Færsluflokkur: Sjónvarp

Avatar, Ella og jól

Merkilegt að kveikja á rúv og finna eitthvað áhugavert, erum að horfa á söngdagskrá í tilefni af afmæli Ellu Fitzgerald, kveiktum akkúrat þegar þátturinn var a byrja.

Fórum á Avatar áðan, alvöru bíómynd. Fíla svona 3D myndir, sýnir hvað hægt er að gera ef menn hafa nóg af cash money og nægan tíma.

Hlakka til að verða svangur allan janúar eftir jólasteikurnar, búin að vera afar góð jól.

Já og Idol byrjar aftur í janúar, good times


Saga Bíó

var fram að þessu versta nafngift sem ég man eftir.

Þetta eru hins vegar algjörlega vonlaus nöfn. Hver sat á fundinum þegar það var ákveðið að það væri góð hugmynd að vera með stöð sem heitir stöð tvö sport tvö?

Hvernig hljómar þá stöð tvö sport tvö extra tvö

Vini pabba fannst nýlega vera heldur vegið að sér, talaði um að hann kynni ekki við að vera tekinn í stöð tvö.


mbl.is Nafnabreytingar á sjónvarpsstöðvum 365 miðla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hjälp

er sænsk sjónvarpssería sem Eva systir gaf mér þegar hún kom í heimsókn um daginn. Er búinn að vera að spara hana aðeins. Byrjaði sem sagt áðan og er búinn með 4 þætti, snilldarþættir eins og reyndar margir sænskir sjónvarpsþættir.

Þetta eru sketsjar um nokkrar týpur sem leita til sálfræðings. Reyndar var ég næstum hættur áðan því systir sálfræðingsins fer svo mikið í taugarnar á mér en Felix Herngren reddar þessu, hann leikur homma sem er bara hrifinn af stelpum.

Felix þennan sá ég fyrst í hlutverki Papi Raul

Þetta er á sænsku


Ef niðurhal væri löglegt

þá væri ég að byrja á seríu 1 af so you think you can dance eftir ábendingu frá Maju vinkonu minni. Ekki það að ég hafi ekki vitað af þáttunum en það hafði eiginlega aldrei hvarflað að mér að sækja þá, meðmæli frá Maju er hins vegar nóg fyrir mig.

Hún veit enda að ég fíla Idol og þetta er kannski eitthvað í áttina.

Á allt öðrum nótum þá er ég mögulega daprari dansari en söngvari, það ætti að segja þeim nokkuð sem hafa farið í útilegu með mér Smile


Ef niðurhal væri löglegt

væri ég búinn með tvær fyrstu seríurnar af The Wire. Eðal þættir, byrja dáldið rólega en ef maður gefur fyrstu þáttunum séns þá lifnar yfir þeim. Það eru held ég HBO þættir þannig að það er meira sýnt en maður á að venjast í bandarísku sjónvarpi. Hver sería er sjálfstæð þó aðalpersónurnar, sem reyndar eru svona 10, séu þær sömu. Margt verra hægt að gera í verkfalli bandarískra handritshöfunda en að tékka á þessum.

Dagurinn í gær var annars dáldið sérstakur, bæði í vinnunni og utan hennar. Þegar allt kemur til alls varð hann samt eins góður og hann gat orðið. Takk fyrir það.

Kveð alla, nær og fjær, að sinni með smá vídjói úr the wire


Allt í lagi, ég skal spyrja

- er Eva María okkar tíma Bryndís Schram? sá þáttinn hennar í gær, afar aðlaðandi kona og með skemmtilegan viðtalsstíl

- hvaða týpa var þessi endir á Næturvaktinni eiginlega?

- meikuðu þær næstum sens femínistarnir í gær af því að þær sögðu eiginlega ekkert í Silfri Egils?

og

- er það ekki frekar sérstakt þegar konur sem maður ræðir við um femínistana frægu eru pirraðri útí þær en karlar sem maður ræðir við um þessa sömu femínista?

- hvað viljið þið í jólagjöf?

- af hverju er ekki besta jólalagið (þegar jólin koma) til á youtube?


Trúður í kvöld kl 21.30 á Rúv

klovn3

ekki missa af uppátækjum þeirra félaga


RÚV kl 21.30 í kvöld

Annar þátturinn með snillingunum í Klovn, bara lúðar sem missa af honum

klovn2


Ef niðurhal væri löglegt

væri ég að horfa á Ewan MacGregor og félaga sem keyrðu kringum heiminn á mótórhjólum, ágætis þættir

og þetta


Snilldar-TV á fimmtudag

Þó niðurhal væri löglegt þá myndi ég samt mæla með því að þessir 7, úbbs meinti 8, (sorrí Hafdís) sem lesa bloggið mitt kíki á RÚV á fimmtudag kl.21.30. Það er verið að frumsýna nýja danska gamanþætti sem heita Trúður og eru víst hreinasta afbragð.

Ég vildi að ég gæti lofað senu í líkingu við lokaatriðið í Idioterne en það væri kannski full mikið. Get samt klárlega lofað einhverju stríperíi enda eru þetta danir

Tékkið allavega á þessu, það verður síðan getraun á föstudag úr þáttunum hérna til að tékka á því hverjir hafa actually horft.

klovn


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband