Korteri eftir jól

eru komnir páskar.

Idol í fyrramálið, errr ef niðurhal væri löglegt þá gæti ég byrjað að sækja topp 11 í fyrramálið. Set það helsta inn á morgun af youtube, það er sko ekki niðurhal heldur meira svona stream en samt niðurhal, anywho.....

Kolla ætlar að koma á Bollagötuna á morgun og elda fyrir okkur SGÓ, hlakka til enda Pilatesmeistarinn afbragðs kokkur.

Bensínverðið hefur hækkað um 1200% síðan fyrir klukkutíma þannig að ég er nokkuð sáttur við að vera fluttur í göngufæri við vinnuna, keyri samt......

Sparnaðurinn við minni akstur fer líklega í glænýja, fína, gengistryggða bílalánið sem fylgdi Boratinum, lánið reyndar ekki hátt en hefur samt hækkað um 70 þúsund kall síðan ég fékk bílinn, allavega gott að bíllinn er þó góður......

Minime verður hjá mér um páskana, ætla að fá hann með mér í að lesa Harry Potter, er sko búinn að kaupa fimm fyrstu bækurnar handa honum. Reyndar búinn að kaupa hringadróttinssögu líka....

Allavega, þægilegt frí framundan og ég búinn að gera vaktaplan sumarsins, í Valitor litunum og allt


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur Tryggvason

Mr P, alla vega miðað við ástandið á þér síðast þegar ég sá þig þá hefðiru bara dáldið gott af því að gefa bílnum frí og labba aðeins LOL

Ólafur Tryggvason, 18.3.2008 kl. 22:45

2 Smámynd: Pétur Björn Jónsson

hehe, ég er eins og tálguð spýta

Pétur Björn Jónsson, 18.3.2008 kl. 23:10

3 identicon

Svo ertu líka kattliðugur....

Kolla (IP-tala skráð) 19.3.2008 kl. 12:00

4 Smámynd: Ólafur Tryggvason

Nei - mr P er einhver stirðasti leikmaður FRAM fyrr og síðar - gott ef hann hafi ekki sigrað stirðbusa keppnina í OGV "GOSINN 2005" eða ætli gosinn 2005 hafi staðið fyrir eitthvað annað !!

Alla vega - gleðilega páska pési og endilega úðaðu í þig páskaeggjum, þú getur lengi á þig blómum bætt.

Ólafur Tryggvason, 19.3.2008 kl. 13:56

5 identicon

ertu ekki að djóka.. er bíllinn hættur að starta þegar þú ert kominn í vinnuna ??   bahahahaaa ....       gönguferðr eru góðar fyrir heilsuna og útlitið, er örugglega gott fyrir menn sem eru ráðnir útá lúkkið :)    hvar kynnist maður svona konum sem nenna að elda fyrir mann ?  ekki nenni ég því sjálf amk.  :)    gleðilega potter páska

Hallan (IP-tala skráð) 19.3.2008 kl. 22:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband