Bloggfærslur mánaðarins, september 2008

Golfsumarið

búið. Endaði með 21.1 í forgjöf eftir að hafa byrjað með 36. Það er svona þokkalegasti árangur en ég ætlaði að reyna ða komast í 20. 

Ég skráði alla hringi sumarsins sem hægt var að skrá, endaði með 47 hringi, meðal punktafjöldi var 32.23 sem þýðir að ég lækka væntanlega eitthvað aðeins þegar forgjöfin er endurskoðuð í vor. Er í 1523 sæti í forgjafarröð klúbbsins.

6 fuglar, sá fyrsti á níundu í Grafarholti. 85 pör og 201 skolli. Stefnan þá eðlilega sett á örn á næsta ári, það verður líklega að gerast með holu í höggi eða á 7 eða 11 á Korpu, 4 eða 12 í Grafarholti.

Ætla annars að reyna að komast í annan flokk á næsta ári, það er dáldið langt í það, mörkin liggja í 14.5 í forgjöf, líklega best að reyna þá að æfa eitthvað í vetur :)

Skemmtilegasti og líklega furðulegasti hringurinn var líklega síðasta daginn á meistaramótinu, 94 högg(af rauðum). Fór fimm fyrstu á einum yfir og síðustu fjórar á einum yfir, tvo yfir á þær 9 en einhvern veginn 21 yfir á þessar níu í miðjunni.

Er allavega kominn með nýjar Callaway Big Bertha kylfur, járn og driver. Get þá ekki vælt mikið yfir kylfunum lengur. Næsti hringur líklega ekki fyrr en einhvers staðar úti í vor, vonandi í lok mars eða byrjun apríl.


Golf

á morgun með gamla settinu, minime verður sérlegur aðstoðarmaður. Næ í hann í skólann um 4 leytið og við förum þaðan á Korpu. Þarf að vakna aðeins fyrr en venjulega þessa vikuna, um 7 leytið því minime verður hjá mér á meðan mamma hans er úti.

Hann er annars í herberginu hans SGÓ og minnir mig reglulega á að hann é í miklu stærra herbergi en ég :)

Búin að vera þægileg helgi, fór á Mamma Mia singalong í gær, þar sem ég er gagnkynhneigður þá kann ég eðlilega enga ABBA texta en skemmti mér ágætlega engu að síður. Fór með vinnunni, minime og mömmu.

Það væri fínt að komast aðeins í golf þessa vikuna, ekki mikið eftir af því tímabili þetta árið en stefni á að byrja í kennslu í nóvember, 1 sinni í viku í 6 mánuði hlýtur að skila einhverju.

Aron er frammi að vikta sig í 4 skiptið í dag, ég þarf líklega að fara niðrí sjóhús ef ég ætla að fara á vikt.

Missti af afmælinu hennar Maju í gær, hefur væntanlega skemmt sér ágætlega þrátt fyrir að mig vantaði, til hamingju með að vera orðin gömul Maja :)


Íþróttadagur

eða réttara sagt horfaáíþróttirdagur.

Ryder og Liverleikur, það var reyndar verið að dæma mark af Liver fyrir ég veit ekki alveg hvað. Fer held ég í golf í fyrramálið, fer aðeins eftir veðri en væri fínt að komast í að nota nýju fínu kylfurnar.

Geri mest lítið annað þessa helgina, sem er fínt. Er annars ekki að skrifa leikjadagbækur fyrir Liverleikina af því að það er happa að sleppa þeim.

** og Liver náði bara jafntefli heima á móti Stoke, það er heldur dapurt, get þá víst byrjað aftur á leikjadagbókum


Gerri var nóg

í dag. Liver voru betri og unnu sanngjarnan sigur. Horfði á leikinn í Naustabryggju, það var greinilega happa.

Var í mat þar í kvöld, einhvers konar beikonkjúlli, gott stöff. Ætla að reyna að komast í golf með pabba á morgun, jafnvel í Keflavík, alltaf gott veður þar :)


Stórleikur

á eftir. Hef svona misgóða tilfinningu fyrir leiknum. Liver hafa ekki verið allt of sprækir undanfarin ár á móti ManU. Jákvæðar hugsanir þá. Ef Gerri og Torres verða með þá vinnur Liver, annars jafntefli.

Valitorleikar í gær, ég keppti ekki í neinu enda í undirbúnings- og dómnefnd. Hitti aðeins á minime og er á leiðinni að hitta hann núna, matur hjá gamla settinu í kvöld, Eva á landinu og allt.


Leikjadagbók Ísland-Skotland 10.9.2008

Korter í leik, var í Tiger leiknum en ákvað að það væri í lagi að gera hlé vegna landsleiks.

18.17 Liðið er Kjartan, Grétar Rafn, Kristján, Hemmi, Bjarni Ólafur, Stefán, Aron, Eiður, Birkir, Emil og Heiðar. Þetta er naglalið, fínt til að berja aðeins á Skotum.

18.19 Skotar hafa gengið reglulega um Laugaveginn í dag, skemmtilegar týpur. Kristján Guðmundsson og Valtýr Björn að lýsa, Kristján er ekki í miklu uppáhaldi hjá mér, Valtýr er það hins vegar.

18.20 Ég var ánægður með Noregsleikinn, hlakka til þessa leiks, hef góða tilfinningu fyrir honum

18.21 Kristján var að segja okkur að Skotar hafi unnið alla leki á móti Íslandi. Óli Jó leggur upp með sömu taktík og á móti Noregi, það er ekki svo vitlaust, Íslendingarnir voru góðir þar lengst af.

18.23 Ánægður með að vera með Eið á miðjunni, fínt að hafa vel spilandi mann þar, reyndar má Stefán eiga það að hann er alltaf að skána með boltann

18.24 Er með kókdós, það er happa

18.25 Snorri Sturluson að lýsa, heyrist Tóti vera með honum, sjáum það betur á eftir. Védís Hervör er að syngja þjóðsönginn okkar og já ég stend á meðan ég skrifa þetta

18.26 ok, ég sit

18.26 Védís er að syngja þjóðsöng Skota, það heyrist ekki í henni fyrir 2000 Skotum á vellinum, skemmtilegar týpur Skotar og myndarlegt fólk

18.28 ok, ekki fríðir kannski en skemmtilegir

18.29 Veit ekki alveg hverjir þessir Skotar eru, Fletcher og McFadden reyndar

18.30 koma svo

18.31 Skotar byrja með boltann, það er happa fyrir okkur

18.32 Versti dómari Belgíu að dæma, það er spes, það væri dáldið eins og að Ólafur Ragnarsson væri að dæma leiki erlendis

18.32 Skotar með auka en einhver okkar manna skallaði frá, crap það var einhver að meiða sig

18.33 þetta var í lagi, Aron fékk aðeins á smettið en er í lagi. Emil að reyna að sóla, það er hans styrkur, fengum innkast sem var tekið langt, Hemmi fékk skotfæri uppúr því en blokkað

18.34 Ánægður með að vera með Hemma og Krissa sem hafsenta, þeir eru naglar. Við vorum að fá horn

18.35 Stefán tók hornið og við fengum næstum færi

18.37 Kjartan með boltann, lítur vel úr kallinn

18.38 Völlurinn er blautur, reyndar nokkrir Skotar líka

18.38 Við pressum við þeirra boga, það er fínt, þá verða háu sendingarnar þeirra lengri, dómarinn er í svakalegar rauðri peysu.

18.39 Auki sem skotar fengu en við skölluðum frá, þeir fengu svo horn sem ekkert varð úr. Emil er sóknarmaður, fínt að hafa nokkra svoleiðis

18.40 Gott spil hjá Birki og Aroni, ekki nógu góð fyrirgjöf en gott spil, skot núna frá skotum sem einn fékk í sig og grísaðist næstum í gegn. Einn skotinn að fá spjald, Kirk Broadfoot heitir hann, best að segja ekkert

18.42 Kjartan gaf 30 metra sendingu með hægri, get lofað að það hefur ekki gerst áður

18.43 Emil tók ákafan snúning, get eiginlega ekki lýst móttökunni öðruvísi

18.44 Aron buffaðist framhjá einum, gríðarlega vel gert, skalli framhjá. Tóti með gott komment eftir að Snorri fór að bulla um gult spjald. Krissi aðeins klaufi þarna, fékk á sig auka í kjölfarið. Eiður í daupfæri eftir gríðarlegt hlaup hjá Emil en skaut yfir, átti að taka innanfótar svona eftirá að hyggja. Gott hlaup hjá Emil, hann er góður í þessu

18.47 Krissi að redda vel í horn eftir að einn komst á bakvið Bjarna Ólaf. Dammit, skotar komnir í 1-0 eftir hornið, frír skalli hjá Broadfoot

18.50 Það er betra að komast yfir en að lenda undir, Heiðar hefur ekki sést það sem af er

18.53 Eiður næstum í færi, hann hleypur helling

18.54 Mynd af Bjarna Sig á stuttum á bekknum, hann er markmannsþjálfari

18.55 Heiðar með skot sem var ekkert spes. Versti dómari belga dæmdi á Kristján, þetta er versti dómarinn á vellinum

18.56 Brotið illa á Grétari, þetta var verra brot en þegar gaukurinn fékk gult áðan, megum gjarnan jafn fljótlega

18.57 Það er dáldið eins og það sé seinni en það eru bara 25 búnar af fyrri, væri fínt að jafna fljótlega

19.00 Vá hvað einn var frí á nær en sem betur fer fór sendingin beint á Kjartan, yfir gaukinn. Skotarnir vinna annars flesta aðra bolta.

19.01 Heiðar að tækla og fékk auka, það var í lagi og líklega rétt

19.02 Spái 3-1 fyrir Ísland, held að við séum betri

19.03 Kirk Braodfoot er með svona húsavíkurstrípur

19.05 Eiður pantaði einn auka, fékk af sjálfsögðu

19.06 Emil með fyrirgjöf en einn me skutluskalla, reyndar án þess að skutla sér, skotar í hratt upphlaup og fá horn

19.07 Ég held að við höfum verið að reyna að spila einn rangstæðan í innkasit, Robson fékk gult fyrir að sparka í burtu, það er aulalegt í fyrri hálfleik

19.08 Heiðar að skýla en skýldi ekki, 38 búnar

19.09 Stutt horn en Kjartan reddaði veleftir sð við vorum örlítið sofandi. Aron að strauja einn en af því að gaukurinn var að gefa fyrir þá slapp Aron. Hratt upphlaup og Grétar með fyrirgjöf, við fáum langt innkast

19.12 Ágæt sókn og Hemmi komst næstum í færi, fékk hann á mjöðmina

19.13 Emil að gera trix, skotinn fattaði það ekki og náði boltanum

19.15 Að koma hálfleikur, verst að vera 1-0 undir því þetta hefur ekki veriðsem verst hjá okkur, reyndar bara alveg ágætt, höfum fengið færi. 0-1 í hálfleik sem sagt, aftur eftir korter

19.30 Seinni af byrja, Indriði Sigurðsson að koma inná fyrir Bjarna Ólaf.

19.31 Við byrjum með boltann í seinni, það er happa, við með horn eftir 25 sekúndur

19.32 Dæmt á Grétar Rafn í horninu fyrir að láta hrinda sér, Birkir með annað hlaup og við fengum annað horn

19.33 Kristján með afturfyrirsigsnúningssendingarskot, við fengum annað horn og nú langt innkast.

19.35 Snorri er enn að telja upp hverjir eru inná, sama og í fyrri nema Indriði fyrir Bjarna, þetta tók ekki langan tíma

19.36 Það er eins gott að dómarinn tók flautuna með sér, hann er allavega búinn að þurfa að nota hana nóg.

19.37 Fannarrannaf er alveg eins afturábak og áfram.

19.37 Skotarnir aðeins með boltann núna

19.38 McFadden að flikka á sjálfan sig, innkast. Það er tortellini, smá pása

19.46 Fengum á okkur  víti sem var rétt, Kjartan varði en þrír skotar fylgdu eftir,0-2

19.58 Búinn að borða, seinni hálfnaður og ennþá 0-2. Pálmi Rafn kominn inná fyrir Aron Einar, Veigar fær þá líklega bara 10

20.00 Dómarapeysan er eins og endurskinsmerki. Kjartan með eitthvða trix sem hann hætti við og datt. Emil í skotfæri en einhver fékk boltann í sig. Korter eftir. Víti og rautt, MacManus tók fyrirgjöf með hendi, furðulega gert. Eiður tekur vítið allavega

20.03 Eiður skorar örugglega, korter eftir og við einum fleiri. Veigar inná fyrir Birki Má

20.04 Það væri dáldið kúl ef allir leikirnir okkar færu 2-2

20.06 Skotarnir skipta í tólfta skipti í leiknum, hélt að það væru bara 3 skiptingar á hvort lið. Gult á Gordon fyrir að tefja, það tefur aðeins

20.08 Eiður hljóp með boltann og gaf útaf, ætlaði að gefa á Óla Jó

20.09 Skotarnir eru með alla til baka, Eiður er búinn að vera með boltann í 123 sekúndur á síðustu 2 mínútum

20.11 rúmar 5 eftir plús þessar þriggja mínútna tafir sem alltaf eru. Gattuso að taka auka eftir að tefja í hálfa mínútu. koma svo

20.13 Kjartan með furðulegt spark, rann þegar hann sparkaði etir jörðinni, spes eitthvða. Pálmi með Ninjatæklingu. Snorri sagði að menn ættu að lúðra boltanum inná teiginn, ég hef ekki hugmynd um hvað það þýðir, hendi á skotana en bara önnur, ekkert dæmt

20.15 Einn skotinn varði óvart með hausnum á línu, horn

20.18 Dómarinn hefur sennilega klárað flautukvótann í fyrri, dæmir dáldið mikið minna í seinni. þremur var bætt við, það er að verða búið.

20.19 Þá er þetta búið, endaði 1-2 og varla sanngjarnt, við verðum hins vegar að vinna heimaleikina, Kjartan sparkaði svo út í síðasta útsparkinu sínu, ekkert spes.


mbl.is Skotar unnu nauman sigur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Humar

í Nautabryggju á eftir, ekki slæmt það. Golfmótið gekk býsna vel, eða þ.e.a.s eftir fyrstu fjórar holurnar, var að pæla í að lögsækja golfkennarann til að byrja með því flestöll höggin voru í rugli, 2 punktar eftir fyrstu 4 holurnar. Þetta lagaðist hins vegar eftir það og ég endaði á 31 punkti.

Verða ekki mikið fleiri golfhringir þetta haustið, kannski svona 4-5. Ætla svo að kaupa nýtt sett og fara til kennara í vetur, þarf þó eiginlega að koma mér niðrí 3. flokk svona formlega. Er í 22.5 eftir hörmungarnar á Hellu.


Það er allt

of snemmt að vakna klukkan rúmlega 6 á laugardegi. Er á leið í golfmót SSF á Hellu. Var hjá golfkennara á miðvikudaginn, heldur mikið af stöffi til að breyta í einu fannst mér en kannski jafn gott að byrja strax. Anywho...

ætla að reyna að komast heim fyrir noregsleikinn hjá fótboltalandsliðinu sem byrjar klukkan fjögur, minime verður hjá mér í kvöld og vonandi náum við að horfa á landsleikinn saman.

Skólinn byrjaði aftur á þriðjudaginn, mig hlakkaði alveg eins til en svo nennti ég ekki að vera nema svona klukkutíma í tímanum, það eru 6 verkefni sem ég þarf að skrifa þannig að ég rumpa þeim af í haust.


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband