Tvö síðustu liðin

sem ég spilaði með að spila í undanúrslitum bikarsins. Sá bróðurpartinn af leiknum og fannst þetta skemmtilegur leikur, sérstaklega miðað við veðrið. Fjölnir átti þetta skilið, eru með fljóta menn frammi og reyndar virkilega góða kantmenn, sérstaklega Tómas, sem ég hef ekki séð spila áður, alltaf gaman að sjá alvöru kantmenn sem taka menn á, dáldill Sævar Gísla í honum, svona týpa sem veit að hann er fljótari en varnamaðurinn og bara hleypur hann af sér.

Annars slatti búinn að gerast frá því síðast, lokagolfmótinu lauk með sigri yfirforgjafarsvindlarans Jónatans, hann reyndar rústaði mótinu og hefði líklega unnið þó hann hefði verið skráður með rétta forgjöf. Kveðjupartý með Ómari og Jón Bjarna á laugardag, það er skrýtið að þeir séu hættir og verður spes að hætta. Ég fer sem sagt að vinna á nýjum stað eftir nokkra daga sem vissulega verður skemmtilegt en ég á eftir að sakna Voda, mikið af skemmtilegu fólki sem maður hefur kynnst þar.

Hinn gullfallegi Fernando Torres og vinir hans í Liver löbbuðu yfir Derby á laugardaginn, lítið um það að segja annað en það sem vitað var áður, Torres er góður og Derby húrrar niður um deild. Alltaf gaman þegar Chelski tapar og ég er ánægður með að vera búinn að spila á Villa Park, O´Neill er að byggja upp ágætis lið þar.

Skólinn að byrja á morgun, skemmtilegur vetur framundan en krefjandi, 20 einingar og síðan rannsókn. Þar sem ég hef ekki minnstu hugmynd um hvernig maður vinnur Mastersrannsókn þá er líklega best að ég læri það í vetur Wink 


mbl.is Fjölnir úr 1. deild í bikarúrslitin gegn FH
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband