Færsluflokkur: Minnispunktar

Minnispunktar 7.4.2008

Í dag: 

var ég að vinna frá 9-16

er SGÓ væntanlegur frá Barcelona

kom Kolla heim frá Svíþjóð

var afmæli í vinnunni, en engar afmæliskökur, svindl Smile

er ég að bíða eftir Liverpool-Arsenal leiknum á morgun, horfi á hann með Sverka nema að hann þurfi að laga loftið í sumarbústaðnum aftur

er ég eirðarlaus en spakur, hvernig það svo sem er hægt

er ég að pæla í að fara snemma að sofa, fer síðan eðlilega ekki eftir því, ef niðurhal væri löglegt þá tækist mér eflaust að finna eitthvað stöff til að horfa á

er ég ennþá slappur eftir boltann fyrir 10 dögum, er orðinn gamall held ég

er ég spenntur fyrir Liver-Arsenal, var ég búinn að minnast á það?

er ég að pæla í því hvernig það geta verið 15% stýrivextir hjá Seðlabankanum-spes land sem við búum í, þurfum við að sækja um úrsögn úr fyrsta heiminum eða er það bara afgreitt fyrir okkur

er ég með allt hreint hérna eftir massa þvott í gær, sóun að eyða degi í það, hefði getað psilað goldminer eða eitthvað í staðinn

gleymdi ég að gera athugasemd hjá póstinum vegna boðskortsins sem týndist fyrir helgi

væri ég að fara að horfa á Closer ef niðurhal væri löglegt


Minnispunktar fyrir 24.1.2008

~Horfa ekki á handboltaleik sem ég held að sé í dag-ég er óhappa, hef sleppt tveimur leikjum, slóvakíu- og ungverjaleikjunum.

~Leggja bílnum ekki í brekku í hálku, var við það að festa mig aftur í gær, nú eða að kaupa ný dekk

~Tékka á því hvenær besti tíminn er til að flytja í Hveragerði

~finna út hversu margir tímar hafa farið í að horfa á sjónvarpið síðustu 12 mánuði

~finna út hvenær KR spilar um helgina, fara með Aron á allavega einn þeirra

~kynna mér leikmannahóp Havant&Waterlooville, stórleikur um helgina, betra að þekkja til þeirra fyrir leikjadagbókina

~Sjá hort það er einhver nothæf sjónvarpssería sem ég á eftir að sjá, leita það stöff þá uppi, er að verða búinn með The Wire, sem vel á minnst er á topp 10 yfir sjónvarpseríur sem ég hef séð og þær eru ekki fáar.


Minnispunktar fyrir 28.11.2007

- tékka á því hvort hægt sé að fá öflugra kommentakerfi fyrir bloggið, það virðast svo margir hafa verið að svara spurningalistanum í einu að ekkert komment komst til skila

- fókusa á Liver leikinn, fjöldi mínútna sem fer í að hugsa um leikinn hefur bein áhrif á úrslit hans.

- velta því aðeins fyrir mér hvað maður ætti að gera við tímann ef maður hefði reglulega notað torrent.is og þvi hefði síðan verið lokað

- opna bók, ein blaðsíða í einu, sjá hvað gerist.

- Pilates kl 16.45

- áætlunarfundur allan daginn, ætti að verða forvitnilegt

- ganga frá eins og einni ráðningu


Minnispunktar 26.11.2007

- næst þegar leggja á bílnum í miðbænum, muna þá að loka glugganum, sérstaklega um hávetur þegar von er á snjókomu, snjór í bílstjórasæti er ekkert spes

- ef niðurhal væri löglegt þyrfti að muna eftir því að setja það af stað áður en farið er í vinnuna, eftir að torrent.is lokaði þá tæki það leiðinlega langan tíma að ná í stöff

- Pilates í dag kl 16.45, nýir tímar, mánudagar og miðvikudagar


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband