Færsluflokkur: Enski boltinn

Leikjadagbók Liverpool-Manchester United 16.12.2007

Naustabryggja 29, viðstaddir Aron Freyr sérlegur aðstoðarbloggari og fyrrum landsliðsfyrirliði Jón Pétursson. Sigfríð er í þessu að negla einhvern nagla í vegginn, ég bíð bara eftir að hún dragi fram ryksuguna. Gaupi er með hárkolluna hans Pat Riley í viðtali og Steingrím égmanekkihversson.

13.15 Hárkollan hans Pat Riley heldur því fram að Van Der Saar sé besti markvörður Englands, skulum giska á að hann haldi með ManU.

13.18 Inspector Clouseau er á svæðinu, hann var að heilsa Gerra og Rudolf með rauða nefið, nefið á Ferguson gefur til kynna að hann hafi fengið sér eins og einn bjór um ævina.

13.21 Inspector Clouseau kom með ágætis punkt, ManU eru líklega besta enska liðið í að breika. Spái 3-0 fyrir Liver og þremur gulum spjöldum tengdum dýfum hjá Ronna. Aron Freyr spáir 2-1fyrir Liver og fyrrum landsliðsfyrirliði Jón Pétursson spáir 1-2 fyrir strákunum hans Rúdolf

13.26 Arnar og Logi í settinu, You´ll never walk alone hljómar, það er allt að gerast

13.28 Reina, Arbeloa, Carra, Sami, Riise, Yossi, Gerri, Mascherano, Harry, Kuyt og hinn gullfallegi Fernando Torres. Ronni, Shrek og Quasimodo eru í liðinu hjá ManU

13.31 ManU byrjar með boltann, það skiptir alltaf miklu máli í fótbolta

13.32 Gerri með smá sólatæklingu, gott að láta vita af sér

13.33 Vidic braut á Torres, það verður ekki í síðasta skipti, Gerri með ágætan auka, Kuyt með skot yfir

13.35 Halsey að prófa flautuna, hún virkar

13.36 Liver búnir að vera töluvert betri fyrstu 5, lítið flæði ennþá hjá ManU, það breytist væntanlega

13.38 Arnar búinn að fara fram á 2  gul spjöld, hvorugt brotið var gróft og klárlega ekki gult á fyrstu 5 mínútunum

13.40 Ronni með gott run og skot í belginn á Carra

13.41 Ómar vinur minn að kommenta, hann er markmaður, spáin hans eftir því

13.42 Búnar tíu, lítið verið að gerast svo sem, Carra með nýtt trix, reyna að vippa 50 metra, boltinn fór svona 3

13.43 Gleymdi að minnast á að Ómar vinur minn er ekki sérstaklega hávaxinn markmaður, hann nær samt uppí slá, allavega á litlu marki

13.44 Myndin farin í crap, það er ekkert spes í svona leik

13.45 Ágætis sókn hjá ManU, Carra reddaði með einhverju teygjasigpotaboltatrix, Evra með fyrsta gula, fyrir að brjóta á Yossi, auki hjá Liver á ágætis stað

13.47 Wes Brown, jebbs sá hinn sami og var að neita 4 ára samningi með 50k á viku, var að stíga á boltann þegar hann ætlaði að gera eitthvað annað

13.50 Fyrsti leikaraskapurinn hjá Ronna, yfir/undir á það í dag er 9, ég myndi veðja á yfir

13.52 Tuttugu búnar, það er komið meira jafnvægi í leikinn, engin færi ennþá en ekki alvitlaus leikur samt

13.53 Kuyt er ekki á Shrek, Quasimodo leveli í ófríðleika, en er ekki huggulegur samt, Carra er reyndar vinstri hafsent núna, leiðréttist hér með frá því sem ég sagði í byrjun

13.55 Gerri með eina Ninja tæklingu á Anderson, átti að fá gult en það var ekki einu sinni dæmt, reyndar vel gert hjá Anderson að vera ekkert að væla, stóð bara upp og hélt áfram, var samt gult

13.57 Riise að láta Hargreaves heyra það eftir að hann trampaði aðeins á hann. 25 búnar og kominn tími til að spila fótbolta, skyldutæklingarnar búnar, Liver með horn

13.59 Anderson reddaði á línu eftir smá ævintýri hjá Van Der Saar. Evra meiddi sig á auglýsingaskilti, ManU átti að fá horn en það telur lítið þegar dómarinn ákveður annað

14.02 gott run hjá Anderson en Gerri varðist vel. Anderson er góður, enda Brassi

14.03 Van Der Saar með rugl úthlaup, klafs og Evra reddaði vel á línu, Gerri og Anderson fá báðir spjald fyrir eitthvað langt frá boltanum

14.05 Riise með skot fyrir utan teig með hægri, það fór ekki á markið

14.06 Gerri að renna sér í Anderson, spurning að renna sér ekki allt of mikið þegar maður er kominn með gult

14.07 Wes Brown togaði í Harry, það er gult, Gerri með auka slatta fyrir utan teig

14.08 Gerri með skot í vegginn, Torres með framhjá eftir frákastið

14.09 Liver búnir að vera betri í smá tíma núna, það telur samt lítið ef menn skora ekki

14.11 Jón P að segja skemmtilega sögu af Brian Clough, eftir eitthvað ævintýri hjá einum varnarmanninum þá var Clough ekki par ánægður, sðurði varnarmanninn hvort hann hefði einhvern tímann verið sleginn í magann. Varnarmaðurinn var hálf hissa á þessu en sagðist ekki hafa lent í því, Clough kýldi hann þá í magann og saðgi, nú hefurðu verið sleginn í magann. Clough þessi fékk margar skemmtilegar hugmyndir í fótbolta, Þorvaldur Örlýgsson spilaði hjá honum hjá Nott For og var tekinn útaf í næstum hverjum leik, skyldi ekkert í því en áttaði sig svo á því að eftir að hann skipti um númer þá var hann aldrei tekinn útaf. Clough ákvað þá víst að taka alltaf þann sem var númer 7 útaf. Quasimodo að skora ágætt mark, 0-1 fyrir ManU, Liver refsað fyrir að nýta ekki færin, það gerist dáldið oft. Yossi ákvað að passa stöngina þegar boltinn var sendur út, það er verra þegar allir aðrir fara út, Tevez var líka skemmtilega einn og réttstæður þegar hann skoraði

14.21 Skemmtilegur fídus á þessu moggabloggi, maður getur útilokað fólk frá því að skrá komment Smile, þægilegt þegar Liver er undir á móti ManU. Sanngjarnt eiginlega, ekki það að ManU hafi verið mikið betri en þeir nýta færin.

14.24 Hárkollan hans Pat Riley  er ekki ósátt við stöðuna, Steingrímur er víst Ólafsson

14.26 Gaupi, hinn mikli knattspyrnuspekúlant var að segja okkur að Manchester hafi byrjað betur, hann er sennilega sá eini sem tók þá ekki eftir því að Liver var með boltann fyrstu 5 mínúturnar. Er virkilega enginn handboltaleikur sem hann getur frekar verið að lýsa´

14.29 Caller ID er líka sniðugt stöff, þá getur maður sleppt því að svara þegar maður nennir ekki að tala um leikinn, er nefnilega upptekinn við að blogga og horfa á auglýsingar, svo getur maður líka eytt sms-um án þess að lesa þau ef hinir sömu reyna að senda sms með einhverjum kommentum 

14.33 Hárkollan hans Pat Riley telur líklegt að Gerri verði rekinn útaf um miðjan seinni, það er ekki útilokað, einhvern veginn grunar mig að það verði minnst tvö rauð, það mættu mín vegna alveg vera Evra og Brown í stað Gerra

14.40 Ég var örlítið upptekinn, leikurinn er byrjaður, búnar sjö af seinni, lítið gerst ennþá, það er hins vegar slatta pirringur 

14.43 Riise fékk korter til að gefa fyrir en tókst að gefa einhverjar plebbasendingu sem var allt of aftarlega, merkilegt hjá annars góðum spyrnumanni, Liver með gott moment í leiknum núna

14.45 Aron er ekki par ánægður með stöðuna þrátt fyrir að halda með Chelsea. Hann heldur nefnilega með hinum gullfallega Fernando Torres. Ætli það sé ekki kominn timi á Babel inn fyrir Yossi, Crouching Tiger kemur væntanlega inn einhvern fljótlega fyrir Kuyt

14.49 Liver með auka, Riise ætlar að skjóta, vonandi á markið

14.49 Hann ákvað að skjóta í hnén á manninum í miðjum veggnum, það er sjaldan hættulegt

14.51 Mér finnst að Sami eigi að vinna langa skalla á móti Shrek, hann er allavega búinn að tapa tveimur slíkum í dag, Kuyt hleypur og hleypur og hleypur. Masherano að biðja um gult og fékk það afhent, það má ekki skoppa boltanum 8 metra uppí loftið

14.54 Babel að koma inná fyrir Harry, skiptingin kemur á 65. mínútu sem er akkúrat 10 mínútum of seint, Rafa er dáldið fyrir að skipta 7-8 mínútum of seint þannig að þetta er aðeins nýtt hjá honum

14.56 Liver með ágætis tak á leiknum núna, horn hjá Liver

14.57 Ronni átti að fá auka en fékk ekki, það kemur nefnilega stundum niður á mönnum þegar þeir eru alltaf að henda sér niður, skulum kalla þetta úlfur úlfur syndrómið

14.59 Hendi á Tevez inní teig, reyndar bara önnur þannig að það var rétt að dæma ekki víti

15.01 Skot hjá Owen sem fór ekki alveg á markið, rétt samt að skjóta. Crouch að koma inná á 73. mínútu, það er passlega 9 mínútum of seint, Rafa er að færast nær parinu sínu

15.03 Anderson er maður leiksins til þessa, vörnin hjá ManU reyndar að mestu solid en Anderson búinn að vera klassa fyrir ofan aðra, korter eftir og full mikið af lélegum sendingum hjá Liver þessar mínuturnar, Babel með ágætt skot en rétt framhjá, Wes Brown með sérkennilegan skalla, almennt betra að skalla ekki beint útfyrir teiginn

15.07 Gott upphlaup hjá ManU og Shrek brenndi af í deadara

15.10 Aurelio inná fyrir Riise, John Arne skilaði sínu alveg ágætlega í dag, reyndar ekki góðar sendingar en var solid

15.12 Carrick inná fyrir Tevez, ManU eru að spila þetta alveg ágætlega, ekki mikil hætta og þeir stoppa fyrirgjafirnar að mestu, Babel er öskufljótur og tók skemmtilegt égnenniekkiaðsólaheldurhleypbaraframhjátrix, Gerri með skot yfir

15.14 Fimm eftir, það væri alveg ágætt að fá eins og eitt mark hjá Liver, tvö væru í lagi líka en ég myndi sætta mig við eitt eins og er

15.15 það er fínt að við erum með sérfræðinga að lýsa, Arnar var að koma með þetta komment "og enn líður á klukkuna" takk fyrir það Arnar, sér í lagi af því að klukkan stoppar svo oft

15.18 Van Der Saar tók fyrirgjöf, hann hefur ekki verið að taka þær allar í dag

15.19 Þremur bætt við, sjáum til hvort það nægi, það er ekki útilokað, Liver fær auka rétt fyrir utan teig, spái því að Gerri taki þennan, muna bara Gerri að skjóta framhjá veggnum eða yfir hann

15.21 O´Shea inná  fyrir Anderson, Gerri ákvað að skjóta yfir vegginn og markið, Liver endar þá 6 töpuðum stigum á eftir ManU, ekki gott því þeir eru búnir með alla heimaleikina við hin 3 stóru

15.23 Búið, endaði 1-0 fyrir ManU, sanngjarnt miðað við að þeir nýttu færið sem Liver gat ekki klárað

15.24 Hárkollan hans Pat Riley er væntanlega sátt við þetta, Arsenal-Chelsea framundan, spáin er eftirfarandi Aron: 1-0 Chelsea; Jón P spáir 2-1 fyrir Chelski, ég spái þá 3-1 fyrir Chelski 


Managerdagbók 4.12.2007

Eftir kommentið frá Sigurhirti í managerdagbókinni í gær ákvað ég að það væri best að fara aftur á byrjun. LLM er það því í dag og næstu daga, reglurnar fyrir lower league management eru í kommentinu við færsluna frá því í gær.

17.33 Tók við liði í Blue Square South deildinni, liðið heitir Thurrock, ég veit nákvæmlega ekki neitt um það en nafnið minnti mig á The Rock og það hljómaði ekki verr en hvaða annað. Þessi deild er held ég tveimur deildum fyrir neðan gömlu fjórðu deildina sem heitir víst í dag önnur deild.

17.38 Ómaríó var að poppa upp á msn og spyrja mig hvort ég væri á eiturlyfjum víst ég væri að skrifa managerdagbókSmile, nei Ómar en takk fyrir að spyrja.

19.39 Thurrock seldi 52 ársmiða fyrir tímabilið og ég vann fyrsta leik, 2-1 heima á móti Dorchester

01.36 það eru búnar 37 umferðir og ég er í 18. sæti af 22 liðum, þetta hefur gengið heldur brösuglega, besit leikmaðurinn minn er Greg Lincoln, fyrrum unlgingaliðsmaður hjá Arsenal. Mér tókst að fá tvo leikmenn að láni og fékk 2 gauka frítt. Eina vesenið er að þá vantar mig ennþá 6 nothæfa fótboltamenn og nískupúkinn sem á liðið neitar að borga 45 pund á viku fyrir scout núna, veit ekki alveg hvort náunginn á það skilið þar sem hann er með 4 í að meta ability en heila 10 í potential. Bes tað reyna að klára þessa 9 leiki sem eftir eru, ég get eiginlega ekki fallið úr þessu þannig að þetta ætti allavega að verða fróðleg sumarvertíð. Hver segir svo að ekki sé hægt að eyða tímanum í algjöra tilgangslausa vitleysu...


Managerdagbók 3.12.2007

Þar sem ég er hugsanlega ekki alveg í lagi þá er best að greina aðeins frá því sem er að gerast í manager, sem ég er að byrja aftur á. Til að gæta sanngirni þá er þetta leikur 2 frá því að ég keypti leikinn um daginn, Liver ákvað að endurnýja ekki samninginn við mig í síðasta leik, ég var sem sagt rekinn. Hef því hafið nýjan leik sem ég er nýbyrjaður á. Ætla ekki að æra óstöðugan með því að rekja frammistöðu í hverjum leik heldur koma reglulega með það helsta sem er að gerast.

Pétur Hafliði vinur minn fékk svipaðan skammt í Svíþjóð þar sem við sátum saman í leið í útileiki og hlið við hlið í búningsklefanum. Ég "leyfði" honum að fylgjast reglulega með því sem var að gerast í manager auk þess sem hann fékk yfirleitt að vita hvað var að gerast í þeim bókum sem ég var að lesa. Veit ekki til þess að Pétri hafi nokkurn tímann dottið í hug að spila manager og ég er ekki viss um að við séum með svipaðan bókasmekk, anyway...

19.53 fyrsti september 2007, búinn með 3 leiki, vinna 2 en tapa 1. Þeir leikmenn sme hafa veirð keyptir eru van der Vaart á 14,5; Landon Donovan á 5; Vagner Love á 9.25; Jérémy Ménez á 11.25 samtals 40 mills, helstu leikmenn seldir eru Riise, Momo, Voronin, Pennant, samtals 23m. Gerri meiddist í 2 mánuði og Crouch í 4(rétt þegar ég ætlaði að fara að selja hann). Best að taka til við leikinn, meira síðar.

20.04 Munaði litlu að ég gleymdi að segja frá því að ég spila svona varíant af 4-3-1-2 með (frá hægri) Reina; Finnan, Carra, Agger, Insúa; Lucas, Mascherano, Xabi; van der Vaart; Torres, Vagner Love

21.02 September búinn, ég tapaði útileiknum við Chelski en vann hina, stjórnin var þá ekki sérlega ánægð með mig, fannst ég eiga að standa mig örlítið betur, þeir vita ekkert. Gerri kominn aftur úr meiðslum en Torres meiddur í tvær vikur, tognaður á læri eftir sprett á æfingu. Er í fimmta sæti í deildinni með 5 unna leiki en tvo tapaða. van der Vaart, Vagner Love og Torres markahæstir með 2 mörk hver í deildinni. Rafael með 4 assist, spilar fremstur á miðjunni, kann ágætlega við sig þar, væri alveg til í að fá hann í hitt Liver, október framundan

22.13 Október búinn, bara tveir leikir í deildinni, vann heimaleikinn en gerði jafntefli við ManU úti, stjórnin er ennþá ekki alveg nógu sátt við mig en ég held að þeir skilji þetta ekki alveg, hmm... dáldið eins og Rafa líður sennilega. Er í fjórða sæti með nítján stig eftir níu leiki, ManU efstir með 29 eftir ellefu leiki. Lítið meira að segja um október enda fáir leikir, held áfram..

23.27 sjö unnir, þrjú jafntefli og tvö töp það sem af er, nóvember var að klárast, slatti af leikjum og svo var ég að lesa mbl.is aðeins. Hef átt í smá brasi með að skora en það ætti að reddast fljótlega, stjórn er sátt við mig núna en er að kvarta yfir einum leikmannakaupunum, kannski ekki skrýtið þar sem ég keypti Ménéz á 11.25 en kem honum eiginlega ekki fyrir í liðinu, ekki í fyrsta skipti sem það gerist, 24 stig í 12 leikjum, ManU efstir með 36 í 14, meira síðar...

00.46 tólf unnir, þrjú jafntefli og fjögur töp. Vann Arsenal 4-0 úti en tapaði fyrir einhverjum plebbum á Villa Park. Tókst annars að selja þennan Ménéz aftur á sama og ég keypti(11.25), seldi Kuyt líka, ef é ggæti nú bara losnað við Crouch og Yossi þá gæti ég keypt eitthvað af viti, veitir held ég ekki af, það er dáldið af meiðslum. Hætti þessu fljótlega en efast ekki um að þið hafið haft afar gaman af því að fylgjast með manager.


Leikjadagbók Liverpool-Bolton 2.12.2007

Jórsalir 4, engir gestir að þessu sinni. Rétt að vara lesendur við því að ég klára ekki seinni hér, þarf að fara í bolta um 16.35 þannig að ég missi af síðustu tíu.

14.50 Var að tékka á staðfestu liði. Reina, Arbeloa, Carra, Sami, Riise, Yossi, Gerri, Lucas, Harry, Crouching Tiger og Hinn Gullfallegi Fernando Torres. Er afar sáttur við þetta lið, sóknarbragur á því og Harry og Lucas í liðinu. I´m giddy

14.52 Varamennirnir eru Itandje, Mascherano, Babel, Hobbs og Kuyt, er smá spenntur fyrir þessum Hobbs, væri afskaplega gott að fá upp eins og einn kjúkling sem leggur eitthvað af mörkum. Höfum eiginlega ekki fengið upp almennilega júklinga síðan Gerri, Owen og Carra poppuðu upp. Miðað við þann fjölda kjúklinga sem búið er að kaupa þá hlýtur eitthvað að skila sér.

14.55 Sá annars unglingaliðsleik hjá Liver í gær. Það eru 3 þar sem gætu orðið góðir, Senterarnir Pourie(þjóðverji), Eccleston og bosníusvíinn Astrit Ajdarevic, Astrit þessi er svona teknísari útgáfa af Patrick Berger, sá reyndar ekki nærmynd af honum þannig að ég veit ekki hvort hann er jafn myndarlegur en hann var allavega með afar fínt hár.

15.00 Þá er þetta byrjað, Arnar er reyndar einn að lýsa en látum það ekki koma að sök

15.01 Liver byrjar á því að tjalda fyrir utan teig hjá Bolton, gæti orðið athyglisvert ef Bolton ætlar að vera þarna frá fyrstu mínútu

15.02 Smá vandræðagangur á Bolton fyrir utan teiginn hjá Liver sem endaði á skoti frá Campo af þrjátíu metrum, það er í góðu lagi, rétt í þessu reddaði einhver frá Crouch á línu eftir ágætt run hjá Yossi

15.04 Torres losaði einn Bolton gauk við gult með því að standa upp og halda áfram að hlaupa eftir að hann braut, nú var svo henid á Bolton inní teig en það er ekki víti á meðan það er bara önnur

15.06 Það er úað á Diouf, mér finnst það eiginlega óþarfi enda fullt af árum frá því að hann fór, Bolton fær þá fyrsta hornið

15.08 Hornið varð dáldið hættulegt, hef það á tilfinnunginni að horn verði eina hættan frá Bolton í þessum leik, reyndar ekki mikil vísindi það enda skorar Bolton helst eftir horn og auka, Diouf að væla eftir að fá gult, gat eiginlega þakkað fyrir að fá ekki rautt en sennilega ekki liðinn nógur tími af leiknum

15.10 Harry sprækur, Liver með fyrsta og annað hornið sitt, sem varð lítið úr

15.11 Riise með svona Kidda Tomm móttöku, tók furðulega háan bolta niður með löppunum

15.15 Fyrsta kortið búið og þetta lítur vel út hjá Liver, Harry er allavega heitur

15.16 Torres eitthvað að kveinka sér, Gerri með auka og hinn geðþekki Sami Hyypia skorar með skalla, heldur döpur dekkning hjá Bolton en ágætur skalli hjá Sami, 1-0 fyrir Liver þrátt fyrir að Arnar sé nú búinn að halda ræðu í 30 sekúndur um að þetta hafi hugsanlega, kannski, jafnvel verið rangstaða

15.18 Svona almennt þá veit það ekki á gott ef Diouf er kominn með gult snemma, hann er frekar pirraður leikmaður og lætur sig detta frekar oft, alltaf líklegur  til að fá annað gult, já víst við erum að tala um hann þá er rétt að þakka Houllier kærlega fyrir að borga tíu milljónir punda fyrir þann enda

15.20 Yossi er með dáldinn Einar Dan svip, það er eiginlega ekkert spes

15.22 Diouf eitthvað að kljást við Arbeloa og var pirraður yfir því að fá ekki auka, það gæti alveg verið að Rafa hafi sett Arbeloa í liðið bara til að pirra hann, Crouch að tala löngum skalla, er ekki hægt að ætlast til þess að tveggja metra senterinn þinn vinni allavega svona helming af löngum sköllum 

15.25 Reina í bölvuðu basli með auka, og Bolton fékk horn sem lítið varð úr

15.26 Torres fékk boltann útá kanti frekar framarlega, var kominn á ferð þegar Yossi ákvað að draga varnarmann beint í hlaupaleiðina hjá honum, hefði svona senilega verið betra að koma sér frekar í burtu eða jafnvel koma í overlap en labba eki beint í hlaupaleiðina með varnarmann í eftirdragi 

15.29 Harry með dapurt skot utan af kanti, það virkar í svona 0,1 % tilvika en allt í lagi að reyna, allavega þegar enginn er inní, æ ég veit það ekki annars, þetta virkar aldrei, betra eiginlega að tékka út og halda sókninni áfram

15.31 Crouch og Harry með tveggja hæla trix, klikkaði hins vegar þegar Crouch reyndi þriðja hælinn, örstuttu síðar reyndi Sami hæl líka, öööhhh skulum bara segja að Sami hafi dottið og hællinn ekki gengið

15.33 Carra gaf á Anelka, sennilega búinn að gleyma því að við vorum bara með hann á láni og erum löngu búnir að skila honum

15.34 Það er hellirigning í Liverpool, fer dáldið illa með hárið á Torres og Lucas

15.35 Harry með hægrisendingu á Riise, það er ágætt að hann er betri með vinstri

15.36 Ágætt upphlaup hjá Bolton, veit ekki alveg hvernig Arbeloa kom þessu í horn. Carra og Reina ákváðu að hlaupa á hvorn annan, hef ekki minnstu hugmynd um hvernig Anelka fór að því að hitta ekki opið mark, alveg stórfurðulegt 

15.39 Þetta var furðulega opið færi hjá Anelka, allavega... það eru rétt um fimm mínútur eftir af fyrri, mér þætti ágætt ef Rafa benti þeim á að ég næ ekki öllum leiknum og þeir mættu gjarnan vera búnir að skora svona tvö til þrjú í viðbót áður en ég þarf að fara

15.41 Þetta Bolton lið er dáldið furðulegt, ekki bara af því að leikurinn var smá stopp af því að Diouf þurfti að reima, lið sem spila á móti þeim enda á því að spila ekki almennilega sinn leik. Það er reyndar örugglega stór hluti af ástæðunni fyrir því þeim árangri sem þeir hafa þó náð, dáldið stórkarlalegur fótbolti. Í þeim töluðu orðum skorar hinn gullfallegi Fernando Torres gott mark eftir stungu frá Gerra, það er afar gott fyrir Liver og ekki síður hellingur af stigum fyrir draumaliðið mitt, 2-0 fyrir Liver og flautað til hálfleiks eftir nokkrar sekúndur

15,46 Hálfleikur í leik Liverpool og Bolton, staðan er 2-0 fyrir Liver. Sami og Torres skorað mörkin fyrir Liver en Anelka fékk svona þokkalegt færiErrm í stöðunni 1-0

16.01 Seinni byrjaður, liðin eru óbreytt. Crouch vann langan skalla og það rignir ekki minna núna, Riise með klassa fyrirgjöf og Crouch með skalla rétt framhjá

16.03 Gerri með eðal sendingu á Yossi sem var kominn í fínt færi en honum tókst að klúðra því alveg merkilega, náði ekki einu sinni skoti.

16.04 Harry átti nokkur skot í fyrri sem fóru flest í náungann sem stóð beint fyrir framan hann, nenniði að skila til hans að boltinn fari ekki í gegnum mannslíkamann, Gerri með gott hlaup og komst í dauðafæri en Jussi varði vel með tánni, horn

16.06 Var ég búinn að minnst á að það er rigning, skipting hjá Liver, Carra útaf, hann er þá ,meiddur, Jack Hobbs inná fyrir hann, hann er allavega massaður

16.08 Ágætis dæmi þarna um af hverju mér leiðist Arnar í lýsingum, Riise átti alveg vonlausa sendingu á Lucas inná miðjuna, Lucas rétt náði að teygja tána í boltann og Bolton náði honum síðan. Arnar kommentaði þá á að þetta hefðu verið mistök hjá Lucas, ágætt dæmi fyrir þá sem vita ekki að Arnar skilur ekki fótbolta

16.10 Shit, Torres lagði boltann á Crouch sem missti hann frá sér á vítateigslínu. Gerri með fyrirgjöf og brotið á Crouch, víti á Bolton og Gerri að fara að taka það

16.11 Öruggt hjá Gerra, 3-0 fyrir Liver og það er rigning. Sýnist enginn þarna nenna þessu lengur, ætli það megi flauta af ef bæði lið samþykkja?

16.13 Ánægður með að Hobbs sé að fá að spila aðeins, vona bara að Carra sé ekki mikið meiddur. Gaukar eins og Hobbs þurfa að fá leiki og ef ekki er hægt að treysta þeim í leik sem liðið er að rúlla upp á heimavelli þá eiga þeir ekki að vera í hópnum.

16.15 Kæmi ekki mikið á óvart þó Gerri og Torres færu útaf fljótlega, ágætt að gefa þeim smá pásu, það er allavega skárra en að setja þá á bekkinn í næsta leik af því að skiptikerfið er svo æðisleg leið tli að spara leikmenn, væri ekki nær að gefa þeim frí síðasta hálftímann hérna, þá hefu þessi leikur verið meira eins og æfing fyrir þá

16.17 Campo gaf boltann á Torres, Liver með auka á vítateigslínu sem Riise ákvað að dúndra úr, veit ekki alveg af hverju þurfti að negla svona af þetta stuttu færi, sér í lagi ef hann ætlðai síðan bara að negla í vegginn

16.19 Torres með gott run og skot rétt yfir, þetta verður væntanlega eitthvað á þessa leið þennan síðasta hálftíma

16.20 Rafa að fara að skipta, hvað ætli það verði?

16.21 Diouf á leiðinni útaf fyrir giannikoupolus, ég hélt að Rafa hefði verið að fara að skipta?

16.22 ok, nú kom það, Babel inná fyrir Harry, það má samt alveg fara að taka Gerra eða Torres útaf. Ef Torres verður svo ekki í liðinu næst af því að það verður að fara eftir skiptimiðakerfinu þá verð ég frekar pirraður. Er svona að gæla við hugmyndina að Rafa ætli bara að nota það í byrjun móts og noti bestu kallana úr þessu, er ekkert allt of vongóður en við sjáum til, Gerri fær allavega næga hvíld næsta sumar, ekki komust þeir áfram á EM allavega

16.26 Eitthvað bras við þennan auka, Riise renndi á Gerra sem síðan renndi á Lucas, hann skaut svo í einhvern Bolton enda sem renndi sér fyrir hann, gott annars hjá ManU að tapa fyrir þessu Bolton liði um daginn, til hamingju með það Ómar

16.28 Korter rúmt korter eftir og fer að stinga af í boltann, þetta er klárt hjá Liver og meira spurning um hver lokastaðan verður en hver fær stigin í þessum leik, Babel með gott run en boltinn eitthvað að þvælast fyrir Torres, Kuyt á leiðinni inná, væntanlega þá smá pása fyrir hinn gullfallega Fernando Torres

16.31 Crouch að komast einn innfyrir en hann er ekkert sérstaklega fljótur, haukurinn náði honum á svona fimm metrum.

16.32 Torres útaf fyrir Kuyt, fínt að gefa honum smá pásu, rigning og svona þannig að honum gæti orðið kalt.

16.33 Allt í lagi, ég skal spyrja, er það gott þegar miðjan þín er Campo, McCann og Speed?

16.38 Ég er farinn í bolta, þetta var fínasti leikur hjá Liver og freka þægilegur eiginlega, gott annars hjá ManU að tapa fyrir Bolton fyrir nokkrum dögum, til hamingju með það Ómar Smile


Ef veðmál væru lögleg

þá væri þetta getraunaseðill vikunnar

1. A.V-Arsenal 1X2

2. B´burn-Newcastle 1X

3. Portsm-Evert 1

4. Reading-Boro 1X2

5. Sunderland-Derby 1

6. Wigan-Man.City 1X2

7. Blackpool-QPR 1X

8. Coventry-Sheff.U 1

9. C.Palace-WBA 1X2

10. Leicester-Southhampton 1X

11. Plymouth-Scunthorpe 1

12. Sheff.Wed-Colchester 1

13. Watford-Bristol City 1X

S 4-4-144

Eins og ávallt þá eru 10% fundarlaun ef einhver afritar

lengja dagsins er

Portsmouth 1.95

Sunderland 1.55

Coventry 2.10

Sheff Wed 1.75

Stuðull 11.11 - leikirnir voru ekki sérstaklega valdir af því að stuðullinn varð töff


Leikjadagbók Newcastle-Liverpool 24.11.2007

Jórsalir 4, sérlegur aðstoðarbloggari Aron Freyr.

12.33 Er að melta þetta byrjunarlið, Reina, Finnan, Carra, Sami, Arbeloa, Gerri, Momo, Leiva, Kewell, Kuyt og hinn gullfallegi Fernando Torres. Sýnist Gerri þá vera á hægri kantinum, verður gaman að sjá hverju Momo tekur uppá í þessum leik, hann hefur allavega hinn hárprúða Lucas Leiva, fyrirliða brasilíska U-21 liðsins, sér við hlið. Ég ætla að spá því að betra spil komi frá brassanum. Ég spái 3-0 fyrir Liver, Aron Freyr spáir 3-0 fyrir Liverpool, merkilegt nokk vissi hann ekki hverju ég hafði spáð.

12.41 Þegar Minime er spurður um fullt nafn á Torres þá kemur með bros á vör og spænskum hreim, Hinn Gullfallegi Fernando Torres, klókur piltur sem ég á Smile

12.43 Gummi Ben er einn að lýsa, það er ágætt, fókusinn verður á fótbolta næstu 2 tímana allavega. Lucas Leiva er með svona seventíes hágreiðslu, sítt hár og hárband, ég hef séð Jón Pétursson, fyrrum landsliðisfyrirliða, með svona svipaða hárgreiðslutýpu í leik

12.45 Itandje, Riise, Crouching Tiger, Babel og Mascherano á bekknum, koma svo

12.47 Liver byrjaði með boltann, er að spá í eitt, ég er ekki viss um að Torres sé mikið verri skallamaður en Crouch, hann er allavega gormur

12.49 Martins í liðinu hjá Newcie Brown Ale, hef ekki almennilega skilið af hverju hann fær ekki að spila meira, góður leikmaður, crap, nú meiddi Gerri sig eitthvað

12.51 Það má ekki stökkva á bakið á Torres, samt ekkert dæmt. Newcastle maðurinn meiddi sig eitthvða við það, gott á hann, Gerri er eiginlega ekki á hægri, er að melta hvernig þeir eru eiinlega að spila, kem að því á eftir betur

12.55 Mér sýnist Momo vera svona hægra megin á miðjunni, getum samt seint kallað hann flanker, Gerri með auka rétt fyrir utan teig eftir að brotið var á Torres, Momo tókst að fá dæmda á sig aukaspyrnu þegar hann stóð í veggnum, það er nýtt trix

12.57 Ok, ef ég væri þjálfari Newcie Brown þá myndi ég benda þeim á að það er enginn á hægri kantinum á Liverpool, skiptir reyndar meira máli þegar þeir ná aksjúallí boltanum en allavega, Torres að reyna laumast til vinstri trixið sitt og fékk horn, kom ekkert útúr horninu

13.00 Munaði engu að Momo hitti á samherja, ég spái því að það gerist í leiknum. Ég er afar sáttur við að Harry er kominn í liðið, hann er góður, hlýtur samt að vera skrýtið fyrir fólkið í kringum liðið að sjá hann án þess að vera með sjúkraþjálfarann í eftirdragi

13.02 Jamms, það er staðfest, Momo er á hægri kantinum, skulum gera ráð fyrir því að Finnan eigi að koma dáldið upp kantinn þó það væri fróðlegt að sjá hvað gerist ef Momo reynir svona beyglufyrirgjöf

13.05 Lucas búinn að fá tiltal vegna brotafjölda, það er svona hálft gult ef þú ert varnarmiðjumaður, hann má allavega ekki brjóta neitt næsta korterið

13.07 Liver eru með boltann eiginlega allan tímann, Newcie Brown reynir síðan að laumast upp hægri kantinn þegar þeir fá boltann, sjá ekki að það er hinn kanturinn sem er auður, Momo reyndi alveg nýtt trix núna rétt fyrir utan teiginn hjá Newcie Brown, hann skaut með hægri í vinstri og boltinn skoppaði einhvern veginn svona tíu metra áfram, veit ekki alveg hvað átti að gerast þarna en þetta virkaði allavega ekki

13.09 Ágætt skot hjá Gerra en Given varði, Carra með verra skot og enginn þurfti að verja, útspark

13.12 Heldur þröngt spil hjá báðum liðum, engin færi ennþá en Liver klárlega betri það sem af er. tuttuguogfimm búnar, 0-0

13.15 Gerri með fáránlegt mark úr auka, Given átti varla séns, rétt hjá Gumma, þetta var frábært mark, 1-0

13.16 Momo og Kewell að skipta aðeins um kanta, það losnar kannski um Harry og breytir ekki alveg llu hvort Momo sleppir því að gefa fyrir á hægri eða vinstri. Vissuð þið að í USA selur Dominos hamborgarapizzu, það er þá fyrir feitt fólk sem er of latt til að velja

13.19 Liver er með góða stjórn á þessum leik, reyndar ekki mikið af færum en Newcastle eru að spila það illa að áhorfendurnir eru að úa á þá

13.22 Ætli það sé vænlegt í toppbaráttu ef Nicky Butt og Alan Smith eru lykilmenn á miðjunni hjá þér, hefði Sir Alex ekki fattað það og haldið þeim hjá ManU, kannski hluti af ástæðunni fyrir því að Newcie Brown er sjladnast í toppbaráttu

13.24 Momo er dáldið spes leikmaður, hann er góður í að vinna bolta fyrir bæði lið, Smith átti ágætt skot rétt framhjá, Newcastle eru þá búnir að eiga allavega eitt skot nálægt marki. Finna átt furðulega fyrirgjöf rétt í þessu, Torres kom á ferðinni á nær en Finnan ákvað að gefa á engan á fjær í staðinn, dáldið spes

13.28 Alan Smith með stökktæklingu, það má held ég frekar ef dómarinn veit að þú ert nöts. Gummi með spes tölfræði, Smith á 20 landsleiki fyrir England, það er hreinlega stórfurðulegt, aðallega í ljósi þess að hann er ekki góður

13.30 Ekki mikið sést til Kewell ennþá, fékk þó horn núna sem lítið varð úr, eitthvað vesen á Gerra og Leiva

13.32 Furðuleg atburðarás, Given varði með öxl langt fyrir utan teig en ekkert dæmt, Torres  fékk síðan boltann fyrir utan en skaut í stöngina, ekkert spes hjá honum en örlítil pressa, hann átti samt að skora, ekki síst vegna þess að hann er fyrirliði í draumaliðinu mínu, 0-0 í hálfleik og Liver búnir að vera miklu betri

13.50 Seinni að byrja, ég tafðist örstutt þar sme að ég var að raka mig, Liver fékk ódýrt horn sem Kuyt skoraði uppúr, ekki slæmt það, 2-0 fyrir Liver, Kewell núna með gott run og fékk auka rétt fyrir utan teig sem hann ákvað að skjóta síðan í vegginn

13.53 Gummi ruglaðist aðeins, það var slatti af fólki sem kom seint í stúkuna eftir hléið en hann hélt að slatti þeirra væri að fara

13.55 Emre á leiðinni útaf en hinn geðprúði Joey Barton kemur inná í staðinn, það ætti að verða meira aksjón þá, það er dáldið spes þegar miðjan hjá liðinu er Barton, Butt og Smith, ef þetta væri keppni í hóptæklingum þá væri þetta allavega óvinnandi vígi

13.57 Harry næstum búinn að koma Torres innfyrir, þokkaleg tilraun allavega

13.59 Liver virka þéttir, eru á undan í flesta bolta og lítil hætta, Finnan meiddi sig eitthvað, ekkert spes

14.01 Babel á leiðinni inná, líklegast fyrir Kewell þó ég voni reyndar að það sé fyrir Momo

14.02 Kewell á leiðinni útaf fyrir Babel, Harry karlinn var alveg ágætur í þessum leik, gott að fá hann til baka

14.05 Dómarinn reyndi að stoppa Gerra en náði honum ekki, Nicky Buttocks náði honum hins vegar og fékk gult, það mátti næstum spjalda dómarann líka fyrir þetta

14.06 Torres sólaði Rosenal uppúr skónum inní teig en Given kom út og lokaði vel, Liver fékk síðan fljótlega aðra skyndisókn og horn uppúr því sem lítið varð úr

14.08 Babel er sprækur leikmaður, fljótur og skotfastur þó hann sé stundum dáldill fækjufótur, ekki á Momo level en samt

14.11 Gerri og Babel með góðan þríhyrning og Babel skoraði, klassamark hjá þeim, 3-0, nú er dáldið af áhorfendum að fara, Torres aftur innfyrir en skaut framhjá, einn af þessum dögum hjá honum en hann kemur sér þó í færi, það er allavega frumskilyrðið fyrir því að skora

14.13 Gerri kom Torres í enn eitt færið en nú reyndi hann að sóla markmanninn, klikkaði og ég held að það sé sama hvað hann fær mörg færi í dag kallinn, hann skorar ekki

14.15 Þetta er þokkaleg einstefna og hefur verið eiginlega allan tímann, mér sýnist Torres vera farið að leiðast þetta, hann veit að þetta er ekki hans dagur, sást ágætlega á því að Torres reyndi ekki einu sinni að taka einn á núna þegar hann gat komið á ferðinni, ætli ég fái stig í draumaliðsleiknum fyrir færi sem Torres kemur sé í?

14.18 Myndavélin reglulega að taka myndir úr stúkunni af fólki sem er að fara, Gummi með snilldarkomment eftir að Babel sólaði Rosenal, sagði að það væru allir búnir að sóla Rosenal í þessum leik. Kuyt fékk dauðafæri en ákvað að best væri að gefa á markmanninn

14.21 Crouching Tiger á leiðinni inná, ætli Gerri fái ekki að hvíla sig, reyndar held ég að Torres væri alveg til í að fá sér sæti

14.22 Allardyce að hrista upp í leik Mewcastle, setti Stephen Carr inná, Momo með ferlegt brot, klaufalegt hjá honum og hann fékk réttilega gult, Gummi bætti því við að Barton ætti þetta inni, sem er hárrétt hjá honum

14.24 Crouch inná fyrir Gerra, það er ágætt að gefa honum smá pásu þessar síðustu tíu. Klassískt Momo moment þarna, hann vann boltann mjög vel og síðan þegar hann gat losað boltann þá ákvað hann að snúa frekar aftur inní manninn aftur, spes leikmaður

14.27 Reina að verja vel frá Viduka, var síðan reyndar rannstæður, smá líf í Newcastle, kannski kominn tími til, held reyndar að þetta sé aðallega af því að Liver eru farnir að chilla

14.29 Lucas er með gott auga, hefur ekki reynt mikið á varnarvinnuna hjá honum en hann hefur skilað sínu ágætlega, þetta er kosturinn við að kaupa Brassa, þeir eru að jafnaði með alveg ágætis tilfinningu fyrir fótbolta

14.31 Þetta er svona að fjara út rúmar fimm eftir, verið að stökkva á bakið á Torres, það er gult, dómarinn var sammála

14.33 Var að velta fyrir mér þessari tölfræði með landsleikina hans Alan Smith, hvernig getur hann verið búinn að spila 20 landsleiki, það er eiginlega stórfurðulegt

14.34 You´ll never walk alone hljómar, stuðningsmenn Newcastle ættu kannski að prófa þetta, dáldið sérstakt að vera farnir að úa eftir korter, Smith fékk heimskulegt gult núna, ekki í fyrsta skipti

14.35 Gummi sagði að Smith væri ekki alltaf sá skynsamasti í hausnum, miðað við að ég veit ekki hvar annars staðar maður væri skynsamur þá er þetta samt rétt Gumma

14.40 Búið, 3-0 fyrir Liver eins og við Aron spáðum báðir. Lokamat á leiknum frá Aroni Frey er að Gerrard hafi skorað frábært mark. Honum fannst Torres vera mjög góður, Kuyt góður og Liverpool liðið mjög gott. Honum fannst Newcastle liðið vera ágætt, ég er sammála þessu mati, nema kannski að mér fannst Newcastle ekki vera gott, fínasti leikur hjá stórliði Liverpool og góð úrslit


Leikjadagbók Blackburn-Liverpool 3.11.2007

Bifröst, kaffihúsið nánar til tekið. Sérlegir gestir eru Jón Bjarni og eitthvað gengi: Hjalti, Sara, Sandra, Tryggvi, Berglind

Liðið er víst eftirfarandi, Reina,Finnan,Sami,Carra., Riise, Babel,Mascherano, Xabi,Yossi,Gerri og Kuyt(lesist:kát)

16.55 Var að horfa á Newcie brown ale tapa fyrir Portsmouth

16.57 Sýnist þetta vera svona 3-0 fyrir Liver

16.59 Owen er með tölfræði eftir leikinn, ekki samt jafn góða og mmanrlkhaegh lkh sldghsdghl sem er senter hjá Portsmouth

17.00 Jón segir að Gerri eigi eftir að skora, ég segi bara þetta

17.05 Gummi Ben að lýsa, sem er afar gott, hann kann fótbolta og veit slatta, vildi samt óska þess að hann gæti sagt Kát en ekki kújt

17.08 lalalalalala, Gummi er að fara yfir leiki dagsins, mér er svo sama

17.10 þetta fer að verða þreytandi, meira hjal um leikina, jón farinn að snýta sér, sem er betra en að ekki bara bora heldur borða úr nefinu

17.11 Gerri er fyrirliði, það eru jafn miklar fréttir og að sjálfsstæðisflokkurinn sé við völd

17.13 ég held að Agger verði klár eftir viku, Sami þarf frí, jón segist vilja frekar nota crouch, rétt að taka fram að jón kann ekki fótbolta

17.15 af hverju langar mig meira að hlusta á þetta

 

17.18 Ægir mættur, það er jafn mikilvægt og að það séu hornfánar

17.19 Benni og Hinn eru frammi hjá Blackburn, þeir eru báðir betri en Kát, er samt að pæla í því hvort Kát sé góður. ég veit það eiginlega ekki, væri almennt betra að vera viss með 10 m punda senter

17.20 Jón að fara út að reykja, ætla að tékka á honum , aftur eftir 3

17.23 það er hægt að tippa á leikinn á 1x2.is

17.25 Rafa stal bindinu hans M.J fox úr secret of my success, rauut sem sagt. Það er ekki crap að gerast í leiknum

17.26 Það er hellings pizzulykt hér, væri samt betra að fólkið sem borðar pizzuna færði sig frá tv-inu, Gerri gaf á engan en fékk innkast

17.30 kominn með annan bjór, sem er gott, það er jafn mikið að gerast í leiknum og í vinstri grænum, þettta bara svona er, langur skalli frá blackburn sem skilaði ekki miklu 

17.32 það er gott fyrir kuyt að hann á cash money, hann er ekki fríður, reyndar ekki á shrek/quasimodo leverl en samt

17.34 rúmlega korter búið en ekki mikið að gerast, reyndar ekki jack, pennant er frá vegna meiðsla, sem er gott, allavega fyrir Liver

17.36 horn hjá Black en það fór afturfyrir, Jón var að tala um að Eboue vaxi í hverjum leik, æ ég veit það ekki

17.51 skot í stöng hjá blackburn, goddammitt það gerist aksjúallí ekki í leiknum

17.38 mér sýnist ég ekki nenna þessu, er hættur nema að ég hendi inn ef eitthvað gerist, í leiknum eða veðrinu


Leikjadagbók Liverpool-Arsenal 28.10.2007

Jórsalir 4, nóg af kóki en ekkert saltnammi. Engir gestir að þessu sinni, Minime farinn heim til sín. Var að spá í að skrifa þetta frá Bifröst en nennti ekki að keyra í myrkri eftir leik.

Það verður gaman að sjá hvernig liðið verður, er næstum að vonast eftir miðju með Gerra, Masherano, Xabi og Babel.

15.45 Var að sjá liðið. Reina, Finnan, Carra, Hyypia, Riise, Gerri, Alonso, Masherano, Voronin, Kuyt og hinn gullfallegi Fernando Torres. Við gætum mögulega verið að sjá ný level af sérkennilegheitum frá Rafa, Gerri jafnvel á vinstri, allavega hann eða Voronin, gott að Babel er ekki kantmaður eða svoleiðis?

15.48 Gaupi er í settinu með Grana og Frey úr FH, það er reyndar einn stór kostur við það, Gaupi er þá ekki að mala á meðan leikurinn er í gangi. Spái Hödda og Bjarna Jó í lýsingunni.

15.49 Gangurinn að klefunum á Anfield er svona eins og landgangur á flugvöllum, einbreitt eiginlega, ætli það verði ekki rýmra á Shankley Park

15.51 Torres er sérstaklega vel greiddur í dag, hann hefur mitt leyfi til að skora þrennu í dag.

15.52 Það er mér hulin ráðgáta, nú eins og áður, hvernig Voronin gat fengið tíuna

15.54 fyrir þau ykkar sem ætla að hringja til að spyrja hvað mér finnst um hitt eða þetta í fréttum þá get ég svarað því strax, mér finnst það alveg fínt eða afleitt, allt eftir aðstæðum, það eru 5 mínútur í leik þannig að ég tek ekki síma í 2 tíma, Grani og Freyr spá báðir 3-1, reyndar fyrir sitthvoru liðinu

15.56 Arnar er einn að lýsa, holy smoke, var enginn sérfræðingur laus?

15.57 You´ll never walk alone

15.58 Nett taugaspenna, hollt og gott því þá er manni ekki sama

15.59 Theo Huxtable er á bekknum, stóð sig sennilega ekki nógu vel síðast hjá Arsenik. Yfir/undir á beinum ristarspyrnum hjá Kuyt er 9, þar af minnst 7 úr sérkennilegum vinklum

16.02 Arsenal byrjar með boltann, það skiptir yfirleitt ekki miklu í fótbolta

16.03 Þetta er Kuyt/ Voronin á hægri/vinstri, Gerri fyrir aftan Torres, það lítur vel út. Meikar meira að segja sens, nema kannski fyrir þær sakir að hvorki Voronin né Kuyt eru kantmenn, þeir eru samt eiginlega ekki heldur senterar, hmm.... þeir eru svona sóknarmenn, crap, Carra er meiddur

16.06 Voronin með spjald, best að taka hann þá útaf. Hann fékk þetta eftir svona látannfaratrix, hann gleymdi bara að snúa við og taka boltann því það var enginn annar þar

16.07 Þeir eru búnir að laga HD hljóðið allavega, Liver með auka svona meter fyrir utan teig

16.09 Gerri að taka þetta, af hverju eru þeir að vesenast með það að renna boltanum

16.10 Já ok, kannski af því að Gerri getur þá neglt honum inn, 1-0, nammi namm

16.11 Fínasti auki hjá Gerra, er almennt ekki hrifinn af því að renna boltanum til hliðar í auka, það gefur hinum séns að komast fyrir boltann, hjálpaði þarna að innsti gaukurinn í veggnum ákvað að vera ekki lengur í veggnum

16.12 Ég held að Voronin sé ekki búinn að fatta hvað gult þýðir, hann var allavega að renna sér aftur, ok, ég skal útskýra ef hann skyldi lesa þetta í hálfleik, sko, ef þú ert kominn með gult þá þarftu að passa þig dáldið, annað gukt þýðir nefnilega ða þú ert rekinn útaf og það má enginn koma inná fyrir þig

16.14 Crouch að hita upp, veit ekki alveg hvað það þýðir, vona að Torres sé í lagi

16.16 hendi á Hleb, þetta var samt bara önnur, veit ekki af hverju þeir dæmdu á þetta, Gerri er í svona frjálsri stöðu fyrir aftan senterinn, sýist honum ekki leiðast það mikið. Arsenik er að svona þvælast upp kantana, vel spilandi lið samt

16.18 Almunia í marki hjá Arsenik, var ekki Lehman búinn að segja wenger að passa sig? hann hefur sennilega misst af því, hjúkk, Adebayor í færi en Reina reddaði

16.20 Voronin er búinn að eiga 5 sendingar, þar af 7 á mótherja

16.21 Hyypia með langan bolta sem var sentimetra frá því að hitta Torres, eða reyndar svona 2000 sentimetra

16.22 Arnar hefur eiginlega ekki sagt neitt vitlaust það sem af er, hmm.... ok, þangað til núna þegar hann sagði að dómarinn væri hliðhollur Liver en svo 5 sekúndum seinna að að hann væri samkvæmur sjálfum sér þegar Liver fékk ekki auka, ég er smá ringlaður, hvort er þetta Arnar?

16.25 OK, nú sagðist hann ætla að draga þetta til baka frá því áðan, þetta er eiginlega meiri Derby leikur en á móti Everton síðast, allavega er tempó í þessu og menn virðast smá pirraðir

16.27 Torres reyndi rennonumframhjáoghlaupatrixið en gleymdi að renna boltanum fram Toure

16.28 Liver er aðallega að reyna að negla fram á Torres, er það ekki venjulega betra ef það er allavega í áttina að honum, eða bara allavega ekki beint á markmanninn

16.29 Gerri með skot eftir 2 horn, aftur horn, á það ekki að vera víti?

16.30 Æ, þessi 3 horn og víti brandari er að verða þreyttur, ég er hættur að notann. Carra prófaði einn langan á Torres, það er ekki gaman að elta svona þvælu allan leikinn, nú sást reyndar að það var hendi á Sagna í horninu, það er stundum víti en reyndar var þetta bara önnur

16.33 Carra sló Eboue inní teig, það má ekki, af hverju sá línuvörðurinn þetta ekki, nú var Gerri með eina Ninja tæklingu en meiddi sig, sýndist hann fá högg á ökklann, þetta var ekki gott allavega

16.35 Voronin hitt núna loksins á samherja, það gerðist reyndar þegar hann var að hreinsa, ok þetta er dáldið ýkt hjá mér, hann hitti einu sinni eða tvisvar á samherja áðan af 5 metra færi

16.36 Arnar hefur verið að finna blaðið sitt með gamalli tölfræði, það er fínt, virkar svona eins og suð í sjónvarpinu

16.38 Arsenik eru búnir að vera betri bróðurpartinn af leiknum, það er ekki sama flæði í Liver, kannski að því að kantararnir eru ekki kantmenn og að Liver reynir eiginlega bara langa bolta

16.40 Adebayor að reyna að setja schnabel í eyrað á Hyypia en hann varði sig með olnboganum, shit hvað hann hoppar hátt, það er reyndar mikið betra en Scwarzer í ManU leiknum í gær, hann hoppaði niðrávið í markinu hjá Nani

16.43 Það eru svona 4 eftir af fyrri, Liver má eiginlega þakka fyrir ef þeir ná að fara í hálfleik með þessa stöðu, væri gott samt

16.45 Gerri með ágætan auka, munaði ekki miklu að Sami næði að skalla af markteig, það telur reyndar ekki mikið að ná boltnaum næstum því

16.46 Mér sýnist nokkrir þarna vera orðnir dáldið þreyttir, það er svo sem búið að vera hellings tempó í leiknum, Torres reyndi eina 60 metra skiptingu með vinstri, hann dreif svona 30, það var ekki nóg, nú meiddi Torres sig, hvað með að henda boltanum útaf þá, nei ok, Torres er staðinn upp.

16.49 Þegar Crouch kemur inná fyrir Torres, ætli við höldum áfram að reyna bara stungur? Er það ekki dáldið eins og að fara í malargryfju að kaupa í matinn að stinga á Crouch, það er eitthvað sérkennilegt við það

16.51 ok, hálfleikur. Liver eru yfir og það er svona passlega sanngjarnt, Arsenal hafa allavega verið meira með boltann og hafa fengið eitt/tvö færi. Crouch er á leiðinni inná fyrir Torres í seinni, það ruglar aðeins kerfinu hjá Rafa, hvort ætli hann hæti þá við skiptinguna á 54. 75. 87. mínútu? Ég spái því að þetta veðri í staðinn fyrir 54. mínútu skiptinguna. Babel kemur þá inná fyrir Voronin á 75. ef Voronin les bloggið í halfleik og lætur ekki reka sig útaf.

17.06 Það var viðtal við Grobbelar í hálfleik, Pétur Hafliði fór einu sinni útá lífið með honum, kemur fáum á óvart að Grobbi er skemmtilegur náungi, hann lítur einhvern veginn þannig út, svona svipað og að ég er pottþéttur á því að Souness er leiðinlegur

17.08 Jónas Grani benti réttilega á það í hálfleik að Liver er ekki með neina kantmenn. Það skiptir líka voða litlu máli þegar senterinn þinn getur eiginlega bara skorað eftir fyrirgjafir, gott að við vorum ekki að setja einn tveggja metra inná sem getur bara skorað eftir fyrirgjafir

17.11 Hey kúl, þið vitið svona þegar tónlistarmenn gera kóver af lögum í virðingarskyni við aðra tónlistarmenn, Mascherano var núna, í virðingarskyni við Momo, að taka Momo trix, þ.e. að vinna boltann en hlaupa svo af stað í dellu og missann aftur

17.13 Arsenal með þokkalegt spil, láta bolta flæða ágætlega á milli kanta, nú var Crouch að taka boltann niður, snúa sér og negla langt fyrir utan teig, ég hef ekki séð þetta áður, Gerri með horn beint á fyrsta varnarmann, sko það er ekki erfitt að taka horn og auka, koma boltanum bara aðeins yfir fyrsta varnamann, það er yfirleitt nóg

17.16 Arsenal með skot í stöng og Fabregas með skot framhjá tómu marki af vítapunkti, kom eftir frábært spil frá þeim. Mashcerano fékk gult eftir eina tveggjafóta stökktæklingu, gott að það eru ekki reglur sem segja að það eigi að reka útaf fyrir svoleiðis eða neittFootinMouth

17.18 Nú var Crouch að salta einn, það eru tæklingar og aksjón í þessu.

17.20 Endursýning af Ninjastökkinu hans Masherano, merkilegt að hann sé ennþá inná og líklega ágætt fyrir Sagne að hann hoppaði frá þessu

17.21 Dammit, Riise með fyrirgjöf á fyrsta varnarmann, hann á samt að vita að horn/aukaspyrnureglan á líka við um fyrirgjafir, nennir einhver að sms-a því á hann ef hann skyldi vera með símann á sér inná, ég er ekki með númerið hans

17.24 Reyndar eitt með svona slána eins og Crouch, það er erfitt að kenna þetta, þ.e. hæð

17.25 rúmar 10 í Voronin/Babel skiptinguna, ég held að Arsenal sé að færa sig framar, allavega er svæði fyrir Crouch til að hlaupa í og ekki hleypur hann hratt.

17.27 Þetta var óvænt trix, Benayoun var að koma inná fyrir Voronin  á 65. mínútu, Alonso næstum búinn að skora með hendi, Arnar næstum búinn að fatta að það var aksjúallí dæmt á þetta, Theodore Huxtable Walcott að koma inná

17.29 Þessi skipting ruglaði mig dáldið, síðan hvenær skiptir Rafa eftir 64. mínútur, geri mér enga grein fyrir því hvað þetta þýðir, nú er Alonso meiddur aftur; Arbeloa að koma inná með hárkolluna hans Pennant, þetta er sennilega svona í virðingarskyni við Pennant víst hann meiddist, fallega gert hjá honum

17.32 ég er ekki hrifinn af þessari skiptingu hans Rafa, hefði ekki verið hægt að færa Gerra neðar og setja Babel inná, getum ekki alveg pakkað finnst mér. Jafnvel hægt að færa Yossi innar og koma Babel á kantinn, hann hefur hraða til að breaka á þá ef við skyldum einhvern tímann ná boltanum af þessu Arsenal liði

17.35 Tvær skiptingar á leiðinni hjá Arsenal, Mascherano vann boltann til Riise sem hljóp af stað og reyndi þríhyrning við Toure, sennilega ekki fattað að hann er ekki með honum í liði þannig að Toure gaf ekki boltann á hann aftur

17.37 Riise með skot beint fyrir utan teig eftir að Gerri gaf fyrir af vinstri kantinum, ætti kannksi að vera öfugt en þetta var allavega ágætt skot.

17.39 Bendtner skallaði í gegnum klofið á Sami, dáldið töff, Arsenal annars í reit inní teig hjá Liver, kannski að við ættum að reyna að taka boltann af þeim

17.40 Það er svona korter eftir, AArbeloa er að reyna sama trix og Voronin í fyrri, þ.e. að gefa mest á kallana í hinu liðinu, hann er allavega dáldið lengi að þessu eitthvað. Fabregas búinn að jafna, kemur ekki mikið á óvart enda Arsenal búnir að vera betri eiginlega allan leikinn 1-1

17.43 Ætti að verða tempó þessarar síðustu 10 mínútur, ekki að það hafi vantað hingað til. Crouch að pressa inní teig hjá hinum, Yossi ákvað þá að dekka svæði við miðjulínuna, borgar sig ekkert að hjálpa við pressuna ef hún skyldi kannski virka. Svæðið við miðjulínuna skapaði allavega ekki hættu

17.47 Dómarinn tók boltann af Kuyt á miðjunni en Carra reddaði því, er annars að pæla í því hvar Neil Mellor sé, hann hefur skorað á CopEnd á móti Arsenik

17.49 Töff, sama trix og áðan, Arsenal með skot í stöng og síðan frákast framhjá, Liver fóru með 8 fram áðan, verst að Gerri ákvað þá að missa boltann þegar hann var aftastur af þeim

17.50 Arbeloa með sendingu sem fór ekki á mótherja, fór reyndar úaf en allavega ekki á mótherja

17.51 Mér er búið að takast að blokka svo vel á Arnar að Ómar þurfti að benda mér á að hann hafði líkt Sami við gamlan finnskan vörubíl

17.54 Þetta fer að verða búið, eigum eiginlega ekki mikið meira skilið en 1 stig úr þessu, hefði svo sem verið fínt ef Gallas hefði ekki náð að henda sér fyrir skotið hans Gerra áðan en so be it.

17.55 Flautað af, endaði 1-1 sem er sennilega sanngjarnt svona þegar allt kemur til alls. Liver hefði hugsanlega getað hangið á þessu en Arsenik átti ekki skilið að tapa þessu. Nú er bara að vona að Torres og Xabi séu í svona þokkalegu lagi, við þurfum á þeim að halda.

Ómar vinur minn, sölukall hjá Eyjunni er farinn að skrifa leikjadagbækur líka, hann er dáldið reiður bloggari sem gerir bloggið hans dáldið skemmtilegt. Hann er samt markmaður þannig að hann er með soldið skrýtnar hugmyndir um fótbolta Wink, heldur t.d. með ManU sem er yfirleitt merki um að menn séu ekki alveg með fulle fem


Leikjadagbók Newcastle-Tottenham 22.10.2007

Jórsalir 4, ég er að elda þannig að þetta gæti orðið aðeins stopult, gæti reyndar orðið stopult af því að mér er slétt sama um bæði þessi lið

18.50 Gaupi einn að lýsa, það er svona eins og að fá null í tombólu. Newcastle Brown Ale eru búnir að vinna 3 í röð, Tottenham engan í röð.

18.53 Gaupi er búinn að fara yfir stöðuna í deildinni og hvaða leikir eru framundan, hann hefur ekki komið með neitt sérkennilegt komment ennþá, nema reyndar akkúrat núna, var að taka það fram að Arnar hefði lýst West Ham leiknum eins og honum einum er lagið

18.58 Gaupi sagði okkur rétt áðan að Newcastle hefði unnið 3 leiki í röð, var svo rétt í þessu að bæta við að Allardyce hefði byrjað vel hjá Newcastle en liðið væri núna að koma til baka eftir frekar erfitt gengi, þeir eru samt bara búnir með 8 leiki í deildinn, er það bara ég sem er ringlaður?

18.59 Frekari tölfræðiupplýsingagreiningar frá Gaupa, dáldið eins og að hlusta á pípara lýsa skurðaðgerð

19.00 leikurinn byrjaður, Berbatov á bekknum, kannski ok að láta 18 milljóna senterinn darren bent spila eins og einn leik. Tottingham eru í dáldið fínum hvítum búningum

19.03 búinn að elda, kjöt og pasta, smá hlé á meðan ég næ í þetta

19.04 Kominn með þetta, er sem sagt núðlusúpa með kjötbragði

19.05 Best að hrósa Gaupa, hann má eiga það að hann er duglegur að ná sér í stöff um leikmenn og hafa með sér í leikinn, var að segja okkur að Abdoulaye Faye hafi spilað hjá Lens, vona að hann haldi sig við svona stöff, það er kannski ennþá von?

19.10 Emre meiddist aðeins áðan, eru það annars sérkennilegustu viðskipti síðari ára, þegar Souness vildi endilega losna við Jenas og keypti svo Emre. Hver ætli tilgangurinn hafi verið að losa sig við Jenas, hver vill svo sem eiga unga enska varnarmiðjumenn? Jón Bjarni sagði um daginn að við ættum kannski að fá Souness til að taka við Liver aftur, hann var að sjálfsögðu að grínast en mér er ennþá flökurt við tilhugsunina

19.13 Bale fékk gult fyrir að tefja horn hjá Newcie brown ale, Faye átti síðan skalla í stöng uppúr horninu

19.15 gott að sjá að fair play herferðin er að virka, Bale fékk auka og sat og var að kveinka sér, Tottingham notaði þá tækifærið og tók aukann strax, ekki það að Bale sé í tottenham eða neitt

19.17 Mér finnst þessi núðlusúpa ágæt, geri samt ráð fyrir því að Maja eldi eitthvað annað eftir tvær vikur, hún er afbragðs kokkur, ætli maturinn þá sé inní þriggja ára planinu eða er það meira svona almennt um það hvað maður ætlar að gera, ekki endilega máltíðir hvers dags?

19.20 Bale farinn útaf meiddur, Geremi steig á hann áðan, það var held ég ekki gott.

19.21 var að fatta að Arsenal eru komnir með 25 stig úr fyrstu 9 leikjunum, það er slatti, það er eiginlega svona manager byrjun, fyrir þá sem ekki vita hvað manager er þá get ég bara ekki hjálpað ykkur

19.24 ég hélt einu sinni með tottenham, það var þegar ég var svona 8 eða 9 ára, já ég veit dáldið langt síðan, það var af því að garth crooks var í liðinu, mér fannst svo skrýtið að sjá svarta menn spila fótbolta

19.26 nei, mér finnst það ekki ennþá skrýtið, en takk fyrir að spyrja

19.27 Owen í færi en markmaðurinn varði vel, fannst þetta skrýtið þangað til að ég fattaði að mrs. robinson er ekki í markinu hjá tottingham heldur einhver cerny. Það er ágætt fyrir þá, prófa að vera með markmann sem stoppar hitt liðið í færum í staðinn fyrir að gefa þeim færi, allavega vel þess virði að reyna, svona miðað við að þeir eru i 18. sæti og svona

19.29 Tottenham með sama trix og þeir skurðuð tvisvar úr á móti liver, einn langur sem annar senterinn flikkar á hinn, Keane komst í færi en skoraði reyndar ekki. Þetta er kannski svona óstöðvandi trix, svipað og lokasparkið í karate kid 1

19.31 ef þetta er óstöðvandi af hverju nota þeir þetta þá ekki meira, ekki eins og að annað sé að ganga allt of vel hjá þeim. Litli tyrkinn að minna á sig segir Gaupi, Emre átti sem sagt skot framhjá. Nú fáum við ferilskrána hans Emre, þetta eru ágætis upplýsingar frá Gaupa

19.35 Faye með tveggja fóta stökktæklingu sem Keane hoppaði uppúr, það má víst taka tveggja fóta ef maðurinn hefur vit á því að hoppa, ekki viss um að Gylfi væri hrifinn af þessari dómgæslutúlkun

19.37 Chimbonda hraunaði einn og fékk gult, kom þá alveg steinhissa veifandi einum fingri, hann heldur víst að það megi taka eitt hraun áður en maður fær spjald, Duffield vinur minn er dáldið inná þessari skoðun líka.

19.39 Það eru búnar 39 mínútur og eiginlega bara eitt alvöru færi, það er ekkert spes. Sjálflýsandi græna peysan sem dómarinn er í er hins vegar dáldið spes, hann er svona eins og grænn hlunkafrostpinni

19.42 Hmm, ætli Gaupi hafi verið nýbúinn að borða þegar hann mætti í útsendinguna, hann hefur eiginlega ekki sagt neitt furðulegt í útsendingunni, hann er kannski svona mettur og sæll að honum detta engir misjafnir brandarar í hug. Þetta er þá fínt trix, svona þangað til að handboltatímabilið byrjar, hvenær sem það nú er, gefum Gaupa helling að borða fyrir lýsingar

19.45 Obafemi Martins að skora gott mark, hann er fljótur og góður, reyndar sterkur líka, ætli þeir vilji skipta á sléttu á honum og crouching tiger? Og þá byrjaði ruglið í Gaupa, Martins fagnaði með einhverju flikkflakkheljarstökku, Gaupi byrjaði þá á 15 sekúndna lýsingu á því að Martins gæti keppt fyrir Ísland á ólympíuleikunum í fimleikum, bara ef hann fengist til að skipta um ríkisfang, það þyrfti einhver að gefa Gaupa eitthvað að borða í hálfleik, þetta var búið að ganga svo vel hjá honum en hann er sennilega að verða svangur

19.56 Gaupi má samt eiga það að hann er snyrtilegur í taujinu kallinn, það er alltaf ágætt

19.58 Það geta allir verið heimsborgarar, nýju auglýsingarnar eru ágætar, toppa samt líklega seint Jack-ið frá síðasta vetri

20.01 Gaupi segir að tottingham sé líklega að fara að tapa þessum leik, það gæti alveg verið rétt hjá honum. Gaupi að fara aftur yfir stöðuna í deildinni, hann er markviss í kvöld kallinn, allavega svona mestan partinn.

20.05 Hive að hringja aftur og bjóða mér eitthvað, heyrðist síðan ekkert í þeim, verða þá líklega að hringja aftur, alltaf gaman að símasölufólki svona yfir leiknum, hélt fyrst að Sigfríð væri að hringja en hún veit sennilega að það er leikur Wink

20.07 Það er stundum dáldið svipað með leikjadagbækurnar og sunnudagsboltann hjá mér, meiri kraftur framan af. Þessi leikur er dáldið gamaldags á köflum, ef þið kannist við myndir úr hm frá 60 og eitthvað, svona einn sem hleypur og 1 til 2 að verjast honum, aðrir standa og horfa. Newcie brown ale var að skora úr horni, 2-0, Cacapa skoraði með skalla. Berbatov þá farinn að hita upp, kannski kominn tími til að taka hann úr skammarkróknum sem Gaupi talaði um í hálfleik

20.12 er ekki dáldið vesen að vera með Robbie Keane sem fyrirliða þegar þú ert með Berbatov og Darren Bent í hópnum líka, þarf eiginlega fyrirliðinn þinn ekki að vera pottþéttur í liðið? eru ekki bæði bent og berbatov betri en keane?

20.15 að sjálfsögðu skoraði þá Keane, reyndar úr frákasti eftir að Bent skallaði í stöng 2-1, allavega mörk í þessum leik, Berbatov er samt að fara að koma inná, einhver aðstoðarþjálfari að með töflufund á hliðarlínunni til að útskýra eitthvað, Berbatov inná fyrir Malbranque

20.17 Berbatov er eitthvða kalt, hann er með jesperblomqvist ermatrixið, mér finnst það alltaf frekar furðulegt að sjá, sérstaklega þegar menn eru þarna á stuttum

20.19 Gaupi er orðinn svangur aftur, þetta var að koma uppúr honum " Allardyce hefur lést talsvert frá því að hann kom frá Bolton, kannski verri matur, ég veit það ekki", gott að Gaupi er að hugsa um leikinn

20.21 Gaupi kominn aftur í blöðin sín, það er fínt, Cacapa er frá Brasilíu, var í Atletico Madrid, áfram svona Gaupi, maturinn er á leiðinni

20.24 Tottenham er búið að fá á sig 20 mörk í 10 leikjum, það er slatti í poka

20.25 Gaupi er líka með svona fínan framburð, djínas. ok, fínn framburður og fín föt hjá honum, tískuþáttastjórnandi kannski?

20.27 Joey Barton á leiðinni inná, hann er geðgóður, verst að bowyer er farinn frá newcastle

20.33 Milner var að skora 3-1 ágætis mark, það svona eiginlega drap aðeins þennan leik, þetta verður svona engin miðja leikur, liðið sem er yfir parkerar 2-3 frammi sem sækja en hitt liðið er með 5 frammi, ekki ósvipað æfingu þegar lið spila á lítinn völl

20.40 Jenas er víst búinn að vera alveg hrikalega slakur, ööö ég hef eiginlega ekki tekið eftir því, hann hefur svo sem ekki gert mikið en veit ekki hvort hann hefur verið hrikalega slakur

20.43 Þessi leikur dó eiginlega við þetta þriðja mark, það eru ca. 7 mínútur eftir og nenni eiginlega ekki að horfa á restina af þessu, Newcastle búnir að vera betri mestallan tímann. Ætla að sjá hvort það er ekki eitthvað skemmtilegra í tv.

20.53 Það gerðist ekki meira í leiknum, Martin Jol var dáldið fýldur á svipinn, sennilega lítið eftir af Tottenham ferlinum hans, best að nota þá síðasta tækifærið til að minnast á það að hann á 2 bræður sem heita dick og cock


Leikjadagbók Everton-Liverpool 20.10.2007

Jæja, ég er kominn úr Bónus, keypti spægipylsuálegg, 8 núðlusúpur og 6 Thule pilsner. Það var enginn sem kommentaði að þá vantaði neitt þannig að þetta varð ekki meira. Þetta kostaði alveg 800 kall.

Allavega, er staddur í Jórsölum 4, engir gestir að þessu sinni. Í þessum töluðu orðum er verið að sýna Urban Freestyler stöff á sýn2, þessir gaukar eru teknískir. Einhverjar fréttir af "svindli" á ksí hófinu í gær, Margrét Lára ekki valin best heldur einhver úr KR. Ég man eftir þesus einu sinni áður, það var fyrir einhverjum 20 árum þegar allir KR-ingarnir völdu einhvern úr Víði Garði, hann fékk flest atkvæði en það var mixað einhvern veginn.

11.31 Aukakrónur, þær koma bara, fer að verða þreyttur á þeim auglýsingum. Everton-Liverpool er víst fyrsti leikurinn í háskerpu(HD) í íslensku sjónvarpi. Ætli það breyti miklu í 7 ára gömlu Sony sjónvarpi?

11.34 Gummi Ben og Bjarni Jó í settinu, gott mál, það verður þá fjallað um fótbolta í þessari útsendingu. Þeir eru að tala um þreytu eftir landsleikjahléið, það er slatti af svoleiðis köllum í Liver, þýðir ekki að væla yfir því. Bjarni er ekki hrifinn af skiptimiðakerfinu hans Rafa, er ekki einn um það.

11.36 Bjarna finnst að ef menn eru heilir þá eigi þeir að spila sem eru bestir í liðinu, hann mætti senda Rafa póst með þessum upplýsingum. Gummi var greinilega búinn að ákveða að tala um liðsuppstillingarnar, þær tefjast aðeins og Gummi er að babbla til að redda sér úr því. kominn í 12 og á síðustu 60 sekúndum. Eitt við háskerpuna, það heyrist full mikið þegar þeir félagar eru að anda með nefinu, kannski er þetta reyndar ekki háskerpan heldur að þeir eru með mikrófónana uppí nefinu

11.40 Reina, Finnan, Carra, Hyypia, Riise, Gerri, Mascherano, Momo, Yossi, Kuyt og Voronin, má bjóða þér franskar með því?

11.42 Gerri kominn á kantinn aftur, erum við byrjuð með það crap aftur, hver á þá að gefa sendingar af miðjunni? Sigfríð að hringja, ætli hún viti ekki að það er leikur að byrja

11.44 nærmynd af Phil Neville rétt áðan, mig langar ekki að eiga mynd af honum

11.45 Þá er það byrjað, eftir 49 sekúndur tapar Sami sínum fyrsta langa skalla, ekki gott

11.48 Yossi komst innfyrir bakvörðinn, sem náði honum fljótlega aftur, Yossi er ekki raketta allavega en er með þokkalegt auga fyrir spili, erfitt að stoppa svoleiðis leikmenn í varaliðsdeildinni

11.49 Gummi sagði að það hefði farið fullt af athyglisverðum karakterum frá Íslandi á leikinn, svo flissaði hann, hvað getur það eiginlega þýtt? fór Ástþór Magnússon?Bubbi? Voronin í færi eftir spil frá Yossi en beint á markmanninn, þetta lítur vel út hjá Liver

11.52 Momo gaf á samherja sem var 7 metra frá honum, ef hann gæti verið í þessu allan leikinn þá er hann góður, vinnur mikið af boltum allavega

11.54 Gerri og Riise tóku hörmulegan aukaspyrnuvaríant, það er yfirleitt betra þegar þú endar ekki á að renna þér þegar þú átt sjálfur auka fyrir utan teig hjá hinum

11.57 Bjarna finst dómarinn leyfa leiknum að fljóta, rétt hjá honum. Leon Osman tók stutt horn, það er við hæfi, ég held að hann sé minni og léttari en Yossi, ætli það sé hægt

11.59, ég missti af því hverjir eru á bekknum, best að tékka

12.02 Itandje, Babel, Crouch, Pennant, Lucas Leiva er bekkurinn, Sami skallaði frá áðn eftir erfiða aukaspyrnu frá Arteta, vel gert hjá kallinum, Kuyt í færi en var ranglega dæmdur rangstæður

12.04 Hmm, Bjarni sagði að dómarinn leyfði karlmannlegar viðkomur, ég er nokkuð viss um að ég hef ekki heyrt þetta áður í fótboltalýsingu, átti samt einhvern veginn ágætlega við, dómarinn hefur ekki veirð að flauta á smástöff

12.07 Mig langar heldur ekki í mynd af Stubbs

12.08 sjit hvað það er mikil rigning hérna, eða réttara sagt fyrir utan, "rigningin lemur rúðurnar" héti þetta er leikjadagbókin væri glæpaskáldsaga, Momo og Osman skalla saman, það er ekkert spes

12.13 Everton búnir að vera betri síðustu mínútur, nokkur horn sem hafa verið svona hálfhættuleg

12.15 Hálftími búinn everton betri en engin stórhættuleg færi, Sami að vinna einhverja langskalla, sem er gott

12.16 Carra að taka auka, ég fer einhvern veginn alltaf að hugsa um jólaboð hjá Liver þegar ég sé Carra, skulum bara segja að eitt árið var fenginn strippari í það og Carra fór víst uppá svið

12.19 Momo að reyna hluti sem hann ræður ekki við, skulum bara segja að það sé ekki í fyrsta skipti

12.20 Everton átti ágætis skalla og Riise þokkalegan auka, Liver aðeins að mjakast aftur inní leikinn allavega, horn á fyrsta varnarmann, annað horn. Momo reyndi vinstrifótarsendingu sem var lengri en 5 metrar, hún fór svona 15 metra frá Liverkallinum

12.23 Enn eitt hornið hjá Everton, þeir eru hættulegir í þeim, Sami með sjálfsmark úr einu slíku, hvaða þvæla er það eiginlega hjá honum, afar klaufalegt en reyndar þokkalega afgreitt hjá Hyypia Blush

12.26 Það er sem sagt 1-0 fyrir Everton, eðlilegast væri að skipta í hálfleik enda ekki verið sérstaklega mikið að gera hjá Liver en ætli hann bíði ekki og skipti á 57. 76. og 86. mínútu þegar það verður of seint. Getum nokkurn veginn gefið okkur að Pennant komi inná fyrir Momo á 57. Babel fyrir Yossi á 76. og svo Crouch fyrir Voronin á 86. mínútu. Reyndar gæti þetta breyst ef Liver jafnar en annars verður þetta svona, jafn pottþétt og getraunaseðlar helgarinnar 

12.30 Nú eru bæði Momo og Riise búnir að sleppa Everton köllum við gult með því að standa strax upp eftir að það var brotið á þeim

12.32 flautað til hálfleiks, Everton betri en ég hlakka til 57. mínútu þegar við fáum skiptingu, verst að Pennant kemur inná og er að spila á móti Lescott en það er þó skárra en enginnákantinumafþvíaðGerrierhlaupandiinnámiðjunatrixið sem þeir eru að nota núna.

12.49 Öllum að óvörum er engin breyting á Liverliðinu, sennilega svo ánægður með hvernig gekk í fyrri. koma svo liver

12.52 ekki nema 11 mínútur í skiptingu, yakubu meðð svona stökkdýfu, alltaf skondið þegar menn eru felldir en fara upp í loftið við það

12.53 allt í lagi, ég skal spyrja, á þetta ekki að vera derbyleikur, af hverju eru engar tæklingar af viti, svo standa menn bara upp og eru voðalega góðir vinir, Gummi heldur því fram að þetta verði blóðugt til leiksloka, þá rann voronin á rassinn, hann ætti að kaupa takkaskó, það er betra á grasi

12.56 er það þegar maður ér að verða 36 ára þegar maður fer að finna smá buzz af því að drekka 2,25% thule pilsner

12.57 Víti og rautt, gerri sótti þetta fannst manni, reyndar togaði Hibbert í hann, réttur dómur

12.58 Kuyt er vítaskytta og skorar, 2 reglur um víti, 1. það er betra að taka í hornið sem markmaðurinn er ekki í og 2. besta víti í heimi er víti sem þú skorar úr.

13.03 Lescott átti sennilega að fá víti og stuttu seinna skaut Riise yfir úr deddara

13.05 Liver að pressa, 3 fyrir 1 í færum en kuyt skallaði yfir

13.06 Gummi að benda á að Momo sé bestur í að vinna bolta en verstur í að send´ann, það er hárrétt hjá honum

13.09 Momo reynir dáldið svona þéttingsfastímagahæð sendingar

13.13 Babel kominn inná fyrir Yossi, það er ágætt, hann er allavega massa skotfastur, Liver eru eðlilega mikið meira með boltann, lítur vel út verð ég að segja, nú er Lucas Leiva að koma inná, vonandi fyrir Momo

13.16 Gerri er víst að fara útaf, Lucas Leiva inná, vorum sennilega með of mikla breidd í liðinu

13.19 Mascherano með skot í Osman, það er ekki létt að hitta hann, Liver að fá horn sem ekkert varð úr

13.22 Vá hvað Voronin átti lélegt skot núna, hefði ekki einu sinni verið mark í varaliðsdeildinni, McFadden inná hjá Everton, hann er ágætur, allavega í landsleikjum

13.24 Momo í dauðafæri, átti næstum jafn lélegt skot og Voronin áðan, reyndar kannski verra en þetta var hinum megin þannig að það er erfitt að meta það alveg

13.26 Nú styttist í Crouch, það er fínt að setja hann inná svona af því að við erum ekki með neina kantmenn til að gefa á hann, ekki eins og að hans styrkur sé að skalla eða neitt

13.27 Bjarni að biðja um Crouch inná, veit sennilega ekki að það er ekki komin 86. mínúta

13.29 Dæmt á Carra, hann er alveg steinhissa, þrátt fyrir endursýningin hafi sýnt það ágætlega að hann var í einhvers konar flugvélarstellingu ofan á honum

13.31 Momo missti boltann á miðjunni, það kemur öllum á óvart nema þeim sem hafa einhvern tímann séð fótbolta. Horn hjá Everton, varð sem betur fer lítið úr því

13.33 Carra og McFadden báðir gult, Carra skilur það ekki, Momo farinn útaf fyrir Pennant, fínt að hann komi inná til að gefa á engan

13.35 víti og rautt, sjáum hvað gerist, sennilega aftur Kuyt, gott skot hjá Leiva en Phil Neville varði með hendi á línu, Kuyt skoraði en Everton átti sennilega að fá víti á 93. mínútu

13.43 Everton átti að fá þetta víti, gott á þá. Kuyt var frekar heppninn að skora úr seinna vítinu, hann gleymdi reglu 1, skjóta í hornið sem markmaðurinn fer ekki í. Fínasti sigur hjá Liver á endanum. Þeir voru reyndar ekki betri fyrr en þeir voru orðnir einum fleiri og búnir að jafna, Lucas Leiva var sprækur, vel spilandi gaukur, enda Brassi.

13.52 Háskerpa á ekki við um hljóð greinilega, nú eru Bjarni og Gummi að fara yfir leikinn, held ég. Málið er að það er ekkert hljóð, þetta var svona í smá stund í byrjun leiks líka, í hálfleik var síðan tónlist eða eitthvað á meðan þeir voru að tala og nú hefur ekki verið neitt hljóð í nokkrar mínútur. Ok, ég er farinn að skilja þetta háskerpustöff, þeir nota bandvíddina sem áður var notuð í hljóð til að senda betri mynd. Svona fyrir mig þá hefði ég kosið að hafa bara hljóðið áfram, ég fæ ekki mikið betri mynd á 7 ára gamla Sony tækið.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband