Færsluflokkur: Íþróttir

Afskaplega eðlilegt

Hann er í sterkri stöðu. Er með fínan samning við Barcelona og á 3 ár eftir af honum. Af hverju ætti hann að fara eitthvað án þess að fá hækkun þegar það eru nokkur lið sem vilja fá hann. Það er allt önnur spurning hvort hann eigi skilið að vera á svona háum launum en ég sé ekkert að því, hann hefur vissulega verið varamaður en það hefur þó verið í góðum liðum, ekki eins og að hann hafi verið á bekknum hjá Stoke.

Þetta verður væntanlega síðasti stóru samningurinn sem hann gerir og sniðugt hjá honum að nýta þetta tækifæri til að hækka aðeins launin og væntanlega lengja samninginn aðeins. Miðað við launin sem West Ham er að borga gaukum eins og Lucas O´Neill þá sé ég ekki annað en að Eiður endi þarna með 4-5 ára samning og 100þús pund á viku. West Ham á líka slatta pening inni eftir að Newcastle bjargaði þeim frá því að kaupa Kieron Dyer og sjúkraþjálfarann hans, hann átti eflaust að fá 60 þús á viku þannig að West Ham er þá í raun að fá Eið á 40 þús pund á viku sem er nokkuð vel sloppið fyrir góðan leikmann í ensku úrvalsdeildinni.


mbl.is Segir launakröfur Eiðs Smára háar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

12-1 fyrir Arsenal

ætti staðan að vera en ekki 0-1 í hálfleik. Arsenal er búnir að vera miklu betri en hafa einhvern veginn ekki skorað. Tony Warner búinn að verja slatta í markinu hjá Fulham, hann var einu sinni í Liver eins og fleiri markmenn, í fljótu bragði man ég eftir David James hjá Portsmouth, Brad Friedel hjá Blackburn, Kirkland hjá Wigan, Carson hjá Aston Villa.

Styttist í ManU og Chelski, þeir ættu að vinna létt þannig að ágætt að Liver vann í gær.

Stórmót í golfi á Leirunni á eftir en ég missi af því, tek næturvakt á eftir hjá Voda og síðan vinna á morgun. Líklega betra að ná þá að dotta sofa aðeins áður en ég fer í vinnuna í kvöld, ef einhver er með skemmtilega linka til að tékka á í nótt þá megið þið gjarnan setja þá í komment.

 Uppfært: Arsenal vann í lokin, sanngjarnt en þeir voru heppnir að vera ekki búnir að fá á sig fleiri mörk áður en þeir jöfnuðu, Arsenal voru samt góðir, 2-2 í hálfleik hjá Chelski-Birmingham, verst a birmingham getur ekki neitt þannig að það eru litlar líkur á því að Chelski tapi stigum 


mbl.is Hleb tryggði Arsenal sigur á Fulham á síðustu stundu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

4 4 2

Snilldarþáttur. Brill að geta horft á öll mörkin á laugardögum strax á eftir leikjunum. Vel þess virði að borga nokkra þúsundkalla á mánuði fyrir þetta.

Captain Fantastic

Þetta verður ekki síðasti leikurinn sem hann klárar í vetur. Ágætt að hann fór ekki til Chelski fyrir 2 árum
mbl.is Gerrard tryggði Liverpool sigur með glæsimarki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leikjadagbók Aston Villa - Liverpool 11.8

Ætla að skrifa niður það sem mér dettur í hug á meðan ég horfi á leikina í vetur, er að mestu leyti fyrir Jón Bjarna til að hann læri eitthvða um fótbolta. Mun kommenta á lýsendur og það sem fyrir augu ber. Eflaust mikið að local bröndurum og "þú þurftir að vera þarna" sögum. Uppfæri jafn óðum þannig að Jón getur horft á leikina og refreshað með reglulega millibili til að skilja hvað er að gerast.

 

Allavega, fyrsti leikur Aston Villa-Liverpool á VIlla Park í Birmingham, ég er í Jórsölum, með saltnammi og bjór, búinn að borða slatta af saltnammi en var að opna fyrstabjórinn fyrir stuttu þannig að ég þarf víst að leggja saltnamminu, fer afar illa saman.

16.10 Patrick Berger er bráðmyndarlegur, það er stutt í leik og verið að fara yfir sumarið hjá liðunum, væri til í að kaupa Berger aftur bara fyrir liðsmyndina. Lýsendur Gummi Ben og Óli Kristjáns, lofar góðu, GUmmi er bright gaukur og Óli veit allt, ætli það sé hægt að mute-a bara Óla?

16.28 Pennant er idjót, var að láta boltann fara á miðjunni án þess að pæla sérstaklega í því að það var enginn Liver maður þar til að taka boltann heldur Villa gaukur, Carra reddaði honum

16.31 Liðið er Reina, Finnan, Carra, Agger, Arbeloa, Pennant, Gerrard, Alonso, Riise(afar gott fyrir draumaliðið mitt), Kuyt og hinn gullfallegi Fernando Torres, hann er sérstaklega vel greiddur í dag

16.32 Eftir 15 mínútur er framlag Pennant eitt misheppnað lát´ann fara og ein bakhrinding inní teig

16.36 Torres með skot yfir, hann er snöggur kallinn. Markmaðurinn hjá Villa er í búning sem er eins og karamellubúðingur á litinn

16.38 Gerri með skot sem karamellan ver ágætlega, Pennant með eitt af sínum stefnulausu hlaupum sem að þessu sinni endaði reyndar í því að Gerri fékk boltann. Wilfried Bouma er vinstri bakvörður hjá Villa, hann var miklu betri en þetta í Manager

16.40 Óli að segja okkur að Pennant sé ekki mesti og besti skallamaður í heimi, takk fyrir það Óli

16.44 Shit, Torres straujaður og Mellberg AIK gerpi fær gult. Auki hjá Liver 10 metrum fyrir utan teig, kom lítið útúr því. Torres heill samt, sem er gott. 27 búnar og Liver er heldur sterkara

16.48 Torres snéri sér við, klobbaði einn inní teig og skaut rétt framhjá, trix

16.50 30 mín búnar, 1-0 Liver, Torres brenndi af í dauðafæri, Kuyt sett´ann fyrir og Martin Laursen afgreiddi hann vel í netið. Samkvæmt Óla eru Kuyt og Torres greindir knattspyrnumenn(bætti svo við þ.e.a.s. ef hægt er að segja svo)

16.53 Það er ágætis harmónía hjá Gumma og Óla, kommenta yfirleitt um eitthvað sem actually er að gerast í leiknum en taka ekki Arnar Björns á þetta og bulla, bara til að segja eitthvað

16.56 Liver í enn einni sókninni, Gerri með skot yfir eftir fínt spil, var næstum búinn að gleyma hvað Kuyt hleypur mikið, hann er að allan tímann

16.58 Reo-Coker varði skot frá Barry, Bellamy, sú mikla mannvitsbrekka sagði að Dyer væri líkur Reo-Coker nema að Dyer gæti eitthvað í fótbolta

17.01 Óli að gagnrýna langa bolta hjá Villa, góður punktur hjá honum, Villa eru að reyna taktíkina sem Inspector Clouseau notaði hjá Liver, einn langan á stóra  gaukinn, látum svo litla manninn hlaupa í kringum hann, áferðarfallegt Tounge

17.06 Hálfleikur-Liver búnir að vera töluvert betri, Villa ekki gengið sérstaklega með einn langan kerfið sitt, þeir áttu reyndar 2-3 ágætis sóknir í lokin á hálfleiknum, það gerðist, merkilegt nokk, þegar þeir tóku boltann niður og reyndu að spila smá. Óli benti á ágætis punkt sem var búinn að vera að bögga mig allan hálfleikinn og reyndar alltaf þegar Pennant spilar. Hann hjálpar bakverðinum ekki neitt, hleypur yfirleitt á vitlausum tíma og á vitlausa staði. Þetta þarf ekki að vera flókið, hliðarlínan sér um helminginn af vinnunni fyrir hann og ef hann kæmi sér bara strax til baka og lokaði sendingarleiðinni á kantmanninn þá þyrfti hann ekki að vera að þessum sprettum sínum þegar hann fattar að hann er kominn úr stöðunni.  Kuyt og Torres virka ágætlega saman, Torres að reyna dáldið að spila miðsvæðis en Kuyt hleypur útum allt, dáldið eins og Sindri vinur minn sem gat líka hlaupið endalaust. Er ekki viss um að Kuyt verði myndarlegt gamalmenni hann er eitthvað skakkur í framan. Ekki á Rooney/Tevez level-i en samt eitthvað skakkur. Líst vel á seinni hálfleikinn, Liver er að spila ágætlega, verst að Villa -Liver á Villa Park fer alltaf 1-1

17.16 Pétur Jóhann er rugl fyndinn í þessum Thulse auglýsingum. "erum á svo mikilli ferð að þessi belti gera ekkert gagn"

17.21 Seinni að byrja, mikið vildi ég að Rafa tæki Pennant útaf eða fengi hann allavega til að hjálpa Finnan

17.23 Riise með skot ágætt skot fyrir utan teig og svo strax á eftir skalla fyrir utan teig, skotið var betra

17.25 Pennant var að sóla 3, nei annars, þetta var sami gaukurinn þrisvar af því að Pennant snýr sér dáldið mikið í hringi

17.28 John Carew er svona 3 metrar og 300 kíló

17.30 Gummi Ben að segja okkur að það vantaði meiri greddu í þá sem eru í kringum Carew, vel orðað

17.31 Pennant missti boltann og hljóp svo á eftir Young og sparkaði aftan í hann. Þetta er trix sem Hörður Már (HK maður) notaði dáldið á Ólafsfirði, held að hann hafi fengið 6 spjöld fyrir að missa boltann og hlaupa svo aftan á manninn þegar hann var að elta hann, fékk svo 2 gull fyrir að sparka bolta í burtu, það er alltaf töff

17.35 Pennant að reyna að láta reka sig útaf, ætli Rafa sé að hvíla Voronin og Yossi fyrir varaliðsleikinn og þess vegna vilji hann ekki taka Pennant útaf?

17.37 hálftími eftir, Villa búnir að vera miklu betri í seinni, styttist í 1-1 sýnist mér, lítið að gerast hjá Liver

17.39 Gerri í dauðafæri eftir fínt spil, ég veit eiginlega ekki hvernig hann skoraði ekki, fór á "viðkvæman" stað á Gardner, miðað við eymdarsvipinn á honum þá hefði hann líklega viljað fá boltann í markið frekar en á þennan stað

17.42 Kuyt tók þríhyrning við Mike Riley, sem er ekki óvenjulegt nema fyrir þær sakir að Riley er dómarinn

17.43 Barry spjaldaður fyrir leikaraskap, fyrir utan teig. Man ekki eftir því að hafa séð það áður

17.44 Gerri með skot eftir hratt upphlaup sem karamellan varði vel, Riise með rauða hárið með hvítu strípunum að taka horn

17.48 Liver búnir að vera heldur skárri síðustu mínútur, tæpar 20 eftir, enn bólar ekkert á skiptingu fyrir Pennant

17.50 skipting á 73 mín, Ryan Babel inná fyrir Pennant, Babel er varla mikið verri varnarmaður. Pennant er ágætur sóknarmaður og gefur fantafyrirgjafir en spurning hvort að maður geti lifað með svona skelfilegum varnarleik

17.54 Carragher er skemmtilega þvælinn, hann er einhvern veginn alltaf fyrir köllunum í hinu liðinu. Babel virðist vera trukkur, stór og sterkur náungi og í þeim töluðu orðum kemur Voronin inná fyrir Torres. Rafa greinilega búinn að ðákveða að gefa skít í varaliðsleikinn og láta Voronin spila þennan leik

17.58 Babel virðist ekkert vera að farast úr tækni, hann er kannski stressaður

18.00 Víti á Liver, Carra tók hann með báðum höndum

18.01 1-1 Barry úr víti, það var engin hætta þegar Carra tók hann með báðum, þessi leikur á hvort eð er að fara 1-1 á hverju ári þannig að þetta kom ekki mikið á óvart

18.02 Gerri að fá aukaspyrnu eftir að ekki var brotið á honum en hann vildi fá auka, tók síðan aukaspyrnuna og smellti honum í skeytin, 2-1 fyrir Liver. Fáránlega flott mark en Liver átti samt ekki að fá aukaspyrnuna, we´ll take it

18.07 Momo inná fyrir Kuyt, 90 mínútur búnar, 4 mínútum bætt við.

18.09 2 mínútur eftir, það er dáldil pressa á Liver núna. Momo missti boltann á fáránlegan hátt þegar hann gat komið honum uppí hornið og tafið, merkilegt að menn læri þetta ekki.

18.12 Leik lokið - Aston Villa-Liver 1-2. Ágætis leikur sem við erum ánægðir með. Captain fantastic vann þetta eins og svo oft áður. Í heildina þá spilaði Liver þokkalega vel. Vörnin var solid og kláraði það ágætlega að díla við Carew og félaga. Finnan átti í smá vandræðum með Young en fékk reyndar ekki mikla hjálp. Arbeloa er svona leiðindavarnarmaður, hann gerir sjaldan mistök og spilar stöðuna sína vel. Carra og Agger skiluðu sínu, vítið sem Carra fékk á sig var reyndar dáldið fyndið, honum tókst að þvæla boltanum fyrst í hægri höndina og síðan þá vinstri og það má ekki taka með báðum höndum. Miðjan var betri í fyrri en seinni, Alonso miðlar boltanum yfirleitt vel og Gerri er kraftmikill, þeir áttu reyndar í smá vandræðum með aukamanninn á miðjunni enda fengu þeir litla hjálp frá Pennant. Riise spilaði vel, hann skilar yfirleitt sínu þó hann kunni reyndar ekki að sóla menn, hann notar dáldið reynaðhlaupígegnumhann trixið. Þetta var síðan nokkuð hefðbundinn leikur hjá Pennant, hann á 2-3 góðar sendingar en ef þær skila ekki mörkum þá er eiginlega ekki hægt að nota hann því færslurnar hans eru ekki góðar, hann er yfirleitt lengi að koma sér á réttan stað og virðist ekki almennilega meðvitaður um hvar hann á að vera eða hvað hann eigi að gera varnalega. Torres og Kuyt spiluðu vel, báðir virkilega duglegir og hættulegir, líst vel á þetta senterapar okkar. Varamennirnir voru ágætir nema hvað Momo má ekki reyna að sóla, hann hlýtur að fatta það á endanum. Babel átti ágæta spretti en virtist stressaður eða eitthvað, sést stundum á því hvernig menn þvælast með boltann þegar þeir eru að rekj´ann, hann virkar fljótur og sterkur en það reyndi svo sem ekki á fyrirgjafir hjá honum. Voronin fékk ágætis upphitun fyrir varaliðsdeildina þar sem hann á klárlega heima. Í heildina sem sagt ágætur leikur sem við áttum skilið að vinna miðað við færi en megum þakka fyrir þrjú stig eftir vítið. Óli og Gummi Ben voru fínir í lýsingunni, þeir þekkja báðir fótbolta og því var aukabullinu haldið í lágmarki. Góður dagur sem sagt


Tímabilið búið hjá Tottingham

Þetta var nú ágætt season hjá þeim, þeir duttu ekki úr séns fyrr en 11. ágúst. Er að horfa á WH-City, staðan er 0-1, rúmar 20 eftir, það er reyndar viðeigandi tala því einhverra hluta vegna hefur Arnar Björnsson minnst cirka 20 sinnum á það hvað Kasper Smeichel sé óöruggur, veit ekki alveg hvað hann er að fara, það hefur lítið reynt á vinalega drauginn og hann hefur afgreitt sín mál alveg ágætlega.

Innan við klukkutími í fyrsta stórleikinn, verst að leikurinn fer 1-1 en Torres skorar þó allavega


mbl.is Keane ánægður með afmælisgjöfina gegn Tottenham
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ef veðmál væru lögleg

Væri þetta getraunaseðill vikunnar:

Kerfi S3-3-24

kr. 240

1. Kalmar-Gautaborg 1

2. AV-Liv X2

3. Bol-Newc 1X2

4. Derby-Portsm 1

5. Everton-Wigan 1

6. M´boro-Blackburn 1X2

7. WH-Man City 1X

8. Barnsley-Cov 1

9. Burnley-WBA 1X2

10. Cardiff-Stoke 1

11. Ipsw-Sh.W 1

12. Prest-Norw 1

13. South-CryPal 1X 


Ef veðmál væru lögleg

hefði ég tapað á KR-Valur leiknum, hvar ætli delete takkinn sé fyrir færsluna frá því í gær, hmm..

Markús vinur minn kallar mig Lengjuna eftir að ég sannfærði þá að vera með í Lengjukerfi með mér á Akureyri, mikil handavinna enda þarf að fylla út bunch af seðlum. Basically gengur þetta út á það að vera með 2 leiki rétta og svo græðir maður á öllum jafnteflum, hljómar flókið en er afar einfalt. Allavega, ég tel mig alltaf hafa rétt fyrir mér og merkilegt nokk unnum við slatta fyrstu vikuna og litum framhjá því að þetta var að mestu leyti grís Smile, við hreinsuðum upp gróðann á nokkrum vikum en fyrir hverja viku var ég jafn pottþéttur á því að að við gætum ekki tapað. Eftir það heiti ég bara lengjan hjá Markúsi, þeim mikla snillingiWink

Það er framhald á sýningum frá íslandshestahlaupi í útlöndum, ég gæti skilið ef þetta væri keppni á milli hesta, svona eins og frjálsar. Þetta er hins vegar einhvers konar stílbrigðakeppni, reyndar svo morkið að ég er núna að horfa á þátt með hárgreiðslumanni og finnst þetta helv... fínt miðað hestaþátinn, greinilega ekki fyrir alla að horfa á hestaTV, sennilega eitthvað sem maður þarf að taka þátt í til að fíla. Best að enda þetta á einhverju sem tengist hrossum, country er þá sennilega næst, carrie underwood verður það þá þar sem að þetta lag er í ipodinum mínum, heitir jesus take the wheel, gott lag


Ef veðmál væru lögleg

væri æði að sjá hann spila vinstri bakvörð á móti Ronaldo, það er svona 1,10 í stuðul að hann fái rautt í þeim leik, vonandi verður það nægilega seint í leiknum til að það hafi ekki of mikil áhrif. Fínt að fá hann í staðinn fyrir Sami. Hann er klárlega velkominn í Liver enda einn af fáum ManU köllum sem við gætum notað
mbl.is Heinze ítrekar að hann vilji fara frá United
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Draumaliðsleikur

Er hérna http://fantasy.premierleague.com/

Deildin heitir Vodadeild, opin öllum sem ég þekki, ég reyndar vinn venjulega svona deildir en þið getið keppt um annað sætið. Skráið ykkur og veljið lið fyrir 11.8

 

Kóðinn í deildina er 640384-113221


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband