar hann klúðraði viðtali við Jón Ásgeir hressilega. Egill hefur hins vegar verið til fyrirmyndar undanfarið, góður penni og þátturinn góður.

Það er líklega nóg af fólki að tjá sig um kreppuna en best að ég geri það líka.

-sérkennilegt að Geir neiti að skipta um Seðlabankastjórn, þó ekki væri nema til að skapa sér vinnufrið fyrir þau verkefni sem hann þarf að vinna. Það má vel vera að Davíð sé frábær Seðlabankastjóri, þó ég reyndar efist um það. Hann nýtur ekki trausts og Geir hefur miklu betra við tímann að gera en að svara oft á dag sömu spurningunum um Davíð vin sinn.

-Jóhanna finnst manni koma best út af ráðherrunum, ég hef það í það minnsta trú á því að hún vinni af heilindum og krafti. Hrifinn af hugmyndinni hennar um að leyfa fólki að leysa út séreignasparnað. Það er töluvert gæfulegra fyrir fólk að geta notað þá peninga til að greiða niður yfirdrætti, kortaskuldir eða lán sem bera miklu hærri vexti en fólk fær á sparnaðinn. Reyndar merkilegt að sjá þennan Ingólf frá spara.is setja sig upp á móti því, hann talar mikið fyrir því að greiða niður skuldir en þetta vildi hann ekki. Sennilega hefur hann áhyggjur af því að eitthvað fari í neyslu í stað þess að borga niður skuldir. Það má vel vera en ég held að við verðum að treysta því að fólk átti sig á ástandinu.

- Veit ekki hvað VG voru að spá að bera fram þessa vantrauststillögu og hvað þá Steingrímur að berja/pikka/banka í Geir. Það hjálpar ekkert að kjósa núna, hefði verið nær að gera þetta í febrúar eða mars og pressa þannig á kosningar í vor. Það þarf augljóslega að kjósa en ekki tímabært fyrr en búið er að slökkva bálið.

- Reyndar þarf að kjósa strax ef Ingibjörg og Geir ætla að halda áfram þessu moði sínu, þ.e. láta allt sama fólkið stjórna bönkunum á meðan þeir eru að rísa á fætur aftur. Innan bankanna var greinilega töluverð einkavinavæðing og afar vafasamt að láta sama fólkið vera þarna áfram í stjórnendastöðum. Ef Geir/Ingibjörg hins vegar skipta um í Seðlabankanum og FME ásamt því að skipta út viðskipta- og fjármálaráðherrunum þá fá þau í það minnsta vinnufrið. Það eru miklu mikilvægari verkefni framundan en svo að það skipti máli hvort einhver Egó verði særð.

-Eðlilega þarf að skipta út gjaldmiðlinum, hann er algjört sprell, mér er eiginlega slétt sama hvor tþeir festi hann við annan gjaldmiðil eða skipti einhliða út strax, þarf allavega að gerast mjög fljótlega.

-Það er hellingur af góðu fólki utan bankanna sem getur tekið að sér að stjórna þeim. Innan bankanna er síðan fullt af góðu fólki sem er tilbúið að vinna að því að byggja þá aftur upp.

-Ef sjávarútvegurinn skuldar 500 milljarða eins og einhvers staðar kom fram þá er lítið mál að taka kvóta aftur til ríkisins fyrir þennan pening og leigja síðan kvótann út aftur. Mér er sama hvað Siggi Kári vinur minn segir um þjóðareign, ríkið getur víst átt eitthvað , kölluð það bara Leigufisk ohf og þá ætti það að vera klárt.

-Það væri fínt að vita hvað stjórnin ætlar að gera, þó ekki væri nema óljóst plan um hvað gera á vegna fasteignaeigenda. Bjarni Ben saðgi í viðtali fyrir stuttu að 18% húsnæðislána væru í erlendri mynt, það eru þá svona 20.000 heimili sem eru gjaldþrota fyrir utan allan bílaflotann sem er að ég held að mestu leyti með erlend lán.

Kjartan vinur minn sagði einu sinni að hann læsi gjarnan bloggið mitt og ekki síst af því að ég væri lítið að kommenta um pólitík eða annað sem allir aðrir blogga um, vona að hann gefi því séns þó ég hafi laumað inn einni færslu hérna um þetta. Hef einhvern veginn ekki verið í skapi til að skrifa leikjadagbækur þetta haustið. Ætla meira að segja að sleppa Liverleiknum á eftir til að fara í Ikea, þið lofið að segja engum, það færi alveg með reppið


Bush kallinn

skondið


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband