Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2007

Liver kl 5

Vaknaði merkilega hress eftir reunionið í gær, smá splinter en ekkert alslæmt. Er að fara að pikka upp Aron í Nóa eftir smá. Væri samt alveg til í borgara og kók núna.

Byrjaði á þessari bloggfærslu af því að ég ætlaði að kommenta um eitthvað sem ég er núna búinn að gleyma, þetta er samt merkilega gott lag og góð mynd


Romy and Michelle´s High School Reunion

eða eitthvað í þá áttina í kvöld.

Veit ekki hvort gaukurinn sem fann up post-it verður þar eða hvort einhver mætir á þyrlu en Boris SvaBja verður á svæðinu ásamt bróðurpartinum af Kennó genginu sem var í 2005 útskriftarárgangnum. Allavega verður skemmtilega fólkið þar. Fer víst í fund/vísindaferð í ÞSSÍ fyrst, ætti að verða athyglisvert.

Allavega, Rex í kvöld kl. 20


Beðið eftir trúðum

Hinn stórskemmtilegi þáttur Klovn er eftir tæpan klukkutíma. Litli maðurinn er sofnaður enda var hann þreyttur áðan þegar við vorum að borða. Hann var kominn í rúmið um hálf átta og dormaði þar í rúman hálftíma áður en hann sofnaði. Rúmið mitt er í norðvesturálmunni en sjónvarpstóllinn minn í vesturálmu þannig að ég sé hann vel héðan.

Var að dunda mér við að leita að bókum handa okkur áðan en endaði á því að finna ekkert sérstakt til að lesa. Aron Freyr var hvort eð er það syfjaður að það skipti ekki öllu. Ég fann hins vegar NEMA ljóð og sögur 2003.

Þetta er sem sagt bók sem Þórður Helgason, kennari í KHÍ, tekur saman á hverju vori eftir kúrs sem heitir Bragur, listin að yrkja. Ég hef ekki skoðað þessa bók í svona 2-3 ár en gaman að fletta í gegnum hana aftur. Ég átti tvö ljóð í henni, annað ferskeytt en hitt sonnetta. Sonnettan er eitthvað sem ég hafði ætlað að spreyta mig á frá því að ég var í Menntaskólanum. 

Ein þessara átta sem lesa bloggið mitt, Hafdís föðursystir mín, er merkileg kona fyrir margar sakir og ekki síst fyrir að skrifa sonnettu sem útskriftargjöf til mín eftir Menntaskólann. Ég fór sem sagt fram á það við hana og fékk sonnettu í útskriftargjöf. Sú er reyndar innrömmuð heima hjá mömmu og pabba en ég set hana hér inn við fyrsta tækifæri.

Ætla hins vegar að setja inn þessi tvö ljóð sem ég samdi snemma árs 2003. Til skýringar má kannski nefna að ég vann þá kvöld- og næturvaktir í Vodafone samhliða því að vera í Kennó og Aron Freyr bjó ennþá á Sauðárkróki.

 

ARON FREYR

Maður næstum mánuð bíður,

mættum gjarnan oftar sjást.

Vinur, þar til vetur líður,

verð að þér úr fjarska að dást.

 

SJÁLFSVORKUNN

Sá tími dags er draugar eru á ferli

mig dreymir um að losna brátt úr síma

ég finna þarf mér fljótt nú góðan tíma

og forðast það að dvelja í dagsins erli.

 

Ég kannski ætti að koma mér að verki,

mér kaffið hugsanlega til þess dugar

er dáldið satt að segja annars hugar

er sennilega bara þreytumerki.

 

Er varla hollt að sofa svona lítið

ég sjálfsagt ætti að vinna aðeins minna

en afborgunum ætlar seint að linna

og oftast ég því sofna í morgunbýtið.

 

Nú þarna úti þykknar næturhúmið

og því ég ætla að koma mér í rúmið


RÚV kl 21.30 í kvöld

Annar þátturinn með snillingunum í Klovn, bara lúðar sem missa af honum

klovn2


Nóvember smóvember

Plebbamánuður.

Dáldið eins og annar hringurinn í golfmóti eða umferð 7-10 á Íslandsmótinu í fótbolta. Það gerist lítið sem ekkert en samt er einhvern vegin slatti sem maður þarf að gera. Ég er ekki að halda því fram að þetta sé jafn slæmt og febrúar eða mánudagur en samt.

Nóvember er dáldið eins og þriðja prófið af tíu eða eins og að eiga fjóra tíma eftir af niðurhali en vita að maður þurfi að fara að sofa eftir tvo, þ.e ef niðurhal væri löglegt.

Í þessum mánuði er samt reunion þrjár helgar í röð hjá mér. Grunnskólinn var um síðustu helgi, kennó næstu og Menntaskólinn þar á eftir, ég ætla reyndar bara á eitt þeirra en skondið að þetta hitti á þrjár helgar í röð.

Nóvember er dáldið eins og sunnudagur í útilegu, helgina fyrir versló.

Desember er hins vegar snilld, skemmtilegasti mánuður ársins, allt á iði og fólk virðist vera stressað en er miklu frekar spennt. Desember verður væntanlega skemmtilegur hjá mér, allavega ýmislegt á dagskránni sem gæti orðið afar skemmtilegt, nú er bara að hanga og bíða á meðan þessi blessaði nóvember klárast.

Nóvember er hörmulegur mánuður fyrir skólafólk, endalaust af verkefnum sem allt í einu eru alveg að komast á deadline en samt ekki nægilega langt komin til að maður sjái endann. Eina  leiðin í gegnum hann er sennilega bara loka sig inni og rumpa því af sem maður veit að þarf að klára. Ekki sérlega skemmtilegt en óhjákvæmilegt.

Desember er framundan, það er fínasta gulrót.


Varaliðsleikur

enda Yossi og Voronin í aðalhlutverki. Þetta var annars eiginlega frekar skondinn leikur. Eftir annað markið varð þetta eins og æfing daginn fyrir leik, alls konar hæltrix sem virka eiginlega bara þá. Verður gaman að sjá hvernig Crouching Tiger og Torres virka saman í næsta leik, það þarf eiginlega að láta reyna á það í svona 5-6 leiki en selja annars Crouch ef það virkar ekki og kaupa einhvern sem getur spilað með hinum gullfallega Fernando Torres. Veit annars einhver af hverju Gerri fór ekki útaf svona korteri fyrr, merkilegt.
mbl.is Liverpool skoraði 8 mörk og metsigur á Meistaradeildinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ef niðurhal væri löglegt

þá myndi ég mæla með þessum 3 myndum, reyndar er vel þess virði að finna þær á vídjóleigunni.

Kiss Kiss Bang Bang

Thank you for smoking

Peaceful Warrior


Uppáhaldslistinn minn

Þetta er þær 5 myndir sem eru í mestu uppáhaldi hjá mér.

Ekki endilega í réttri röð

Ford Fairlane

A Few Good Men

Seven

A time to Kill

Fucking Åmål-líklega næstbesta mynd allra tíma, á eftir Punktur Punktur Komma Strik að sjálfsögðu


Ef niðurhal væri löglegt

væri ég að horfa á Ewan MacGregor og félaga sem keyrðu kringum heiminn á mótórhjólum, ágætis þættir

og þetta


Leikjadagbók Blackburn-Liverpool 3.11.2007

Bifröst, kaffihúsið nánar til tekið. Sérlegir gestir eru Jón Bjarni og eitthvað gengi: Hjalti, Sara, Sandra, Tryggvi, Berglind

Liðið er víst eftirfarandi, Reina,Finnan,Sami,Carra., Riise, Babel,Mascherano, Xabi,Yossi,Gerri og Kuyt(lesist:kát)

16.55 Var að horfa á Newcie brown ale tapa fyrir Portsmouth

16.57 Sýnist þetta vera svona 3-0 fyrir Liver

16.59 Owen er með tölfræði eftir leikinn, ekki samt jafn góða og mmanrlkhaegh lkh sldghsdghl sem er senter hjá Portsmouth

17.00 Jón segir að Gerri eigi eftir að skora, ég segi bara þetta

17.05 Gummi Ben að lýsa, sem er afar gott, hann kann fótbolta og veit slatta, vildi samt óska þess að hann gæti sagt Kát en ekki kújt

17.08 lalalalalala, Gummi er að fara yfir leiki dagsins, mér er svo sama

17.10 þetta fer að verða þreytandi, meira hjal um leikina, jón farinn að snýta sér, sem er betra en að ekki bara bora heldur borða úr nefinu

17.11 Gerri er fyrirliði, það eru jafn miklar fréttir og að sjálfsstæðisflokkurinn sé við völd

17.13 ég held að Agger verði klár eftir viku, Sami þarf frí, jón segist vilja frekar nota crouch, rétt að taka fram að jón kann ekki fótbolta

17.15 af hverju langar mig meira að hlusta á þetta

 

17.18 Ægir mættur, það er jafn mikilvægt og að það séu hornfánar

17.19 Benni og Hinn eru frammi hjá Blackburn, þeir eru báðir betri en Kát, er samt að pæla í því hvort Kát sé góður. ég veit það eiginlega ekki, væri almennt betra að vera viss með 10 m punda senter

17.20 Jón að fara út að reykja, ætla að tékka á honum , aftur eftir 3

17.23 það er hægt að tippa á leikinn á 1x2.is

17.25 Rafa stal bindinu hans M.J fox úr secret of my success, rauut sem sagt. Það er ekki crap að gerast í leiknum

17.26 Það er hellings pizzulykt hér, væri samt betra að fólkið sem borðar pizzuna færði sig frá tv-inu, Gerri gaf á engan en fékk innkast

17.30 kominn með annan bjór, sem er gott, það er jafn mikið að gerast í leiknum og í vinstri grænum, þettta bara svona er, langur skalli frá blackburn sem skilaði ekki miklu 

17.32 það er gott fyrir kuyt að hann á cash money, hann er ekki fríður, reyndar ekki á shrek/quasimodo leverl en samt

17.34 rúmlega korter búið en ekki mikið að gerast, reyndar ekki jack, pennant er frá vegna meiðsla, sem er gott, allavega fyrir Liver

17.36 horn hjá Black en það fór afturfyrir, Jón var að tala um að Eboue vaxi í hverjum leik, æ ég veit það ekki

17.51 skot í stöng hjá blackburn, goddammitt það gerist aksjúallí ekki í leiknum

17.38 mér sýnist ég ekki nenna þessu, er hættur nema að ég hendi inn ef eitthvað gerist, í leiknum eða veðrinu


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband