Chris Rock

"A man is basically as faithful as his options"

Hér er meira með þessum ágæta manni


Lúinn

eða gamall eða bæði. Stórlið Valitor vann 3 leiki og tapaði einum í Vodafone Cup í gær. Mér líður eins og ég hafi hlaupið 300 kílómetra í snjó. Hvar ætli Halla/Sif hafi verið?

Er í Naustabryggju og Dagur líklegast á leiðinni hingað með Ánýju Eik að horfa á Liver-Everton, best að Liver vinni þann leik, þá þurfum við ekki að spá meira í deildinni þetta árið.

Meistaradeildin á miðvikudag, Sverka er að ákveða hvar við horfum á fyrri leikinn, ég vel staðinn fyrir seinni leikinn sem verður á Anfield. Eigum síðan seinnni leikinn úti á móti Chelsea í undanúrslitunum.


WhatTheCup í fyrramálið

Stórlið VALITOR mætir til leiks í Vodafone Cup í fyrramálið. Vitum ekki í hvaða riðli við erum en búið að ræða taktík engu að síður, stefnan er að láta þessa ungu(alla nema mig og Anton) hlaupa dáldið á meðan við "lesum".

Verð fyrir miklum vonbrigðum ef HallaSif mæta ekki sem klappstýrur.

Jafnvel stefnan að sjá Pálma hinn hárprúða spila á móti ÍR á morgun, þ.e. ef ég verð kominn með minime þá, hann verður hjá mér á morgun, SGÓ verður með lambakjöt í matinn, ekki sveppasósa enda borðar minime ekki sveppi.

Mæting 9.30 á morgun þannig að best að ég fari að sofa snemma, 7 mínútna labb í vinnuna tók ekki nema 20 í morgun, pilates+bolti í gær minntu mig á hvað ég er orðinn gamall, lúin bein kveðja....


Pilatesbolti

í kvöld.

Fyrsti tíminn í Advanced hópnum í Pilates klukkan 6 og síðan bolti með moppunni frá níu til tíu.

Tvisvar sinnum hreyfing á einum og sama deginum, hefur ekki gerst síðan Köben brann. Best að halda uppá það með því að gera ekkert alla helgina.

Ætla ekki að segja hver datt útúr Idol en það var allavega ekki Kristi Lee Cook eftir framúrskarandi lagaval, God Bless The USA.


Idol

David C-Carly-Brooke-Michael-Kristi-David A


Ágætis leikir

í dag, reyndar var Liver leikurinn ekkert sérlega skemmtilegur en eftir að örfætti pirraði maðurinn var rekinn útaf þá varð hann allavega opnari en þessir leikir eru venjulega.

Drogba hélt lífi í keppninni um dolluna, þeir eru miklu líklegri til að stríða ManU en Arsenik.

Er búinn að unblokka Ellu aftur, hélt að hún væri búin að læra að vera ekki með plebbakomment rétt á meðan Liver er að tapa, ég get tekið svona en bara ekki rétt á meðan leikurinn er í gangi.  :)

Jón Bjarni og fleira Vodafólk á leiðinni hingað á eftir og SGÓ var að koma heim úr roadtrip, kveð að sinni


Leikjadagbók Manchester United-Liverpool 23.3.2008

Naustabryggja 29, sérlegur gestabloggari Dagur Freyr

Dagur er reyndar útí sjoppu að kaupa kók, minime er á skíðum með mömmu sinni.

13.13 Liðin eru tilbúin. Reina, Arbeloa, Carra, Skrtel, Aurelio, Xabi, Alonso, Gerri, Kuyt, Babel og hinn gullfallegi Fernando Torres. Liðið hjá ManU er Saar, Brown, Ferdinand, Vidic, Evra, Carrick, Scholes, Anderson, Ronni, Giggs og Shrek, Quasimodo á bekknum, gaman að sjá hvað Rúdolf rauðnefur ætlar að láta ManU sækja á heimavelli.

13.17 Það er eitthvað pickles á hljóðinu, sennilega HD vesen. HD virkar sem sagt þannig að myndin verður voða tær og fín, það er hins vegar alltaf eitthvað bras á hljóðinu þegar ég reyni að horfa á HD á st2sp2

13.20 Mynd af Torres þar sem hann var að koma á völlinn, hann er með afar fínt hár í dag, Dagur mættur með kókið, reyndar appelsín líka

13.26 SGÓ að hringja frá Sauðárkróki, hann ætlar að horfa á leikinn þar á leiðinni frá skíðaferð á Akureyri.

13.27 Arnar og Heimir Guðjónsson að lýsa, það er dáldil sóun að vera ekki með Gumma í leiknum og Arnar í stað þess í settinu með Guðna Bergs. Heimir er þó allavega góður, vonandi sér hann um þetta að mestu leyti, Ronni er reyndar með dáldið fínt hár í dag líka

13.30 Dagur spáir 0-0 í tilþrifalitlum leik, ég spái þá 1-5 í tilþrifamiklm leik

13.31 Liver eru búnir að tapa færri leikjum en ManU en tilraun þeirra til að bæta jafnteflismetið þýðir hins vegar að við erum 1700 stigum á eftir þeim, eitt árið enn

13.32 Liver byrjaði með boltann, það skiptir máli

13.33 Arnar va rað segja okkur að Paul Scholes héti Paul Aaron Scholes, það er nýtt, samt ekki jafn merkilegt og að pabbi Gary og Phil Neville heitir Neville Neville

13.34 Dæmt á Giggs fyrir lítið, léleg fyrirgjöf frá Arbeloa eftir að hann vann boltann vel af Giggs, dæmt á Torres

13.36 Van der Sar er í albláum samfesting, ekkert spes

13.41 Shrek fékk gott færi áðan, Carra fór í hann er sennilega ekki nóg, Reina varði allavega, Shrek fékk síðan næstum færi og fór í Reina. Mascherano fékk nú gult fyrir Ninjastökk á Scholes. Arnar er nú að bulla enn einu sinni, heldur því fram að Mascherano hafi fengið spjaldið fyrir að vanvirða dómarann, sem er tómt rugl, dómarinn hélt á spjaldinu allan tímann. Heimir er búinn að leiðrétta hann tvisvar. Ef einhver er þarna nálægt, getiði þá slökkt á míkrafóninum hans Arnars.

13.45 Aurelio í gott fyrirgjafafæri eftir horn, ákvað þá að negla langt framhjá, spes

13.46 Ronni að henda sér niður í annað skiptið, hann fór þá eðlilega að væla af því að ekkert var dæmt, það var heldur ekkert á þetta

13.47 Mascherano að rökræða meira við dómarann, nú af því að Anderson var að sparka í Gerra

13.48 Óli King vinur minn er nú líklega vælandi yfir því hvað allir eru vondir við Ronna, þetta væri trúanlegra ef hann henti sér ekki niður 10 sinnum í leik til viðbótar við þau skipti þar sem raunverulega er brotið er á honum.

13.50 Eldri Neville systirin situr við hliðina á Ole Gunnar, Gary er búinn að vera ansi lengi frá

13.51 Carra að reyna 30 metra innanfótarsendingu, verst að á miðri leið var Mascherano þannig að boltinn fór beint í bakið á honum, hættan er sú að Ronni verði fljótlega eins og Stoichkov á HM ´94, finnist eiginlega best að fá sem flestar aukaspyrnur

13.53 Reina kominn 20 metra útúr teig, reddaðist, Gerri með aðra lélega sendingu, Scholes me dapurt skt af 35 metrum, kom þó allavega skot

13.55 Dæmt á Mascherano, hann þarf að fara varlega víst hann er kominn með spjald, Ronni í gott færi eftir aukann, fór í stöngina, Arnar var hins vegar sá eini sem tók ekki eftir því og fór að hrósa Reina fyrir markvörslu, það er smá basl á sóknarleiknum hjá Liver þessar mínúturnar

13.57 Torres að pressa Rio, tæpt að hann næði boltanum, Gerri í góðu skotfæri, fór í varnarmann og rétt yfir, góð sókn og horn

13.59 Shrek að takann niður í teignum, bjó næstum til færi fyrir Carra

14.00 Ágætt breik hjá ManU, fyrirgjöf frá Wes sem Arbeloa skallaði í horn, Liver á í smá veseni með þessi föstu leikatriði en svona reddaðist að þessu sinni

14.01 Mascherano hljóp hringinn í kringum völlinn, var að pressa boltann, það er dáldið fyndið að sjá hann hlaupa, hann er svona örfættur, þarf mörg skref í fáa metra

14.02 Hálftími búinn, staðan 0-0

14.03 Torres vildi fá horn, átti líka að vera horn því Carrick sparkaði útaf

14.04 Breik hjá ManU, Giggs í hálffæri, breik hjá Liver og þeir fengu horn, ManU í breik uppúr horninu og Wes Brown að skora eftir lélegt úthlaup hjá Reina, þetta er svona nokkurn veginn par fyrir þessa leiki, O´Shea skoraði í fyrra ef ég man rétt og Rio hefur skorað tvisvar. Allavega er staðan 1-0 og 35 mínútur búnar, ekki sérlega fallegt mark en það telur eins og hin.

14.08 Crouch og Riise að hita upp, þetta er anna mark Wes Brown, hitt skoraði hann fyrir tveimur árum, hann er þá akkúrat jafn mikill markaskorari og Jermaine Pennant. Veit ekki af hverju Crouch og Riise eru að hita upp núna þegar Rafa skiptir aldrei fyrr en á 63. mínútu í fyrsta lagi

14.14 Styttist í hálfleik, 2-3 eftir, Torres að fá spjald fyrir tuð, nú rak hann Mascherano útaf fyrir nöldur. Það kom akkúrat ekket á óvart. Arnar er nú að missa legvatnið yfir því að Mascherano fái langt keppnisbann, þetta var samt bara annað gult, hann fær þá 2-3 leiki í bann.

14.18 Það er ekki séns að þetta verði síðasta spjaldið í leiknum, Torres er afar pirraður þessar mínúturnar, flautað til hálfleiks. Þessi seinni gæti nú orðið eitthvað spes held ég

14.30 Það var verið að endursýna þegar Torres fékk spjald, furðulegt verð ég að segja, Torres var ekki æstur heldur var að tala við dómarann. Dómarinn virkaði hins vegar eitthvað trekktur, ekki mikið hægt að segja við spjaldinu hjá Mascherano aðallega af því að hann var búinn að tuða svo mikið í fyrri en dómarinner samt eitthvað trekktur, það var þá það sem Rúdolf rauðnefur vildi hvort eð er.

14.36 Seinni byrjaður, Ronni fékk dauðafæri eftir múnútu en Reina varði vel, Scholes með skemmtilegt vipp á hann, Gerri með skot stuttu seinna sem Edwin tók frekar auðveldlega

14.38 Rétt hjá Heimi, þetta verður erfitt hjá Liver.

14.39 Ef það er einhver kostur við þetta þá er hann líklega sá að Mascherano verður þá líklegast frískur í Arsenal leikjunum í meistaradeildinni, fínt að hann verði þar að hnoðast í Fabregas

14.41 Liver eru lagstir aftar, eðlilega. Þeir verjast venjulega frekar vel þegar þeir leggjast aftarlega, væri þó heldur skárra ef þeir væru ekki undir líka.

14.42 Arbeloa togar í Anderson, auki og gult. Ronni getur þá allavega skotið, hann gerir það vel. Reyndar virðist hann sjaldnast gera mikið á móti Liver, aukinn annars framhjá

14.44 Liver eru í smá vandræðum með að finna menn í fæturna, það er nú eiginlega eina leiðin til að spila sig útúr svona taktík, finna einhvern til að halda boltanum aðeins. Shrek í dauðafæri en Reina varði vel, furðulegt hvernig 60 metra bolti frá markmanni getur farið svona auðveldlega innfyrir vörnina, það hefur verið vesen eiginlega allan leikinn

14.47 Ronni að væla af því að hann fékk ekki auka, að var togað en hann vældi aðallega af því að boltinn fór útaf

14.49 Ég á nokkra skrýtna vini sem þurfa að kommenta dáldið mikið, ein heitir Ella Þóra. Nú fékk Rio gult fyrir að sparka boltanum í burtu, lélegur auki hjá Gerra

14.51 Þokkalegt skot hjá Anderson en létt fyrir Reina, dáldið mikið síðan sparkað bara langt fram, við erum ekki 3 færri þannig að það ætti nú að vera hægt að gefa eins og á einn eða tvo samherja einhvern tímann, já og ef þið eruð að leita að kommentinu frá Ellu þá er búið að eyða þvi, kosturinn við að þetta er mitt blogg, gleðilega páska samt :)

14.54 Torres að pressa Vidic, þeir vildi fá rautt, það er nú varla hægt að spjalda á öll brot

14.54 Ronni að henda sér niður, Gerri að láta dómarann heyra það, Babel á leið útaf fyrir Yossi, fyrir þá sem ekki vita þá eru nú liðnar 65 mínútur, það er hefðbundin skiptingatími hjá Rafa, þess vegna var óþarfi fyrir Riise og Crouch að hita snemma

14.57 Liver með auka til hliðar við teiginn, dáldið fyrir utan. Torres fékk færi eftir þetta en fattaði ekki að hann var með boltann. Torres vann síðan boltann stuttu seinna og kom sér næstum í færi

14.59 Alonso vantaði ekki nea svona 20 metra að koma 50 metra auka inní, það er dáldið dapurt, allavega svona í meistaraflokki

15.01 Ágætis moment hjá Liver þessar mínúturnar, Ella poppaði núna upp á msn til að halda áfram, blokkuð þar þá líka núna fram á kvöld, hún hefur sennilega bara gleymt vopnahléinu okkar :)

15.02 Nani og Quasimodo inná fyrir Giggs og Anderson, þar versnaði heldur í því fyrir Liver, þeir eru sprækir. Quasimodo í dauðfæri eftir klafs, Reina varði vel

15.05 Ég ætla að horfa á Arsenal leikina með Sverka the great swedish player. Sparkað í Torres, hann meiddi sig eitthvað held ég, það er ekki bara slæmt, það er afleitt.

15.07 Torres aðeins haltur, það er tæpt korter eftir og Rafa að bíða eftir einhverju, sko, Rafa, deilldin er búin, af hverju tekurðu ekki Torres útaf til að hann hlaupi ekki um haltur

15.09 Ronni að skora eftir horn, Xabi ekki mikið að deka, Nani svo að skora eftir breik, ætli Rafa með kleinuhringjaskeggið fáist þá til að taka Torres útaf. Ég nenni þá augljóslega ekki að horfa meira á þennan leik, þetta var búið þegar Mascherano lét reka sig heimskulega útaf.


mbl.is Man. Utd með 6 stiga forystu eftir 3:0 sigur á Liverpool
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

13.30 á sunnudag

er víst þessi leikur. Ætla eðlilega að horfa á hann en þar sem Everton eru að gera sitt besta til að gefa okkur fjórða sætið þá er ekki að jafn miklu að keppa, hef satt að segja miklu meiri áhuga á Arsenal leikjunum í meistaradeildinni.


Idol

Amanda og Carly

Topp 11


Idol - David

Cook & Archuleta

Topp 11


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband