Styttist í mót

Torres, Drogba, Rooney - sá sem skorar flest vinnur líklega mótið


Ferðalangar

Fór í 900 km bíltúr í gær með Svíana en engan kóða á Seljalandsfoss/Skógafoss/Dyrhólaey/Jökulsárlón/Geysi/Gullfoss/ViðFjöruborðið. Brill dagur sem byrjaði kl 8 í gærmorgun og lauk um miðnætti í gær. Ein sog gjarnan verður á ferðalögum vru ákveðin þemu í gangi mestan hluta ferðarinnar aðallega þó 10.sept/Lax/Okur.

Maður er eiginlega orðinn ónæmur fyrir því hversu dýrt það er að búa á Íslandi. Eiginlega það eina sem var á eðlilegu verði var maturinn á Fjöruborðinu, snilldar matur á ágætis verði. Fengum eitthvað fiskusúpusull í bolla á Jökulsárlóni á 1000 kall, bláberjamuffins á 250 kall o.s.frv. Mér fannst þetta einhvern veginn líta allt frekar eðlilega út en fattaði þetta betur þegar Svíarnir kommentuðu á þetta.

Ég vann golfmótið á Hellu á miðvikudag, reyndar er Jónatan skráður með sama punktafjölda og lægri forgjöf en hann er forgjafarsvindlari og því verður breyttTounge


bolti


Ef niðurhal væri löglegt

væri ég búinn að ná í fyrstu 4 þættina af Burn Notice og væri um það bil að tékka á þeim


Enn einn hlekkurinn í keðju skynsamlegra ákvarðana

Venjulega fylgir svona fréttum að menn hafi fengið að sofa úr sér Smile  áður en tekin er skýrsla af þeim. Hefur væntanlega verið gaman hjá honum að láta renna af sér á meðan hann var í skýrslutöku.
mbl.is Lét ófriðlega í flugi og veittist að lögreglumönnum við handtöku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjónvarpsgolf

Af hverju ætli golf virki svona auðvelt í TV? Kúlan fer yfirleitt nokkuð beint og frekar langt. Einhvern veginn ekki alveg eins og þegar ég slæ. En ég fæ allavega meiri æfingu útúr þessu og tek fleiri sveiflur þannig að ég hlýt fljótlega að ná þessum gaukum.

Best að spila sjónvarpsgolf í miðvikudagsVodamótinu á Hellu.


Ef niðurhal væri löglegt

Myndi ég hiklaust mæla með Rescue Me


Leikir - Plögg

Fyrir þau okkar sem eiga alltaf nóg af aukatíma

www.games.is/distributionmæli með þessum:

http://mega.is/wg/product/product=26 - orðaleikur á ensku

http://mega.is/wg/product/product=16 - Goldminer - snilldartímaeyðsla

Séð og heyrt fyrirsögn

eru sennilega ekki í fríi, hljóta að vera hættur og séð og heyrt liðið búið að taka við blaðinu
mbl.is Harry Potter allur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvenær ætli þeir komi úr sumarfríi á Mogganum

Eru þetta margir friðir þá?
mbl.is Bolton tapaði í úrslitum Friðarbikarsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband