Úldin appelsína

er ekkert spes. Ég var samt búinn með svona 2-3 báta áður en ég fattaði það, var örlítið utan við mig yfir Idol.

Topp 24 voru í gær og fyrradag, ég er ennþá að átta mig á þessum með Josiah Leming þannig að ég held mig við Michael Johns sem spá, dáldið langsótt samt að Ástrali vinni American Idol, allavega enginn sem stendur uppúr eins og er.

Afmæli hjá Finni stórvini mínum á morgun, örugglega skemmtilegt kvöld. Verður gaman að hitta þau hjónin Finn og Lovísu Þóru aftur.

Lovísa spurði mig reyndar í fyrra hvað Finn vantaði í golfi, hún var að leita að gjöf handa honum.

"kjark og hæfileika" var svarið Wink


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

Hélt þú værir að tjá þig um auglýsinguna fyrir Topp, eða Krystal. Allavega var einhver kolsýrður drykkur auglýstur í sjónvarpinu í fyrra. Þar sáust svífandi appelsínusneiðar. Ein virtist þó heldur mikið dekkri en hinar og börnin mín tvö voru bæði á því að þarna væri úldin appelsína á ferð.

Brjánn Guðjónsson, 21.2.2008 kl. 19:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband