Bolti og Bifröst

Það stefnir allt í að ég fari á Bifröst aðra helgina í röð. Ég og Snorri förum væntanlega á föstudaginn um fjögurleytið að heimsækja Jón Bjarna, aldrei að vita nema að ég rekist á Maju þar líka, kannski af því að hún býr við hliðina á Jóni.

Ætlum að horfa á boltann og spila um helgina þannig að Jón þarf bara að klára ritgerðina fyrir föstudagskvöld, ætti að nást þar sem að hann er búinn að hringja í mig tvisvar til að tékka á heimildastöffi. Merkilegt nokk þá gat ég svarað því án þess að þurfa að hugsa mig mikið um, það er þá ekki alveg gagnslaust að vera í þesus MA-námi, virðist eitthvða sitja eftir, reikna samt með því að það sitji þar af því að Fjóla vinkona mín var afar dugleg að benda mér á réttu leiðirnar í heimildaskráningunum í vorSmile

Þannig að ef einhvern vantar far á Bifröst á föstudag um fjögurleytið fyrir sig eða eitthvað stöff þá er sjálfsagt mál að fljóta með, Snorri er ekki það stór að hann taki restina af plássinu í bílnum.

Ef niðurhal væri löglegt þá væri ég búinn með flest það sem var á playlista kvöldins, reyndar ekki í réttri röð því ekki er alltaf hægt að treysta á hraðann á mismunandi þáttum, hef ég heyrt allavega

Það verður því engin minimehelgi núna en mér skilst að frú Sigfríð ætli að fá hann lánaðan þannig að það ætti að fara vel um þau. Pabbahelgarnar virka annars þannig að ég hef hann aðra hvora helgi, nema þegar það er oftar eða Sigfríð hefur aðrar hugmyndirWink

Gott annars að hafa hann hérna nálægt, veit að hann fílar að geta labbað í skólann og að geta farið út að leika sér við vini sína.

Kveð í kvöld með Leonard Cohen svona í tilefni þess að ég er jafnvel að fara að hitta Maju aðra helgina í röð, sem hefur ekki gerst frekar lengi


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband