Bloggfærslur mánaðarins, október 2008

37

ára afmælisdagurinn er búinn að vera góður, reyndar mjög góður.

Fékk afmælisgjöf snemma dags og búið að afmælisjólaskreyta borðið mitt, algott. Sigfríð mætti með nammi í vinnuna, saltnammi síðan heima.

Liver vann portsmouth 1-0 í heldur daufum leik, þrjú stig samt.

Fæ minime um helgina og svo leikhús á laugardag.


Óvíst

-með stöðuna fyrir Liver-Chelski leikinn um helgina, Torres meiddur og Gerri m.a. tæpur, ekki gott

-með hvernig við eigum að fara að því að borga 1500 milljarða, ss. 600 fyrir Breta, 600 fyrir alþjóða gjaldeyrissjóðinn og 300 fyrir hollendinga og aðra sem vilja cash frá Íslendingum þessa dagana. Á 30 árum er það þá 50 ma. á ári í afborganir og á 3% vöxtum þá eru það aðrir 45 ma. til að byrja með. Gaman að vita hvernig ríkið ætlar að skila 90-95 milljarða afgangi til að borga þetta, skattar kannski?

-með hvar við getum sótt eitthvað upp í þetta ævintýri bankamannanna góðu. Icesave var á ábyrgð Landsbankans, feðgarnir áttu hann. Þeir eiga víst ennþá m.a. Actavis, væri þá ekki rétt að hirða það og selja erlenda hlutann til að borga fyrir eitthvað af þessu, sakar ekki að fá nokkra milljarða uppí skuldahalann.

-með hvernig heimilin höndla þetta, afbragðs pistill frá greiningardeild Egils um skuldir heimila er hér Verst að Egill var ekki með greiningadeildina með sér í viðtalinu við Jón Ásgeir.

- með hvað ég geri um helgina, líklega horfi ég á Liver á B16, best að nýta sér síðustu dagana með St2Sport. Engar líkur á að slíkt stöff verði keypt aftur í bráð, svona víst það er komin kreppa í nokkur ár.

- með hvenær einhver kaupir íbúð aftur á meðan hægt er að leigja, það kostar töluvert mikið meira að eiga íbúð en leigja á meðan íbúðaverð hækkar ekki og verðbólga er yfir 6%


Egill

hafði eðal tækifæri til spyrja Jón Ásgeir um allt mögulegt sem tengist hans fyrirtækjum. Eyddi hins vegar tímanum í verða reiður og kasta fram fullyrðingum sem Jón Ásgeir gat eiginlega ekki svarað öðruvísi en hann gerði, má eiginlega segja að Egill hafi meikað jafn mikið sens og þessi færsla hjá mér.

Hvernig hefði verið að spyrja um stöðu Glitnis í aðdraganda Seðlabankaferðarinnar, svona í ljósi þess að ríkið átti víst að vera í stórhættu ef þeir tækju við Glitni. Egill leyfði Jóni að komast upp með að segja að Glitnir hafi ekki verið á leið í gjaldþrot fyrir þá ferð. Ræða sölutryggingu Glitnis á Sterling/Nothern travel eða hvað sem flugfélagsfyrirtækið heitir þessa dagana.

Merkilegt nokk leyfði Egill Jóni að komast ágætlega frá þessu. Hvað var þetta með Abba singalong í lokin og að standa upp og fara frá borðinu áður en slökkt var á útsendingunni. Við þurftum yfirvegaða, hnitmiðaða Egil þarna en ekki pirraða Egil, hann fær vonandi annan séns síðar og klárar þetta þá betur.


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband