Bloggfærslur mánaðarins, september 2007

Bæ Voda

Síðustu tímarnir hér hjá Vodafone, sérstakt að vera að kveðja fyrirtækið eftir tæp 6 ár en skemmtilegir tímar framundan hjá Valitor, byrja þar á mánudag kl 9, spennó.

Við hæfi að enda þá á Vodafone laginu...


Klapp klapp

fyrir 3 stigum í leik þar sem við vorum varla betri aðilinn

Klapp klapp fyrir frammistöðu Ragnars Sigurðssonar. Sterkur, fljótur og góður ungur hafsent, maður leiksins að mínu mati.

Klapp klapp fyrir áhorfendum sem létu ágætlega í sér heyra, það er gaman að landsleikjum og gaman að láta aðeins í sér heyra

Klapp klapp fyrir skiptingunum þegar þær loksins komu, mér fannst reyndar bæði Ólafur Ingi og sérstaklega Ásgeir Gunnar koma allt of seint inná en þetta reddaðist fyrir horn. Sérstaklega hefði Eyjólfur átt að bjarga Kára miklu fyrr, þetta var einn af þessum dögum hjá honum, einföldustu sendingar klikkuðu og honum leið held ég ekki vel þarna inná í seinni hálfleik. Í raun ekki við hann að sakast, það hafa allir fótboltamenn átt leiki þar sem það er eins og að maður sé að spila með plastbolta, hann fer einfaldlega ekki þangað sem maður vill að hann fari.

Klapp klapp var reyndar ákveðið vandamál eftir að Eiður kom inná, ekki að hann væri að klappa boltanum en Gunnar Heiðar og sérstaklega Emil klöppuðu boltanum of mikið þegar Eiður var að hlaupa í eyður. Þgar þeir gáfu boltann þá var það yfirleitt í vitlausu tempói, einu klapp of seint.

Klapp klapp fyrir dómara sem leyfði leiknum að ganga þegar senterar og hafsentar voru að fara í skallabolta, yfirleitt fá dómarar þá furðulegu hugmynd að dæma á það þegar menn eru að kljást aðeins um skallabolta úti á velli og dæma þá gjarnan til skiptis á hafsenta og sentera.

Klapp klapp fyrir íslensku landsliði sem hélt áfram að hlaupa og berjast þrátt fyrir að þeim gengi í raun ekki sérlega vel að byggja upp spil. Kristján er alltaf fínn í svona leiki, hann tæklar.

Klapp klapp fyrir 4 stigum í 2 leikjum sem ég hef séð með fyrrum landsliðsfyrirliða Jóni Péturssyni og verðandi leikmanni Barcelona, Aroni Frey


mbl.is Ísland sigraði Norður-Írland 2:1
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

9 fuglar og einn örn hjá þeim

er akkúrat 9 fuglum og einum erni meira en ég hef náð á ævinni. En miðað við nöfnin þá ætti ég að vera jafn góður og þeir saman
mbl.is Pétur og Björn léku sér að Garðavelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Búhú

hún hefur lítið breyst eða?

og vinsamlegast segið ekki Nylon að ég hafi sett inn Britney Spears vídjó, þær gætu orðið pirraðar


mbl.is Spears sögð hafa grátið baksviðs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eðlilega

tekur crouching tiger stöðuna af heskey enda getur hann ekki neitt. Verð á leiknum í rigningunni á morgun ásamt fyrrum landsliðsfyrirliða Jóni Péturssyni og Aroni Frey, sérlegum knattspyrnuráðgjafa og verðandi leikmanni Barcelona. Það virkaði fínt síðast og verður vonandi jafn skemmtilegt og á laugardaginn.

Styttist í starfslok hjá Voda, síðustu dagarnir og ég er svona að átta mig á þessu. Merkilegt nokk þá hlakka ég annars til skólans á fimmtudag, mun skemmtilegra fag á fimmtudögum og miklu færri í tímanum eða kannski er það bara það að ég er eini gaukurinn þarna.

Ef niðurhal væri löglegt væri ég búinn að vera að horfa á Louis Theroux, breskan gauk sem gerir skemmtilega heimildamyndir um mannlífið, aðallega furðufugla í USA, smá sýnishorn hér

Skemmtileg helgi framundan líka, ætla að læra smá og horfa á slatta af fótbolta,

lofa leikjadagbók(um) fyrir Jón Bjarna, svo lengi sem ég ákveð ekki að fara að þrífa, reyndar megið þið þá gjarnan koma hér við og löðrunga mig því þá er eitthvað að.


mbl.is Tekur Crouch stöðuna frá Heskey?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bush - Vanity Fair - Ágúst

Fyrir þá sem nenna að lesa þá er hér meira stöff um Bush, skemmtilega vel skrifuð grein eftir David Halberstam.

http://www.vanityfair.com/politics/features/2007/08/halberstam200708


Hógvær

í ljósi þess að hann hefur ekki gefið mark í síðustu 2 leikjum á hann sennilega skilið að fara aftur í liðið, reyndar hefur hann ekki spilað þessa leiki en hefur allavega ekki gefið mark í þeim 
mbl.is Lehmann: Almunia verðskuldar ekki sæti mitt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góður leikur, góð úrslit

Við hefðum vissulega viljað vinna eftir að hafa verið svona lengi yfir en jafntefli á móti Spáni er ekki slæmt. Það sem var jafnvel betra var að sjá baráttuna í liðinu, viljann vantaði ekki. Við fengum sennilega fleiri færi en þeir þó þeir hafi verið miklu meira með boltann. Gaman að sjá Ragnar í hafsentinum, fljótur og sterkur náungi. Fyrrum landsliðisfyrirliði Jón Pétursson og Aron Freyr voru sammála um að leikurinn hafi verið góður og að liðið hafi staðið sig vel.

Fékk daprar fréttir áðan, Geiri El dó í dag. Toppkall og kannski besti íslenski þjálfarinn fyrr og síðar. Gerði Fram að því sem það varð á níunda áratugnum og gerði fína hluti með landsliðið. Hvað leikmenn hans hafa verið marga klukkutíma í reitabolta veit ég ekki en þeir lærðu af því sem og öðru sem hann hafði fram að færa. Fyrir utan að vera afbragðs þjálfari þá var hann skemmtilegur kall og góður vinur foreldra minna, heimurinn er verri staður án hans og hans verður sárt saknað.


mbl.is Íslendingar og Spánverjar skildu jafnir, 1:1
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spennandi leikur

sem ég ætla að sjá með fyrrum landsliðsfyrirliðanum Jóni Péturssyni og verðandi leikmanni Barcelona(að eigin sögn) Aroni Frey. Ég hef mikla trú á liðinu fyrir þennan leik, held að vörnin verði sterk og miðjan traust. Ætli Gunnar Heiðar verði ekki frammi, hann hefur hraða og balls í að vera einn þarna, væri eiginlega best ef hægt væri að koma Hannesi einhvers staðar þarna fyrir líka, hann er buff og við höfum gott af því að hafa buff þarna inná. Rok og rigning skemmir ekki fyrir. Áfram Ísland
mbl.is Eiður Smári: Skil ekki umræðu um áhugaleysi og metnaðarleysi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allt í lagi, ég skal spyrja

Þýðir þunglyndi eiginlega ekki vanlíðan?

Sérkennileg fyrirsögn reyndar, er jafnframt verið að gefa til kynna að þunglyndi sé ekki þrálátur sjúkdómur?


mbl.is Þunglyndi veldur meiri vanlíðan en margir þrálátir sjúkdómar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband