Bloggfærslur mánaðarins, október 2007
Ég var í Pilates áðan, annar tíminn minn á rétt um viku. Þetta er annars frekar skondið, ég er sem sagt ekki sérlega liðugur að eðlisfari, kannski að fótbolti í nokkur ár hafi eitthvað með það að gera. Ég var reyndar hellings liðugur þegar ég ar svona 15 enda var ég þá búinn að vera eitthvað í marki í handbolta en ég varð síðan eiginlega stirðari með hverju árinu.
Veit reyndar ekki alveg af hverju mér finnst það eftirsóknarvert að verða liðugur, tengist því ef til vill að ég set eitthvað samansemmerki á milli þess og að komast í eitthvað form aftur. Líður allavega alveg bærilega eftir þessa 2 tíma, ágætt að reyna aðeins á sig eftir all langt hlé.
Ætla því að halda áfram að pimpa systur mína, þessir sjö sem lesa bloggið mitt reglulega geta því hringt í 8672727 ef þið hafið áhuga á þessu. Síðasta Pilates færsla er hér ,þar er meira að segja mynd af henni.
Bloggar | 4.10.2007 | 22:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Við gætum alveg eins verið í gíslingu því að þegar við erum að fara út á flugvöll endar Reykjanesbrautin í bílskúr í Hafnarfirði."
, þetta er svo satt hjá honum
![]() |
Erum í gíslingu Garðbæinga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 4.10.2007 | 21:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7 Litháar voru teknir fyrir þjófnað í Reykjavík, Mamma skipti sem sagt yfir á fréttir rétt í þessu þegar ég ætlaði að kommenta á liðin, best að tékka á uefa.com í staðinn.
18.31 Liðin eru Reina, Finnan, Carra, Sami, Aurelio, Yossi, Gerri, Momo, Leto, Hinn Gullfallegi Fernando Torres, Crouching tiger. Hjá Marseille er Cissé og hárið hans á bekknum. Einhverjir aðrir 11 inná.
18.34 Starfsgreinasambandið að kvarta yfir ríkinu, þetta er eitthvað spes fótboltalýsing í tv
18.35 Hinir ríku verða ríkari samkvæmt Skúla hjá starfsgreinasambandinu, ungt fólk kemur sér ekki upp húsnæði. Hellingur af börnum fær ekki að æfa í laugardalshöllinni vegna nató fundar. Ég ætla að skipta um stöð á tv
18.37 Veitingamenn segja að reykingabannið hafi valdið auknu ofbeldi í miðborginni, ég fékk sem sagt ekki að skipta strax um stöð, er heima hjá M&P að horfa á þetta, fiskur í matinn, best að reyna aftur að skipta
18.39 Neibbs, vinstri grænir segja skýrslur sýna að veikleikar séu í efnahagsstjórn ríkisstjórnar, ætli ég fái að horfa á leikinn?
18.40 Ekki stefna ríkisstjórnarinnar að auka viðskiptahalla, shit, Guðni Ágústsson að tala, það er ekki gæfulegt
18.41 Gummi og Logi í settinu, það ætti að verða gott
18.43 Hey, kúl, Zenden er í Marseille og bróðir Bruno Cheryou líka
18.44 Yossi ákvað að gefea ekki inní svona víst ða Crouch var kominn inní, nú er víst kominn matur, best að teygja mig í fisk
19.00 Samkvæmt Gumma er einhver Guivet er sá eini sem lifir úr Marseille liðinu sem spilaði á móti Liver fyrir 3 eða 4 árum, það eru skelfilegar fréttir, hvað ætli hafi komið fyrir?
19.02 Gerri fékk gult, það var eiginlega tómt rugl, veit dómarinn ekki hver hann er?
19.03 Já alveg rétt, ég er að flytja til Hveragerðis með Maju næsta sumar, það verður kúl
19.05 Aurelio með auka fyrir utan teig, beint í dómarann, hann stóð sem sagt svona meter frá veggnum, þvílíkur idjót, það verður eitthvða rautt á eftir held ég, þó þetta sé ekki gróft
19.07 Gæti reyndar orðið víti í staðinn fyrir rautt, allavega eitthvað rugl
19.08 Crouch að tapa löngum skalla, skil ekki alveg hvernig hann fer að því að tapa skalla eftir langa bolta
19.10 Gerets skuldar víst skatta í belgíu, fer víst ekki þangað aftur, samkvæmt Loga ætti hann að vera feginn
19.11 Peter Crouch er ekki mjög góður með löppunum, gefur allavega merkilega sjaldan á samherja, gott að hann er stór, bara ða hann tæki nú uppá því að vinna skallabolta
19.13 Fyrrum landsliðsfyrirliði Jón Pétursson sagði áðan að Torres gæti ekki hlaupið upp í hornið og gefið fyrir, Crouch væri svo seinn að hann kæmist ekki inní, ýmislegt til í því.
19.15 Liver hefur ekki fengið færi, 32 búnar, lítur þokkalega út samt, aðallega af því að Marseille getur ekkert
19.17 Í þeim töluðu orðum skoraði Marseille, reyndar ranglega dæmt af, sem var ágætt
19.18 Yossi er dáldið eins og Messi, fyrir utan hraðann og tæknina
19.19 Leto er ekkert sérlega fljótur, hann er reyndar með dáldið fínt hár samt
19.21 Marseille hefur ekki veirð að senda boltann mikiðð í vitleysu á fyrstu 38 mínútunum, Logi segir að það sé óvenjulegt
19.22 Leto að missa boltann aftur, honum gengur ekki sérlega vel, Torres reyndi svona hliðarlínuvippyfirlöppinatrix, það gekk ekki
19.24 Það á ekki að spjalda menn fyrir að vilja skora á Anfield, þó það sé búið að dæma rangstöðu, allavega samkvæmt Loga.
19.26 Það eru 43 búnar, lítið gerst hjá Liver, þetta verður samt að öllum líkindum svona ósanngjarnt 1-0 fyrir Liver myndi ég halda, hef litlar áhyggjur af þessu
19.28 Torres er einn frammi, Crouch er eitthvað að þvælast alltaf úti á kanti eða í miðjuhringnum, fatta þetta ekki alveg
0-0 í hálfleik, ekki merkilegt, Rúnar Kristinsson og Heimir Guðjónsson í settinu, hefði frekar viljað hlusta á þá en fréttir fyrir leik
Hver skírir köttinn sinn snata, var búinn að gleyma þessari auglýsingu, snilld
Heimi finnst Liver hafa verið skelfilegir, Marseille hefur líka komið Rúnari á óvart. Þeir eru sammála um að rangstaðan hafi verið vitlaus dómur, rétt hjá þeim
Auglýsing með Lazy-boy fótbolta og óperutónlist, já ok, þetta var víst get active auglýsing frá evrópusambandinu, ekki beint í Snataklassa
19.45 Seinni byrjaður, Gummi að hrækja held ég á borðið hjá sér, annað hvort það eða hann er að reyna að bera fram nöfnin á leikmönnnum Marseille
19.48 Liver eru að halda, ætli þeir viti ekki að það er 0-0 og þeir eru heima?
19.50 Yossi að gefa fyrir með hægri, gaf beint í vinstri löppina á sér, síðan á markmanninn
19.51 Momo braut á einum og Logi sagði hálfhissa að Marseillinn væri bara grenjandi
19.53 Finnan með run og góða fyrirgjöf, Crouch ætlaði að reyna klippu, hann var eiginlega einn, en skaut með hægri í vintri löppina á sér. Svipað trix og hjá Yossi rétt áðan
19.56 Hvenær ætli Babel komi inná fyrir Yossi?
19.57 Er einhver á Anfield?, nenniði að skila til Rafa að taka Crouch og Yossi útaf
19.58 Gummi sagði að línuvörðurinn hafi verið hrifnari af því að veifa í fyrri
20.01 Þetta er svipað og fyrri, Marseille er betri. Shit hvað Finnan hlýtur að vera pirraður, hann tók 60 metra overlap en Yossi gat ekki gefið 10 metra sendingu. Carra með spjald fyrir að dýfa sér fyrir mann, ekki fyrsta skiptið sem hann gerir það
20.04 Celtic komnir yfir á móti Milan, skoski boltinn á uppleið, sigur fyrir Howard Wilkinson pælingar í fótbolta
20.07 Jæja, þetta er að verða ágætt, getum við ekki sett Babel inná fyrir Yossa og skorað þetta eina fljótlega
20.09 Cissé inná, Voronin inná fyrir Fabio, Voronin á vinstri kantinn, Riise í vinstri bakvörðinn
20.11 Ég held að Rafa hafi ætlað að taka Torres útaf fyrir Voronin, er hann eitthvað bilaður
20.13 Sami fram í horni, þá kemur Kuyt inná fyrir Crouch, kominn tími til
20.16 Momo að missa boltann í 298675 skiptið í leiknum, Marseille skoraði þvílíkt mark uppúr því 1-0 Marseille og sanngjarnt í þokkabót
20.19 Það eru ekki nema 10 eftir, þetta var eiginlega mínútan sem Liver átti að skora á
20.21 Gummi að tala um að Liver þurfi að passa sig til að Marseille refsi þeim ekki, hvaða máli breytir það eiginlega, þú þarft að vinna heimaleikina í meistaradeildinni, er ekki mikið flóknara en það
20.24 Dómararnir kunna ekki rangstöðuregluna hans Gylfa, það á ekki að dæma rangstöðu ef maðurinn fær ekki boltann. Lítið að gerast annars hjá Liver
20.26 Af hverju ætli menn hlaupi með boltann í 30 metra, beint í áttina að einhverjum, svo þegar þeir eru komnir svona 10 metra frá þá gefa þeir á gaukinn, af hverju ekki bara að gefa boltann strax
20.27 Liver gefins horn, ákváðu þá að gefa boltann aftur til Marseille. Fengu svo annað gefins horn
20.29 Nú eru Liver farnir að pressa, kannski ekki eftir neinu að bíða, það er komið fram í uppbótartíma
20.32 Einn deadari hjá Liver, kannski kominn tími á fyrsta færið svona víst það eru komnar 93.52 á klukkuna
20.34 Búið, 1-0 fyrir Marseille, afar dapurt hjá Liver, þeir voru bara eiginlega lélegir. Lítið annað um þetta að segja, best að loka dagbókinni og horfa á mörkin úr hinum leikjunum
Íþróttir | 3.10.2007 | 18:35 (breytt 6.10.2007 kl. 11:45) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
og stendur við bakið á sínum mönnum. Hann hatar reyndar held ég alla í öllum öðrum liðum hverju sinni en er afar fær þjálfari. Er ekki viss um að það séu til betri þjálfarar á landinu í dag. Hann sagði mér einhvern tímann að Raul væri gunga fyrir að fara ekki frá Real, það væri of þægilegt fyrir hann þar, hvernig væri að Þorvaldur tæki KR, það yrði allavega ekki lognmolla þar get ég lofað.
Sem Fjarðabyggð eða KR fyrir hann að mínu mati, nema náttúrulega að hann fari aftur á AK. og reddi KA úr þessu rugli sem þeir voru í, það væri afbragðs kostur.
![]() |
Vilja halda Þorvaldi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | 3.10.2007 | 15:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
En það verður erfitt fyrir Fjölni að vinna þetta, FH-ingar geta varla sætt sig við að fara dollulausir út úr sumrinu. Pressan er á FH og ég held að þeir vinni, sú spá byggist alfarið á því að Tryggvi skori, hann hefur verið rólegri en venjulega í því í sumar og kominn tími á hann, ef Tryggvi skorar þá vinnur FH en annars hirðir Fjölnir þetta.
Ég held allavega með Gunnunum(Má og Val) og félögum þeirra. Verð á vellinum með Minime, hann heldur væntanlega með Fjölni líka og liðin hans vinna yfirleitt
![]() |
Engin meiðsli í herbúðum FH og Fjölnis |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | 3.10.2007 | 15:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
sem við höfum átt, allavega þessi ca. 20 ár sem ég hef fylgst með boltanum hér heima. Hef þekkt hann ansi lengi og hann dæmdi oft hjá mér. Eiginlega það besta sem hægt er að segja um dómara er að þeir hafi litla þörf fyrir sviðsljósið og séu samkvæmir sjálfum sér. Það á klárlega við um Gylfa. Hann dæmdi meðal annars síðasta "alvöru" leikinn minn, bikarúrslitin 2001. Hörkuleikur sem fór 2-2 eftir framlengingu. Liðin tóku vel á því en Gylfi hélt leiknum frá því að fara í dellu, ekkert gult spjald í leiknum og það var aldrei neitt stórvesen. Við áttum síðan stutt spjall í vítakeppninni, á meðan ég var að laga vítapunktinn eftir að KA maðurinn tætti hann upp í vítinu á undan(Hreinn sennilega). Eftir að ég var búinn að dunda mér við að laga holuna í kringum punktinn spurði Gylfi hvort við ættum ekki að halda þessu áfram, sem ég og gerði.
Ásamt Kristni Jakobs besti íslenski dómari sem ég man eftir, fínn ferill hjá þér Gylfi.
![]() |
Gæsahúð á Celtic Park |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | 2.10.2007 | 11:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)


Bloggar | 1.10.2007 | 20:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
í öðrum kúrsinum sem ég var skráður í. Fannst hann einfaldlega ekki skemmtilegur, sýnist ég taka hann seinna þar sem hann er skylda, þetta eru hvort eð er 6* 1000 orða verkefni og ein ritgerð upp á ca. 4000 orð. Veit allavega núna hvaða verkefni á að gera í þessu fagi þannig að ég hef ár til að klára þau, það er þá væntanlega ekki nema tæpt ár að ég byrji , stefnan ennþá að taka 2 kúrsa eftir áramót. Ég held svei mér þá að ég hefði hætt alveg í náminu ef ég hefði haldið áfram í Kenningum í Þróunarfræðum að þessu sinni.
Það styttist annars í að við Maja flytji aftur til byggða, óneitanlega skemmtilegra að hafa hana á höfuðborgarsvæðinu.
Pabba/Boltahelgi framundan, best að við horfum dáldið á bolta og prófum nýja fótboltavöllinn í Bryggjuhverfinu. Verður skemmtileg helgi allavega.
Búinn að vinna hjá Valitor í 2 vikur núna, er aðeins farinn að komast inní þetta og skemmtilegt fólk að vinna þarna þannig að þetta lítur vel út.
Í stuttu máli sem sagt gaman að vera til og fullt af skemmtilegu stöffi framundan.
Bloggar | 1.10.2007 | 20:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
er sennilega laus fyrir lítinn pening.
**uppfært, eftir að Tottingham jafnaði þá fær Jol líklega 1-2 leiki í viðbót. Það ætti eiginlega að passa betur, þá verður búið að reka Avram frá Chelski þannig að Tottenham þarf þá ekki að borga jafn mikið fyrir hann, enn betra
![]() |
Tottenham vann upp þriggja marka forskot Villa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Enski boltinn | 1.10.2007 | 20:13 (breytt kl. 21:15) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
að vera eina liði sem fellur. Skýringin ef til vill þessi:9 leikir, 1 sigur, 2 jafntefli, 6 töp, markatala 6:17
Þetta er sem sagt árangur liðsins á heimavelli, 5 stig og -11 í markamun, í fyrra fengu þeir 13 stig og voru með +7 í markamun á heimavelli, ekki miklar framfarir þar. Reyndar athyglisvert að sjá líka KR með 9 stig á heimavelli í sumar, 2 unnir og 3 jafntefli. Held einhvern veginn að það sé Víkingum ekki mikil huggun. Reyndar eitt sem Víkingar geta verið ánægðir með, þeir geta varla annað en farið aftur upp á næsta ári, eiginlega bara ÍBV sem verður með gott lið þar, hugsanlegt þó að Toddi komi Fjarðabyggð ofar.
Veit lítið um Magnús Gylfason annars sem þjálfara, hefur ekki náð sérstökum árangri og það er víst mælikvarðinn sem notast verður við. Víkingur er tiltölulega stór klúbbur og ætti að geta fundið sér góðan þjálfara, spurningin núna er hvaða leikmenn þeir missa og þá hvort að það sé í öllum tilvikum svo slæmt(lesist:Grétar S. sem mér finnst vera stórlega ofmetinn).
Gaman að því annars að sjá Val vinna dolluna, Kjartan vinur minn átti það svo sannarlega skilið, rétt eins og aðrir leikmenn Vals. Fh hefði líklega átt að klára þetta en þeir gáfu of mörg færi á sér í sumar, leikir eins og á móti HK verða einfaldlega að vinnast þegar þú ætlar að klára mót.
![]() |
Magnús Gylfason hættur þjálfun Víkings |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | 1.10.2007 | 20:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Pétur Björn
Færsluflokkar
- Alþingi-Rannsóknarskýrsla
- Bloggar
- Ef niðurhal væri löglegt
- Ef veðmál væru lögleg
- Enski boltinn
- Fleyg orð
- Golf
- Gullfallegt
- Hlekkir í keðju skynsamlegra ákvarðana
- Idol
- Íþróttir
- Kvikmyndir
- Leikjadagbók
- Lífstíll
- Minnispunktar
- Piparsveinahornið
- Sjónvarp
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Vinir og fjölskylda
Tenglar
Lesefni
Misáhugavert lesefni
- Fótbolti.net Langbesta íslenska fótboltasíðan
- NewsNowLiver Tenglasafn um Liver
- Sports Guy Afar skemmtilegur penni, skrifar um bandarískar íþróttir og ýmislegt annað frá USA
Blogg sem ég les
Vinir, kunningjar og framandi fólk sem ég les bloggið hjá
- Fríða BifrastarFríða og vinkona hennar
- Ómaríó Skemmtilega pirraður bloggari
- Kúrbíturinn Narti smarti Maldini
- Mái Icelandair ManU kall
- Biggi 5 aur SKO kall og HK-ingur
- Fjóla Verðandi þróunarfræðingur og eilífðarstúdent
- Maja Afar skemmtilegur bloggari þegar hún er ekki allt of löt, geymir piparsveinahornið mitt
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.4.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 94198
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
Eldri færslur
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Ágúst 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
Apríl 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | ||
6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 |
13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 |
20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 |
27 | 28 | 29 | 30 |