Ástþór kallinn

ætlar víst að bjóða sig fram til forseta eina ferðina enn. Þetta væri allt saman voða sniðugt ef það kostaði ekki helling fyrir okkur að halda svona kosningar. Það eru engin lög sem banna fólki að bjóða sig oft fram, held að almennt sé bara gert ráð fyrir því að ef þú býður þig tvisvar fram og færð lítið sem ekkert fylgi þá sé þetta orðið gott.

Mikið vildi ég að Ástþór léti þetta gott heita, hann gæti meira að segja sagst ætla að draga sig út úr þessu og skorað á ríkið að gefa kosningaupphæðina til góðgerðarmála, það væri allavega gæfulegri leið til að eyða peningunum. Nú ef það berast hins vegar framboð frá fleirum en Ólafi Ragnari þá er mér svo sem slétt sama þó Ástþór sé þriðji eða fjórði maður í framboði, alltaf gaman að sjá risaaugun, hann minnir mig alltaf dáldið á einn af hundunum í sögunni um eldfærin.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gísli Torfi

2000 kallinn er bara fígúra sem á heima á stofnun ...þessi varíant hans að fara aftur í framboð er bara ekki fyndið lengur og damn maður nennir ekki að eyða fleiri orðum í þetta hér.. :)

Gísli Torfi, 5.1.2008 kl. 06:32

2 identicon

Vanvirðing við sitjandi forseta og hana Dorrit mína, það væri annað ef hann Ólafur okkar væri nú að standa sig illa en sameiningartáknið okkar heldur vel á spöðunum. Það eitt er víst og hún Dorrit okkar alltaf svo hugguleg og skemmtileg. Spurning um að þú komir þeim skilaboðum til hans Ástþórs að upphæðinni væri betur varið í góðgerðarmál eins og þú segir hér að ofan heldur en að hann fái innan við 3% atkvæða og eyði þar með tíma og fé skattborgara.

Fjóla (IP-tala skráð) 5.1.2008 kl. 12:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband