Færsluflokkur: Bloggar
Fór í jarðarför í gær hjá afa, rúmlega 300 manns sem mættu, hann átti ekki í vandræðum með að kynnast fólki kallinn. Fór síðan í matarboð um kvöldið heima hjá frænda mínum. Bróðurpartur ættarinnar var á svæðinu, sjaldan sem það gerist þannig að þetta var skemmtilegt kvöld. Vann nú lítið í dag, svaraði reyndar slatta af pósti og einhverjum símtölum en viðvera í skútuvogi var heldur lítil.
Á leið á æfingu með son minn sem rétt áðan tilkynnti það yfir hópinn að hann væri heitur í fótboltanum. Hann skortir ekki sjálfstraust frekar en pabbann. Fer í 10 ára brúðkaupsafmæli hjá Pétri Hafliða og Unni Önnu á morgun, verður án efa skemmtilegt. Reyndar ellimerki að vera vinur fólks sem er búið að vera gift í 10 ár, já og þau eru bæði yngri en ég, já og ég hef ekki verið í 10 ára sambandi, já reyndar varla 10 mánaða en það er önnur saga. En klukkuna vantar eina mínútu í næstu mínútu og hér er næsta lag
Helena Christiansen er rugl flott
Bloggar | 13.7.2007 | 15:16 (breytt kl. 15:19) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þetta er félagi minn sem hefur verið slatta að spila á Íslandi. Fékk plötuna hans þegar hann var hérna síðast. Nokkur af lögunum á henni eru hérna. Hann spilar yfirleitt slatta af Damein Rice lögum þegar hann er hérna og tekur þau sennilega betur en Rice. Hann ætlaði að koma aftur síðasta vor en eitthvað klikkaði, það verður gaman að hlusta á kallinn þegar hann mætir.
Ég mun að sjálfsögðu tilkynna þeim 7 sem lesa síðuna mína reglulega þegar hann heldur tónleika
Bloggar | 12.7.2007 | 16:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Sumarfríið mitt verður vikuna 23-27.7 eða réttara sagt 25-27(verð hálfan daginn 24 í vinnunni). Ætti að verða skemmtileg vika og gæti orðið frábær. Endurheimti kóðann frá útlöndum og vinir mínir Jensa og frúin hans Nina ásamt vonandi Peter "Bruno" Berggren.
Vikan er einhvern veginn á þá leið að það er golfmót á Hellu í hádeginu 25. og síðan leikur hjá KR um kvöldið. Á fimmtudeginum er mikill bíltúr, skoðum Suðurland, alla leið að Jökulsárlóni, tekin handbremsubeygja þar og gullfoss/geysir teknir í bakaleiðinni. Reyndar að spá í það hvort gaman væri að vera í tjaldi í Skaftafelli á fimmtudagskvöldið en það er sennilega pointless. Reikna síðan með því að við förum í eitthvað matartrix á föstudagskvöldið, væntanlega hjá Einari vini mínum á Silfri. Skemmtilegur staður það, alls konar skemmtilegar matartýpur og eina drekkanlega hvítvínið í heiminum, Cloudy Bay, Sauvignon Blanc, já ég lofa að þetta verður í fyrsta og eins skiptið sem ég mæli með víni hér, allavega svona léttvínsdóti. Kúrbíturinn vinur minn veit allt um rauðvín og því eðlilegt að láta sérfræðingana um þetta.
Hlakka til þessarar viku, þangað til ætla ég að taka til á hverjum degi, þrífa bílinn, fara út að hlaupa daglega, borða hollan mat. Já eða horfa á dáldið TV
Bloggar | 9.7.2007 | 23:25 (breytt kl. 23:33) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þá væri ég búinn að horfa á slatta af Top Gear um helgina og þeir hefðu kannski fengið mig til að fara og þrífa Escortinn . Skemmtilegir þættir enda þessir gaukar uppfullir af furðulegum hugmyndum.
Læt eitt slíkt dæmi fylgja
Bloggar | 9.7.2007 | 00:03 (breytt kl. 00:20) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Carrie
Blake
Bloggar | 6.7.2007 | 17:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Eins og sennilega margir þá ólst ég að hluta til upp hjá ömmu og afa. Þau bjuggu á Háaleitisbraut, stutt í Framheimilið þar sem ég var ósjaldan á sumrin. Afi vann hjá Landsvirkjun og kom heim aðra hvora helgi, ég reyndi að að vera sem oftast hjá þeim þá helgi. Afi kenndi mér að tefla og spila. Hellingur af helgum þar sem að við spiluðum eða tefldum, að mér fannst, alla helgina. Reyndar þó ekki fyrr en við vorum búnir að fara í bíltúr á laugardagsmorgninum, oftast þá með viðkomu á umferðarmiðstöðinni þar sem að hann ræddi við menn um allt og ekkert.
Afi keyrði rútu lengi og ég veit ekki hversu oft ég hef heyrt sögur af því hversu langan tíma það tók að keyra norður á veturna í gamla daga. Reyndar er ég nokkuð viss um að þegar ég var ca. 10 ára þá hafði það tekið um 15 tíma en einhverra hluta vegna lengdist tíminn smám saman og þegar ég var tuttugu og eitthvað þá heyrði ég sömu sögur en tíminn var þá kominn yfir sólarhring. Afi sagði nefnilega sögur og hliðarsögur af þeim. Án nokkurs vafa er þaðan kominn hinn einstaki hæfileiki minn að segja fólki sögur sem enda á einhverju allt öðru efni en þær byrjuðu. Ég byrja sem sagt á sögu sem á að vera tiltölulega stutt en fæ einhverja hugmynd um einhverja hluta sögunnar sem ég þarf þá að útskýra, að mér finnst. Eftir að þetta hefur gerst nokkrum sinnum þá er ég löngu búinn að gleyma um hvað upphaflega sagan var.
Ég hef ekki tölu á þeim prestsonum úr einhverjum sveitum sem eru skyldir sýslumannsfrændum sem unnu með afa eða hann hafði hitt. Hann hafði merkilegt lag á því að segja manni sögur. Ég veit satt að segja ekki hvort þessar sögur voru alltaf skemmtilegar en þær voru eftirminnilegar og klárlega líflegar.
Ég get hins vegar sagt að við vorum alltaf félagar, við höfðum alltaf eitthvað að tala um og það var gaman að hitta hann.
Hann var búinn að vera veikur í nokkur ár og ekki alveg alltaf með fulle fem en það var stutt í góða skapið. Hann var húmoristi og góður kall. Hann dó í dag og ég á eftir að sakna hans.
Bless afiBloggar | 5.7.2007 | 21:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Sýndist mér vera lengdin á þessari sendingu hjá Bjarna. Þetta leit reyndar ekki sérstaklega vel út í TV en látbragðið var þess eðlis eftir markið að þetta hafi verið óvart. Rétt hjá honum að hlaupa inní klefa eftir leikinn, sýndist að nokkrir Keflvíkingar hafi verið frekar pirraðir, skiljanlega. Kristján þjálfarinn hjá Kef hefur verið ótrúlega rólegur í viðtölum eftir leiki og er það vel, hef kannast við hann lengi og alltaf fundist hann koma með frekar leiðinleg og neikvæð komment en allt annað að hlusta á hann í sumar, hann var reyndar aðeins pirraður eftir leikinn en það er eðlilegt, hann hélt sér hins vegar innan velsæmismarka sem er vel. Annars alltaf ágætt þegar Kef tapar, hefur lengi þótt það leiðindalið, þeir spila reyndar ágætan bolta en ég held að það sé eitthvað í vatninu þarna.
Pétur var rekinn útaf, ég gleymdi sennilega að láta hann vita að ég er ekki með hann í draumaliðinu lengur þannig að hann þarf ekki að safna mínusstigum lengur
35-40 metrar er líka greinilega sú vegalengd sem ég get hlaupið á þokkalegri ferð án þess að að þurfa súrefni. Spilaði leik með norðanmönnum í Innri Fegurð(nafnið á stórliðinu) áðan, tók svona 3-4 run með boltann þar sem ég gerði trix u.þ.b á þriðjungshraða miðað við það sem var þegar ég var í þokkalegu formi. Eftir hvert þessara hlaupa þurfti ég allavega 5 mínútur til að ná áttum, vita hvar á landinu ég væri staddur og hvað ég væri að gera. Formið er sennilega ekkert spes, hvorki hlaupa eða prófíllinn miðað við þegar ég leit í spegilinn eftir sturtu, þetta er einhvers konar stundaglasform, nema akkúrat öfugt.
Boltinn var hins vegar skemmtilegur sem er hluti af nýju carpe diem pælingunum nema hvað yawp í þessu tilviki var sennilega tilraun til að ná í meira súrefni.
![]() |
Skagamenn lögðu Keflvíkinga á dramatískan hátt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 4.7.2007 | 23:33 (breytt 5.7.2007 kl. 01:04) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
sögðu þeir í dead poets society, yawp var herópið þeirra ef ég man rétt. Fór að spá aðeins í þetta í gær eftir að ég horfði á mynd sem heitir Peaceful Warrior, já ég veit það er ótrúlegt en ég var að horfa á vídjó í gær. Kóðinn benti mér á þessa mynd og ég hef verið að geyma hana aðeins. Hún er um fimleikagauk en fjallar um mikilvægi þess að líta ekki of langt fram á veginn heldur staldra við og njóta dagsins i dag. Kjartan vinur minn er gott dæmi um einstakling sem fer eftir þessu og skrifar reyndar töluvert um það og ég man alltaf eftir því þegar Pétur Hafliði talaði um að hann og Unnur Anna gerðu í því að njóta þess hversdagslega í lífinu, fara saman útí búð og þess háttar.
Ég stend mig gjarnan að því að líta langt yfir skammt, velta því fyrir mér hvert ég sé að fara, hvað ég sé að gera. Ekki það að ég geti sagt að ég fari alltaf eftir því en ég hef alltaf gert dáldið af því að spá í því hvað sé framundan í stað þess að njóta dagsins. Held reyndar að það sé dáldið íslenskt, að vinna mikið til að geta farið í frí seinna. Vinna 12 tíma á dag og pompa síðan í það um helgar.
Týpískt reyndar að ég fari að pæla í þessu eftir að hafa horft á mynd en sennilega skárra en að pælingar um lífsgæði og stefnu ættu sér stað eftir standup með Dice Clay eða þátt af Walker,Texas Ranger.
Myndin minnir mig annars dáldið á aðra virkilega góða mynd, Touching the Void, sem fjallar að sama skapi um lífið og tilveruna, hvað það er sem skiptir mann máli. Hvers vegna við fókusum svona lítið á daglegt líf vegna þess að við erum svo upptekin af einhverjum markmiðum. Einhver gáfumaðurinn sagði eitthvað á þá leið að lífið væri það sem gerðist á meðan maður væri á leiðinni að markmiðum sínum. Satt að segja ekki það vitlausasta sem ég hef heyrt.
Markmið dagsins er því carpe diem, Yawp eða allavega þegar ég er búinn að vinna.
Bloggar | 3.7.2007 | 14:22 (breytt kl. 14:46) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggar | 30.6.2007 | 13:42 (breytt kl. 16:47) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sir Makan vann golfmótið örugglega. Valur tók FH í nefið og KR vann loksins leik. Unnu Fram áðan og Eymus að dæma. Get ekki ímyndað mér að það hafi verið gaman að dæma þann leik, væntanlega stress í leikmönnum frá fyrstu til síðustu mínútu. Pétur fékk á sig víti en nýji markmaðurinn varði reyndar býsna vel. Dýrt enda hefðu þeir sennilega klárað leikinn þar. KR skoraði síðan furðulegt mark og unnu á síðustu mínútu. Sá að Maggi rak einn útaf, tók ekki eftir því hvort hann spjaldaði með vinstri (held að Gylfi Orra sé Idol-ið hans) þrátt fyrir að vera rétthentur.
Makan rúllaði golfmótinu upp, Finnur spilaði reyndar gríðarlega vel en endaði í öðru(fyrsti tapari). Aðrir enduðu eitthvað neðar. Reyndar bjargaði kaddíinn því sem bjargað varð, erfitt þegar kylfingurinn getur ekki notað neitt járn og er misjafn af teig en hann reddaði geðheilsunni hjá mér, t.d má nefna að mér tókst að þrífa 3 bolta í sama pollinum á 18.braut.
Valur vann FH létt með bunch af Vodaliði á vellinum, hefði verið til í að vera þar með MiniMe.
Fór í göngutúr með kóðanum eftir golfið. Var ennþá í nýja snilldargolfoutfittinu þannig að eðlilega var rölt um völlin hjá Keili, töff völlur sem ég væri til í að spila einhvern tímann. Afar skemmtilegt kvöld í alla staði, þá sérstaklega lokakaflinn. Því miður reyndar enginn kóði næstu vikurnar, hlakka til loka júlí.
Það væri gaman að vera Norðmaður eða Svisslendingur næstu vikurnar.
Best að enda þetta á Blake Lewis sem átti sennilega næstbesta atriði síðasta vetrar í Idol(á eftir þessu)
Bloggar | 28.6.2007 | 22:53 (breytt 29.6.2007 kl. 01:01) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Um bloggið
Pétur Björn
Færsluflokkar
- Alþingi-Rannsóknarskýrsla
- Bloggar
- Ef niðurhal væri löglegt
- Ef veðmál væru lögleg
- Enski boltinn
- Fleyg orð
- Golf
- Gullfallegt
- Hlekkir í keðju skynsamlegra ákvarðana
- Idol
- Íþróttir
- Kvikmyndir
- Leikjadagbók
- Lífstíll
- Minnispunktar
- Piparsveinahornið
- Sjónvarp
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Vinir og fjölskylda
Tenglar
Lesefni
Misáhugavert lesefni
- Fótbolti.net Langbesta íslenska fótboltasíðan
- NewsNowLiver Tenglasafn um Liver
- Sports Guy Afar skemmtilegur penni, skrifar um bandarískar íþróttir og ýmislegt annað frá USA
Blogg sem ég les
Vinir, kunningjar og framandi fólk sem ég les bloggið hjá
- Fríða BifrastarFríða og vinkona hennar
- Ómaríó Skemmtilega pirraður bloggari
- Kúrbíturinn Narti smarti Maldini
- Mái Icelandair ManU kall
- Biggi 5 aur SKO kall og HK-ingur
- Fjóla Verðandi þróunarfræðingur og eilífðarstúdent
- Maja Afar skemmtilegur bloggari þegar hún er ekki allt of löt, geymir piparsveinahornið mitt
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
Eldri færslur
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Ágúst 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
Júní 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 |