Óttaleg þvæla

verð ég að segja. Hvernig getur stjórnarsamstarf verið rofið af aðilanum sem vill stunda spákaupmennsku með hlutabréf? Ég er reyndar enginn hlutabréfasérfræðingur en ég er nokkuð viss um að ekkert fyrirtæki getur, með nokkurri vissu, lofað margföldun á verðmæti hlutabréfa á stuttum tíma. Sérkennilegt mál í alla staði. Reyndar skil ég ekki alveg hvers vegna opinberir aðilar eru a standa í þessu. 

Ég hef heldur ekki hugmynd um það heldur hvað þetta fyrirtæki ætlar að gera, ég veit að þeir eiga slatta í Hitaveitu Suðurnesja en get ekki séð að verðmæti hennar margfaldist á næstu árum.  Bjarni Ármannsson er vissulega bright gaukur og þetta fyrirtæki á örugglega eftir að verða alveg ágætt en ég átta mig ekki alveg á því hvers vegna borgin á að fjárfesta í einhverju sem fyrir mér hljómar eins og langtímafjárfesting í alþjóðlega orkugeiranum.

Reyndar eru ábendingar vel þegnar í þessu máli sem og öðrum. Ef einhver þeirra sjö nei, fyrirgefðu Hafdís, ég meinti átta sem lesa bloggið mitt getur útskýrt fyrir hvað það er sem þetta kompaní ætlar að gera og þá sér í lagi hvað þeir ætla að gera sem margfaldar verðmætið á stuttum tíma þá vinsamlegast skiljið eftir komment með þessum afar mikilvægu upplýsingum.

Mér þætti t.d. gaman að vita hvað Ella Þóra, vinkona mín, hefur um þetta að segja Smile


mbl.is Sviptingar í borgarstjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Pétur Björn Jónsson

Takk vinur minn, kemur ekki á óvart að ég gæti treyst á þig í þessu´

Vissi t.d. ekki að Bjarni og Hannes hefðu verið á bakvið Decode delluna. Bingi er samt með aumingjastimpil í þessu held ég, hvað var hann t.d. að gera á þessum furðulegu myndum frá undirritun samninga í Kína, skondið finnst mér.  addaðu mér á msn hjá þér við tækifæri, peturbjorn@hotmail.com ,

Pétur Björn Jónsson, 11.10.2007 kl. 21:09

2 Smámynd: Pétur Björn Jónsson

Ég held að þetta muni verða til þess að Gísli fari þá sem leiðtogi íhaldsins næst eða fara ananrs í tv aftur. Hann er eðaldrengur og reyndar gríðarlega góður í trivial, sem er vanmetinn eiginleiki. Hann spjarar sig allavega, er hins vegar sammála þér félagi að þessi pólitík er að verða furðuleg, Jón Ásgeir á r-listann og bjarni/hannes/B.Thor eða einhver annars íhaldið. skrýtið mál allt saman.

Pétur Björn Jónsson, 11.10.2007 kl. 21:53

3 Smámynd: Pétur Björn Jónsson

hehe, jamms, friðarsúlan er skondið lokaverk

Pétur Björn Jónsson, 11.10.2007 kl. 22:31

4 identicon

Sæll gamli minn

 Ég er þótt ótrúlegt megi virðast mjög sátt,  við látum ekki sjallana endalaust valta yfir okkur. Bingi kemur mun sterkari út úr þessu enda gleymdu Sjálfstæðismenn því að þeir voru í samstarfi með öðrum flokk. Það má aldrei sofna á verðinum er maður er í pólitík, enginn á eitt eða neitt:) Ég var mjög reið út í fyrrverandi meirihluta og var farin að hugsa minn gang hvað mína pólitískustöðu varðar. Sjálfstæðisflokkurinn getur kennt sjálfum sér um hvernig fór, þó þeir reyni smjörklípuaðferðir sínar góðu þá tel ég að almenningur sjái í gegnum þetta núna.

kveðja Ellus

Ella Þóra (IP-tala skráð) 13.10.2007 kl. 18:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband