Eru allir á leiðinni þangað

Er það nú gæfulegt að kaupa 32 ára kantmann, varla ætla þeir að nota hann í bakvörðinn þegar þeir eru með lucas Neill á hellings launum
mbl.is Solano segist jafnvel á förum til West Ham
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Korter

er það ekki heildartíminn sem tekur að leita í öllum húsum á Stokkseyrarbakka


mbl.is Húsleitir á Stokkseyri og Eyrarbakka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Afskaplega eðlilegt

Hann er í sterkri stöðu. Er með fínan samning við Barcelona og á 3 ár eftir af honum. Af hverju ætti hann að fara eitthvað án þess að fá hækkun þegar það eru nokkur lið sem vilja fá hann. Það er allt önnur spurning hvort hann eigi skilið að vera á svona háum launum en ég sé ekkert að því, hann hefur vissulega verið varamaður en það hefur þó verið í góðum liðum, ekki eins og að hann hafi verið á bekknum hjá Stoke.

Þetta verður væntanlega síðasti stóru samningurinn sem hann gerir og sniðugt hjá honum að nýta þetta tækifæri til að hækka aðeins launin og væntanlega lengja samninginn aðeins. Miðað við launin sem West Ham er að borga gaukum eins og Lucas O´Neill þá sé ég ekki annað en að Eiður endi þarna með 4-5 ára samning og 100þús pund á viku. West Ham á líka slatta pening inni eftir að Newcastle bjargaði þeim frá því að kaupa Kieron Dyer og sjúkraþjálfarann hans, hann átti eflaust að fá 60 þús á viku þannig að West Ham er þá í raun að fá Eið á 40 þús pund á viku sem er nokkuð vel sloppið fyrir góðan leikmann í ensku úrvalsdeildinni.


mbl.is Segir launakröfur Eiðs Smára háar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rise and shine, eða svoleiðis

Klukkan sjö og ég var að vakna, vann til rúmlega 2 en fór þá heim í smá nap, afar þægilegt. er nú að horfa á Ellý Ármanns segja frá dagskrá kvöldsins, er búinn að gleyma því jafn óðum. Held að þetta hafi verið passlega langur nap, svona 4 tímar, kemur í ljós á eftir. Ég held að menningarnótt sé næstu helgi, ég er ekkert spenntur yfir risatónleikum rásar2 og Landsbankans, sennilega aldurinn. Hlakka hins vegar til miðvikudags, ætla þá að vinna aðeins fram yfir hádegi en ná þá í minime og fara í Jórsali til að horfa á fótbolta, Liver í undankeppni meistaradeildarinnar 14.30, Arsenal eftir það og síðan Chelski í deildinni. Ekki leiðinlegt að boltinn sé byrjaður aftur.

Styttist annars í skólann, ég er farinn að hlakka til, tveir kúrsar núna og svo tveir eftir áramót. Eftir það ferð til Afríku til að rannsaka fullorðinsfræðslu. Er að spá í að setja öll verkefni vetrarins hérna inn, sennilega bara Fjóla sem hefur einhvern áhuga á þeim en hún verður líklega búin að fá að lesa þau öll yfir hvort eð er áður en ég skila þeim, gott að eiga góða að Smile

Stendur á msn-inu hennar Maju að hún sé í Reykjavík City, hef ekki séð hana samt, merkilegt

Kveð ykkur með Alanis Morissette, af einni af uppáhaldsplötunum mínum, Jagged Little Pill. Hún er skemmtilega lítið pirruð í þessu lagi.


Ofmat

Getur verið að fyrirtækin hafi verið ofmetin? og krónan kannski líka, hlakka til verðhækkana í verslunum útaf lækkun krónunnar, ekki það að sömu verslanir hafi lækkað á meðan krónan var að hækka, skemmtileg hagfræði
mbl.is Nær 76 milljarðar horfnir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vinna framundan

Klukkan rúmlega hálf tíu og ég á eftir tæpa nítján tíma í vinnunni, lítur ekki svo illa út reyndar núna, Liver vann fyrsta leikinn og ég hef nóg af stöffi að horfa á í nótt. Verð líklega þreyttur á morgun en hef svo sem gert þetta áður. Tiger í ágætri stöðu á PGA, horfi á það næstu 2 tímana, hef slatta af TV efni fyrir nóttina þannig að vinsamlegast ekki hringja mikið í nótt, nema að þið eigið actually eitthvað erindi, Katrín er þreytuleg hérna við hliðina á mér, erfið helgi hjá þjónustveri 365, mikið af símtölum en mér sýnist þau hafa höndlað þetta eins vel og hægt er að búast við.

Ég er annars orðinn gamall, ég lofaði að taka næturvaktina í nótt og það þýddi að ég sleppti afmælinu hjá Strongbow í gær, hefði ekki meikað að vera illa sofinn og þunnur hérna núna. Sofnaði sem sagt fyrir miðnætti í gær og svaf fram að Arsenal leiknum. Ellimerki og ekkert annað. Ekki nóg með að ég hafi sleppt afmælinu í gær heldur sleppti ég stórmótinu á Leirunni í dag til að vera þokkalega hvíldur, lagði mig aðeins áðan en vaknaði við að Pétur Hafliði hringdi útaf sms-inu sem ég sendi honum til að hlæja að nískupúkakommentinu í útsendingunni í dag, hann hafði gleymt að slökkva á símanum þannig að síminn pípti í útsendingunni, ég er asni að hafa ekki hringt, það hefði verið óborganlegt, hef reynt það bæði við Sir Makan og Sverka þegar þeir hafa verið í TV.

Shrek er víst meiddur, verður frá í smá tíma sem er verra, fyrir ManU menn allavega, geta svo sem sjálfum sér um kennt að treysta á Solkjaer og Saha(sicknote). Kannski þeim hafi litist svona vel á O´Shea að þeir noti hann áfram. Quasimodo kemur þá væntanlega í liðið í næsta leik, hann er góður þó hann sé ekkert augnakonfekt. Kannski meira síðar á vaktinni.

Kveð að sinni með Kelly Clarkson, já ég veit að ég er Idolnörd


Tímabilið búið hjá ManU

Lið sem vinna ekki Reading heima vinna varla deildina, smá séns að Hargreaves og Quasimodo reddi þeim en ég held ekki. Þeir kannski vinna þá Auto windsreen shield, það er þó allavega eitthvað. Arsenal virkuðu sprækir í dag, eiga séns en sennilega númeri of litlir. Það verða þá Liver og Chelski sem berjast um það, Liver þarf reyndar að vinna Chelski næst til að láta aðeins vita af sér.
mbl.is Tíu leikmenn Reading héldu jöfnu á Old Trafford
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leikjadagbók Manchester United-Reading 12.8

Staðsetning: Jórsalir 4, ekkert saltnammi og ekkert kók, drasl en ég nenni ekki útí sjoppu.

14.47 Reynir Leós og Pétur Hafliði í stúdíóinu hjá Heimi Karls, Pétur sagði eigandann há Reading vera full mikinn gyðing, meinti að hann væri nískupúki en svona segir maður ekki í TVSmile

14.49 nú sagði Pétur Liver ekki verða með í toppbaráttunni, ég þarf að ræða þetta við hann. Hann er annars klókur og segir það sem honum finnst, sem er gott, allavega þegar menn vita eitthvað um fótbolta

14.58 Skipt yfir til Hödda Magg og Loga, báðir vita þeir helling um fótbolta þannig að þetta ætti að verða skemmtilegt

15.05 Brynjar og Ívar báðir í liðinu, það verður þá allavega tekið á því í dag. Leroy lita er meiddur, meiddist í rúminu, Logi náttúrulega stóðst ekki mátið og spurðu Hödda hvað hann hefði verið að gera. Evra á vinstri kantinum, gæti verið gagnlegt að vita fyrir draumaliðsleikinn

15.11 liðið hjá ManU: Van der Sar, brown, vidic, ferdinand, silvestre, ronaldo, scholes, carrick, evra giggs og shrek. Enginn af nýju köllunum í byrjunarliðinu

15.16 Höddi lætur okkur vita að Ívar sé 29 ára frá Stöðvarfirði, Logi lét að sama skapi vita að hann væri þá stöddari

15.20 Ronaldo reyndi snúningstrix á eigin vítateigslínu, sniðugur, fékk reyndar aulaaukaspyrnu, það á hins vegar ekki að dæma þegar menn reyna svona þvælu

15.26 fyrri hálfnaður, 0-0 ennþá en ManU miklu betri, Reading reyndar fengið 2 horn , það er líklega helst þannig sem þeir skora, eftir horn eða auka

15.29 Höddi og Logi að ræða markmenn frá USA, Loga finnst líklegt að þetta sé útaf körfunni þar, þeir séu svo góðir að grípa

15.31 Ronni er búinn að vera góður, skapar helling, verst að geta ekki keypt hann í varaliðið með Voronin og Yossi. Shrek tók einhvers konar utanfótarstökkmóttöku, hann er góður ennþá, hlakka til að sjá hann eftir 3-4 ár þegar hann verður eins og Fowler varð, góður fram til ca. 25ára, þeir lifa held ég svipuðu lífi

15.37 Shrek lét sig detta inní teig, hörmuleg tilraun til að fá víti, slapp reyndar við gult núna, það kemur sennilega á eftir

15.42 Shrek næstum búinn að skora, meiddi sig eitthvað við það, HöddLogi voru nýbúnir að tala um hvað hann væri í góðu formi, hann virðist reyndar vera það en fitnar væntanlega fljótlega og verður Shreklegur aftur, hann er eitthvað haltur, gott að vera þá með Pique, Nani, Fletcher og O´Shea á bekknum, 2 varnarmenn og tveir miðjumenn, ef Shrek fer útaf þá er enginn senter inná, það var sennilega ágætt að þeir keyptu Quasimodo

15.46 Shrek að rífast við dómarann, kemur á óvart, hann er afskaplega pirraður náungi

15.48 Scholes er víst með, hef ekki séð hann ennþá en restin af liðinu er að spila vel. Þeir eru að labba yfir Reading en það vantar senter þarna inná, ágæt sókn hjá ManU rétt fyrir hálfleik en Shrek missti vald á boltanum. Rétt á eftir flautað til hálfleiks, ManU töluvert betri og ég sé ekki betur en að þeir vinni þetta frekar létt, lið halda yfirleitt ekki svona lengi út. Logi er búinn að koma að sínum skammti af 5 aurum, sem er gott. Vonandi bráðum skipt yfir í stúdíóið til Heimis, ætli Pétur sé þar ennþá eða ætli þeir séu búnir að kæla hann svipað og þeir gerðu við Loga eftir að hann missti útúr sér einu sinni eitthvað um "rauðhærðan niggara", spennó

15.56 Pétur er þarna ennþá, gott mál. Þeir eru ánægðir með Reading, hafa varist vel sem er svo sem rétt en það er erfitt að verjast í 90 mín, þú þarft að sækja eitthvað, er ekki sammál Heimi um að Ronni sé búinn að vera þokkalegur, finnst hann hafa verið góður þó ég þoli hann ekki

15.59 Þeir félagar Reynir og Pétur eru myndarlegir, spurning um að ManU fái þá lánaða á liðsmyndina í staðinn fyrir Shrek og Quasimodo, það þyrfti þá ekki að taka hana í myrkri

16.05 Pétur vill færa Evruna niður í bakvörðinn og setja Nani inná fyrir Silvestre, Reynir var búinn að kommenta á það og þeir því sammála. Nani er núna að koma inná en reyndar fyrir Shrek.

16.07 Shrek meiddist eitthvað og fór þess vegna útaf. Vorkenni honum lítið, hann er of pirruð týpa til að maður geti vorkennt honum, Sýnist Giggs núna vera eini senterinn, spes

16.10 Ferdinand, Vidic eru aftarlega, flestir aðrir í sókn. ManU má eiga það að þeir sækja á mörgum mönnum, Carrick er góður þarna og mér líst satt að segja ekki allt of vel á þetta þegar Hargreaves verður kominn þarna líka. Hann og Quasimodo voru akkúrat kallarnir sem þeir þurftu

16.14 Brilli togaði með báðum, það má ekki en ekkert dæmt, Ronni komst næstum í færi uppúr því en það slapp fyrir horn, stutt í mark sýnist mér

16.16 Nú er Ferdinand kominn líka í sóknina, það voru 5 Man kallar inní þegar fyrirgjöfin kom, Evra fékk frítt skot á vítapunkti en skaut næstum í innkast

16.18 O´Shea að koma inná, kannski inní til að taka eitthvað af þessum 600 fyrirgjöfum en sýnist hann fara á miðjuna

16.20 og þó, svei mér þá ef O´Shea er ekki orðinn senter, það var sennilega eina staðan sem hann átti eftir að spila, hann skorar reyndar öðru hvoru og er ágætur skallamaður, sennilega ágætis lausn hjá Ferguson, auki hjá ManU rétt fyrir utan teig

16.22 Aukinn rétt framhjá hjá Giggs, Ronni stóð þarna líka og var kominn í splitt held ég, þetta átti sennilega að vera gríðarlegur snúningur ef hann hefði tekið þetta

16.25 Góður punktur hjá Hödda eftir að O´Shea var í færi, það er heldur dapurt að kaupa menn fyrir 50-60 mills en vera svo með O´Shea sem senter í fyrsta leik, þó hann sé fjölhæfur þá fer hann seint á lista yfir topp 10 sentera í heiminum

16.31 Loga finnst að Van Der Sar hefði átt að borga sig inn, það sé svo lítið að gera hjá honum. Gott að Loga leiðist ekki. 20 mín eftir og þetta er einstefna, Duberry eitthvað meiddur, kannski að þeir skipti honum þá útaf áður en hann gefur mark, skipting hjá Reading, rauðhærðasti maður sem ég hef séð var að koma inná, veit ekki hvað hann heitir, ég fékk ofbirtu í augun

16.34 Hann heitir víst Dave Kitson, veit það því það var verið að reka hann útaf eftir 1 mínútu, hann fór of hátt með löppina og í Evra, það mátti alveg reka hann útaf en tómt kjaftæði þarna því þeir eru endalaust að sleppa svona í Englandi. Annars staðar er þetta hins vegar rautt

16.38 nú er enginn frammi hjá Reading, það er vænlegt til árangurs, korter eftir

16.40 Vidic henti Ívari í burtu og fékk ekki spjald, það má víst í Englandi, allavega á heimavelli. Logi segir að markmenn í teignum sér fuglar sem séu friðaðir allt árið.

16.45 cirka 10 eftir og ManU eru í reit fyrir utan teiginn hjá Reading, veit ekki hvað veldur markaleysinu, kannski það tengist því eitthvað að þeir eru ekki með neinn senter í hópnum, Shrek er meiri svona sóknarmaður en fyrir utan hann er restin miðju og varnarmenn

16.49 Ronni kominn inní teig og reyndi að gefa fyrir, Brilli renndi sér og stoppaði það, skulum bara segja að það er ágætt að það er ekki hendi á liggjandi mann, 3 eftir og ManU að fá ódýran auka

16.52 Gott skot hjá Ronna úr aukaspyrnunni, Scholes fékk síðan skallafæri eftir það en náði engum krafti í þetta. Held að það sé eins gott fyrir ManU að skora núna, annars er ég hræddur um að þeir vinni ekki deildina, þú þarft einfaldlega að vinna lið eins og Reading heima. 2 eftir

16.56 auki og leiktíminn búinn, hvað gerist

16.57 Ronni skaut yfir og flautað af, það vantar senter í ManU og það var eina ástæðan fyrir því að þeir töpuðu stigum, þeir voru inná vallarhelmingnum hjá Reading allan leikinn en voru að mestu að reyna langskot. Þeir voru að vinna þessa leiki í fyrra og unnu deildina á því, ManU blikkaði fyrst í störukeppninni hjá stóru liðunum, mér leiddist það ekki Smile

17.02 yfir í stúdíóið til Heimis, Reynis og Péturs, bæði Pétur og Reynir Manchester menn, vorkenni þeim ekkert víst Ferguson gat ekki verið með sóknarmann á bekknum. Vonandi getum við fengið Pétur og Reyni oftar í stúdíóið þegar ManU spilar, það er greinilega happa.

17.07 Búinn í bili, best að leggja sig aðeins fyrir næturvaktina. Fín fyrsta umferð búin, skemmtilegur vetur framundan


Leikjadagbók Chelsea-Birmingham 12.8

Jórsalir 4, enginn bjór, reyndar til í ísskápnum en vinna á eftir, saltnammið búið sem er verra

tek bara seinni, sá lítið af fyrri en Gaupi að lýsa þannig að ég stóðst ekki mátið 

13.43 Essien að koma Chelski í 3-2, Gaupi missti sig og sagði þetta hafa verið gjörsamlega óverjandi fyrir markmanninn, í endursýningunni sást svo að þetta var lélegt hjá markmanninun og þá segir Gaupi að hann hefði átt að verja þetta, gaman að því hjá handboltaliðsstjóranum, ætli það sé ekki handboltaæfing einhvers staðar sem hann getur vierð að fylgjast með. Gaupi reynir dáldið suðurameríkuaðferðina, að æsa sig sem mest. Höddi Magg gerir þetta reyndar líka en hann veit þó eitthvað um fótbolta þannig að hann æsir sig yfir einhverju sem skiptir máli.

13.48 Fyrirgjöf hjá Chelski, ósköp venjuleg fyrirgjöf en Gaupi sagði hana þrisvar vera lúmska, stuttu seinna sólaði Glen Johnon einhver og þá var hann víst að reyna að smyrja sig í gegn, hvað ætli þetta þýði?

13.52 "Það er ekki spurning" er búið að koma nokkrum sinnum á síðustu mínútum, var að pæla í að telja hversu oft hann notar þennan frasa þegar hann kom með "það er spurning" hvort Drogba komi ekki inná fyrir Pizzarro. Ætli hann sé með svona lítil spjöld með frösum sem hann notar fyrir lýsingarnar? og ætli hann hafi síðan týnt flestum frasaspjöldunum sínum og eigi bara svona 3 eftir?

13.59 Hvers vegna er ekki bara hægt að lækka niður í þulinum, það er hálf furðulegt að mute-a alveg þegar maður horfir á fótbolta, sennilega orðinn vanur að hafa hljóðið af vellinum. Mikel kominn inná fyrir Essien, Mikel er víst "enginn aukvisi í þessum fræðum" 

14.10 Carvalho gult, hann er svona eins og Keown var, ætti að fá gult í hverjum leik, leiðindaleikmaður en góður. Birmingham búnir að fá nokkur hálffæri núna, verst að þeir geta ekki grísað inn einu í viðbót. Gaupi hefur ekkert minnst á Svetchenko, furðulegt!

14.13 Malouda útaf, hann átti að vera í Liver. Gaupi að segja að Shaun Wright Phillips hafi verið langbesti maður vallarins, " það er ekki nokkur spurning", ég sá reyndar ekki nema hluta af fyrri hálfleik en SWP hefur aðallega átt lélegar fyrirgjafir eftir ágætis hlaup, sem er nokkurn veginn par hjá honum

14.19 Sidwell átti ágætis skot rétt áðan, hvað er hann að gera númer 9?

14.20 Drogba er kominn með sárabindi um hausinn, hann hefur samt ekkert dottið í dag, ætlar hann að láta Sævar Gísla vinna sig í dett oftast og kveinka mér keppninni? Óþarfi að gefa Sævari titilinn þetta árið, hef reyndar ekki séð einn leik hjá Ungmennafélaginu í strípubænum þetta árið en grunar að Sævar hafi dottið aðeins og meitt sig, vona að þeir eigi töfrasvamp til að lækna hann

14.25 Landa sigri og vinna aukaspyrnu eru ekki góðir frasar, mætti skipta þeim frasaspjöldum út. Chelsea eru taplausir í 64 heimaleikjum í röð, það er hellingur

Leik lokið: 3-2 fyrir Chelsea, þeir voru miklu betri en þetta Birmingham plebbalið. Malouda er góður og Wright-Phillips væri toppleikmaður ef hann gæti gefið fyrir 


12-1 fyrir Arsenal

ætti staðan að vera en ekki 0-1 í hálfleik. Arsenal er búnir að vera miklu betri en hafa einhvern veginn ekki skorað. Tony Warner búinn að verja slatta í markinu hjá Fulham, hann var einu sinni í Liver eins og fleiri markmenn, í fljótu bragði man ég eftir David James hjá Portsmouth, Brad Friedel hjá Blackburn, Kirkland hjá Wigan, Carson hjá Aston Villa.

Styttist í ManU og Chelski, þeir ættu að vinna létt þannig að ágætt að Liver vann í gær.

Stórmót í golfi á Leirunni á eftir en ég missi af því, tek næturvakt á eftir hjá Voda og síðan vinna á morgun. Líklega betra að ná þá að dotta sofa aðeins áður en ég fer í vinnuna í kvöld, ef einhver er með skemmtilega linka til að tékka á í nótt þá megið þið gjarnan setja þá í komment.

 Uppfært: Arsenal vann í lokin, sanngjarnt en þeir voru heppnir að vera ekki búnir að fá á sig fleiri mörk áður en þeir jöfnuðu, Arsenal voru samt góðir, 2-2 í hálfleik hjá Chelski-Birmingham, verst a birmingham getur ekki neitt þannig að það eru litlar líkur á því að Chelski tapi stigum 


mbl.is Hleb tryggði Arsenal sigur á Fulham á síðustu stundu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband