Færsluflokkur: Idol

Ef niðurhal væri löglegt

þá væri eitthvað af góðu fólki í þætti 7 í seríu 7 af Idol

Asia

Josiah


Og

þá er fjórða sería af the wire búin, góð en sú fyrsta sem klárast ekki almennilega, síðasti þátturinn var eiginlega bara uppbygging fyrir næstu seríu. Ef niðurhal væri löglegt þá væru sem betur fer konir 6 þættir af henni sem ég væri byraður að sækja.

Fæ minime á morgun, keila á laugardag og æfingar fös+sun. Verðum í jórsölum að þessu sinni.

Skil ómögulega af hverju stórleikur Liverpool-Havant&Waterlooville er ekki sýndur, ætla að fara í höfuðstöðvar Sýnar og mótmæla eins og þetta ágæta unga fólk í ráðhúsinu fyrr í dag, skondið eiginlega að fylgjast með því.

Sorrí Fjóla að ég missi af afmælinu, þú verður því miður að finna annað decoy Wink, reikna ekki með að það hafi of mikil áhrif á veisluna og hlakka til að heyra hvaða nám verður tilkynnt.

Þar sem Idol er komið í fullswing þá kveð ég með hinni hjartgóðu en einföldu Kellie Pickler frá Albemarle, NC. Pick Pickler!


Idol vika 3

tvö mjög góð úr þætti 3.

Karly Smithson

Perrie Cataldo


Meira Idol

Ég hef afar gaman af Idol, reyndar finnst mér fyrstu þættirnar sístir en ágætir engu að síður, einhvers staðar á síðunni er fyrsta testið hennar Paris Bennett sem var rugl gott. 

Allavega er hér Jessica Brown að syngja lag sem Carrie Underwood á einhvers staðar hérna á síðunni

Þessi er ágætur en með afar sérkennilegt hobbí - Brandon Green


Kady Malloy

þessi er góð, er eiginlega viss um að ef ég set nógu marga hérna inn þá geti ég sagst hafa giskað á sigurvegarann snemma


Meira úr fyrsta þætti

ef niðurhal væri löglegt þá væri ég sem sagt að horfa á fyrsta Idol þáttinn, tvö í viðbót sem voru góð


Sú fyrsta góða þetta árið

eða kannski er það útlitið?


A.I.7

að byrja. Var að klára þriðju seríu af so you think you can dance, þættir sem skánuðu helling eftir því sem á leið, þarf víst að finna mér eitthvað annað að gera þá í næstu viku Smile

Stelpa sem vann þriðju seríu, hún er hér


American Idol Season 7

byrjar í kvöld. Það er ekkert sérstakt leyndarmál að ég fíla þessa þætti og er búinn að sjá allt nema hluta af seríu 3, ef niðurhal væri löglegt þá mætti einhver benda mér á hvar ég finn þá seríu.

Í tilefni þessa merka dags ætla ég að setja inn eitthvað með þeim 6 sem hafa unnið keppnirnar til þessa, allt alveg ágætis fólk nema reyndar Taylor Hicks sem vann fimmtu seríu, hann er gerpi.

Kelly Clarkson, Ruben Studdard, Fantasia Barrino, Carrie Underwood, Taylor Hicks, Jordin Sparks.

 


Gerpi

þessi Taylor Hicks og hefði hvort eð er aldrei átt að vinna. Daughtry og Paris voru bæði töluvert betri þetta season sem hann vann.

Nýja keppnin byrjar 15. jan. I´m giddy


mbl.is Idol sigur ekki ávísun á farsæld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband