Færsluflokkur: Tónlist

Jón Bjarni

vinur minn heldur mikið uppá Ace of Base. Jón Bjarni er annars sá sem er hvað líklegastur til að slá metið mitt í hlekkjum í keðju skynsamlegra ákvarðana.

anywho... hér er uppáhaldið hans


Meira Idol

Ég hef afar gaman af Idol, reyndar finnst mér fyrstu þættirnar sístir en ágætir engu að síður, einhvers staðar á síðunni er fyrsta testið hennar Paris Bennett sem var rugl gott. 

Allavega er hér Jessica Brown að syngja lag sem Carrie Underwood á einhvers staðar hérna á síðunni

Þessi er ágætur en með afar sérkennilegt hobbí - Brandon Green


Gott lag

sem merkilegt nokk var notað aftur og aftur í dansþættinum áðan

Waiting on the world to change


American Idol Season 7

byrjar í kvöld. Það er ekkert sérstakt leyndarmál að ég fíla þessa þætti og er búinn að sjá allt nema hluta af seríu 3, ef niðurhal væri löglegt þá mætti einhver benda mér á hvar ég finn þá seríu.

Í tilefni þessa merka dags ætla ég að setja inn eitthvað með þeim 6 sem hafa unnið keppnirnar til þessa, allt alveg ágætis fólk nema reyndar Taylor Hicks sem vann fimmtu seríu, hann er gerpi.

Kelly Clarkson, Ruben Studdard, Fantasia Barrino, Carrie Underwood, Taylor Hicks, Jordin Sparks.

 


Gleðilegt ár

Bestu kveðjur til allra sem ég þekki, mikið eða lítið. Hvort sem þið búið á Ólafsfirði eða Akureyri, í Reykjavík eða London, vona ég að þið hafið það sem allra best.

Kveð árið með snillingunum í Baggalúti


Jólalög

Það er eiginlega skylda að hlusta alltaf öll jólalögin hjá þessum snillingum. Er eiginlega orðið ómissandi. Var hins vegar að hlusta á þetta lag áðan,

Bing Crosby sem sagt

Kelly Clarkson að sjálfsögðu, Blue Christmas

 

þó hún sé ekki beint Elvis, en það eru reyndar fáir á því level-i

 

Mariah Carey

 

Band Aid- Do they know it´s Christmas, er einhver brenglaðri lína til í jóla(popplagi) en þegar Bono gaular, "tonight thank god it´s them instead of you"

 


Kúl gaukur

Ég kann afar marga popptexta en er eiginlega aldrei beðinn um að syngja aftur.

Veit ekki hvort það er tengsl á milli þess og að ég sé með Losing a Friend með Nylon sem hringitón.

Veit heldur ekki hvort það er þess vegna sem sem ég pæli ekki sérstaklega mikið í tónlist.

Veit ekki hvort ég er síðasti Íslendingurinn til að uppgötva að Mugison er góður.

Veit ekki almennilega hvert af ofantöldu er réttast.

Veit þó að þetta er gott lag

 


Mugiboogie

ég kaupi eiginlega aldrei diska, allavega ekki fyrir sjálfan mig, keypti hins vegar þennan disk í dag

Mugiboogie

Er búinn að hlusta á hann einu sinni. Glettilega skemmtilegur, eiginlega snilld


Enn einn hlekkurinn í keðju skynsamlegra ákvarðana

hjá þessum furðufugli Bush. Það sem er næstum jafn slæmt er að demókratar munu líklegast stilla fram Obama eða Clinton á móti einhverjum repúblikana. Það er því miður ekki séns að bandaríkjamenn kjósi svartan mann eða konu sem forseta. Ég þekki lítið til þessarar náunga sem eru í framboði hjá repúblikönum annarra en Giuliani en veit ekki alveg hversu mörg ár í viðbót af svona Bushtýpustjórn heimurinn þolir.

(**Leiðrétt eftir komment)

Oscar Wilde sagði einhvern tímann "America is the only country that went from barbarism to decadence without civilization in between" og þrátt fyrir að ég sé almennt mjög hrifinn af bandaríkjamönnum þá er ég að verða meira og meira sammála honum.

Björn vinur minn sendi mér einhvern tímann linkinn á þetta lag með Pink en best að ég endi á að setja það aftur inn.


mbl.is Demókratar gagnrýna Bush
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Matur núna og getraunir á eftir

er á leið í naustabryggju í mat en mæti á eftir með getraunseðil vikunnar, 64 eða 128 raðir

Þangað til þá getið þið glaðst yfir því að nóvember er að klárast, framundan skemmtilegasti mánuður ársins.

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband