Ákveðið afrek

að vera eina liði sem fellur. Skýringin ef til vill þessi:9 leikir, 1 sigur, 2 jafntefli, 6 töp, markatala 6:17

Þetta er sem sagt árangur liðsins á heimavelli, 5 stig og -11 í markamun, í fyrra fengu þeir 13 stig og voru með +7 í markamun á heimavelli, ekki miklar framfarir þar. Reyndar athyglisvert að sjá líka KR með 9 stig á heimavelli í sumar, 2 unnir og 3 jafntefli. Held einhvern veginn að það sé Víkingum ekki mikil huggun. Reyndar eitt sem Víkingar geta verið ánægðir með, þeir geta varla annað en farið aftur upp á næsta ári, eiginlega bara ÍBV sem verður með gott lið þar, hugsanlegt þó að Toddi komi Fjarðabyggð ofar.

Veit lítið um Magnús Gylfason annars sem þjálfara, hefur ekki náð sérstökum árangri og það er víst mælikvarðinn sem notast verður við. Víkingur er tiltölulega stór klúbbur og ætti að geta fundið sér góðan þjálfara, spurningin núna er hvaða leikmenn þeir missa og þá hvort að það sé í öllum tilvikum svo slæmt(lesist:Grétar S. sem mér finnst vera stórlega ofmetinn).

Gaman að því annars að sjá Val vinna dolluna, Kjartan vinur minn átti það svo sannarlega skilið, rétt eins og aðrir leikmenn Vals. Fh hefði líklega átt að klára þetta en þeir gáfu of mörg færi á sér í sumar, leikir eins og á móti HK verða einfaldlega að vinnast þegar þú ætlar að klára mót.


mbl.is Magnús Gylfason hættur þjálfun Víkings
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband