Bloggfærslur mánaðarins, maí 2008
ég skrifaði færsluna hér á undan gerðist ég heldur sjálfhverfur og endaði með þetta,
150
Ég tala um margt og ég töluvert segi
ég tímanum stel og svo vona að ég megi.
Á mínum vegi á mögnuðum degi,
svo margt ég teygi og jafnvel beygi.
Bloggar | 31.5.2008 | 23:44 (breytt 1.6.2008 kl. 15:49) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Hef verið að velta því fyrir mér hvernig ég á að lýsa ferðinni norður og suður. Var að punkta hjá mér það sem flaug í gegnum hugann á leiðinni norður og það var einhvern veginn svona
Leiðin
Á langri leið á hrjóstrugu landi
á sólríkum degi á skrykkjóttum sandi.
Við þokuðumst nokkuð því Boratinn þandi,
við brátt hittum fólkið er tengjumst blóðbandi
Hugurinn reikaði heilmikið þó,
hress ekki í bragði því frændi minn dó.
Doði og nokkur deyfð en samt ró
dauðinn hann nýverið góðan mann hjó
Bloggar | 31.5.2008 | 23:15 (breytt 1.6.2008 kl. 15:49) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
í auglýsingu
Bloggar | 31.5.2008 | 02:23 (breytt kl. 02:23) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
á morgun og Raufarhöfn á föstudag.
Líklegast alla leiðina til baka á föstudagskvöldið eða allavega á akureyri. Kemur í ljós síðar
Bloggar | 29.5.2008 | 00:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
verður dáldið spes. Vinna fram á fimmtudag en við pabbi keyrum síðan á Raufarhöfn á föstudag og til baka um kvöldið.
Vonandi landsleikur annað kvöld með minime, tékka betur á því á morgun. Styttist í Svíþjóðarferðina góðu, þægilegur tími sem sagt framundan þó ég reyndar þurfi að vinna slatta í ferðinni. Sjáum til hvort ég kemst ekki í eitthvað golf. Bessi er í æfingabúðum á Spáni, sendi sms þar sem hann þóttist hafa skorað 85, ég get illa samþykkt það þegar hann er að spila með konunni, sem leyfir honum örugglega að taka Mulligan eftir öll léleg högg
Eva systir mín er mikill húmoristi, segir reyndar marga af verstu bröndurum sem ég hef heyrt en hún hefur gaman af þeim, það er fyrir mestu
Best að enda þetta á sigurvegara Idol 2008.
Bloggar | 27.5.2008 | 12:00 (breytt kl. 12:01) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nenni yfirleitt ekki að tjá mig um svona hluti en ætla að segja tvennt.
Gaupi er njóli, já og Maggi Gylfa er ekki allt of skýr lýsandi
Guðjón Þórðarson hafði algjörlega rétt fyrir sér, það sem hann sagði um fitubolludómarann Ólaf Ragnarsson er rétt.
Guðjón verður sennilega sektaður en réttast væri að sekta aganefnd ksí fyrir það og að rassskella dómaranefndina. Stefán er í akkúrat engu uppáhaldi hjá mér, mér finnst skandall að hann hafi verið valinn í landsliðið en þessi tvö gul voru tóm della.
Ólafur Ragnarsson er reyndar versti dómari síðan Eyjólfur Ólafsson var að dæma en kommon, af hverju fær svona majones að dæma eitthað annað en innanhúsmót í brekkuboccia
** uppfært, gaman að bæta því við að Ólafur Ragnarsson féll nokkrum sinnum á þrekprófinu, náði því reyndar ekki fyrr en hann fékk einkameðferð frá ksí.
Keflavík með fullt hús stiga eftir 3:1-sigur gegn ÍA | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 25.5.2008 | 22:51 (breytt 26.5.2008 kl. 20:40) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Páll bróðir mömmu dó á föstudaginn.
Sennilega fyrsta minningin mín um hann var þegar við fórum að heimsækja hann á Sogni, einhvers konar íþróttaleikar í gangi, allavega gleði. Það er held dáldið lýsandi fyrir hann, þ.e. það var gaman að hitta hann og líf í kringum hann. Ég man varla eftir honum öðruvísi en með bros á vör.
Við Dagur eyddum afar eftirminnilegu sumri árið 1990 á Raufarhöfn. Spiluðum fótbolta og unnum í Kaupfélaginu en þó aðallega nutum þess að vera til. Við eyddum eðlilega töluverðum tíma heima hjá Páli og Angelu og ég get sagt fyrir hönd okkar beggja að okkur leið alltaf eins og heima hjá okkur.
Það væri líklega að æra óstöðugan að telja upp sögurnar sem hann sagði mér en hann var líkur afa að því leyti, hafði skemmtilegt lag á því að segja sögur og var óhræddur við að segja frá því því sem hann hafði fundið uppá á yngri árum.
Hann var góður kall, mér þykir afar leiðinlegt að hann sé farinn og ég á eftir að sakna hans, bless Palli
Bloggar | 25.5.2008 | 19:04 (breytt kl. 19:04) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
er hér þetta lag aftur
Skee-lo I wish
Bloggar | 22.5.2008 | 00:20 (breytt kl. 00:21) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
ekkert golf í dag, sjónvarpið hins vegar klárt, einhverjar aðrar, misjafnlega skemmtilegar breytingar á vikuplaninu en fæ minime allavega á föstudag.
meistaradeildin á morgun, úrslit í idol eftir það, klukkuna vantar eina mínútu í næstu mínútu og hér er næsta lag.
Bloggar | 20.5.2008 | 15:10 (breytt kl. 15:11) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
stefnir í að verða skemmtileg.
Fyrsti golfhringur sumarsins á þriðjudag með Sir Makan og vonandi Finni.
Fæ minime um næstu helgi, fótbolti og golf reikna ég með, jafnvel ferð í bústaðinn.
Úrslitin í Idol á miðvikudagskvöld, ef niðurhal væri löglegt þá sæi ég líklega þáttinn á fimmtudag. Ég spái því að David vinni.
Slatti að gera í vinnunni en ég þarf líklega ekki að vinna allt of mikið frameftir. Finn mér væntanlega eitthvað skemmtilegra að gera á kvöldin.
Þarf að kaupa mér nýjan golfpoka, það er óttaleg tímasóun en ég þarf að geta nálgast golfkúlur og annað í pokanum, eftir að ná í það þegar rennilásarnir eru rygaðir fastir. Minnispunktur fyrir næsta vetur, ekki geyma golfpokann í bíl með engri miðstöð, hætta á að eitthvað ryðgi.
Jón Bjarni, hinn mikli snillingur, er á Alicante með Vodagenginu, fæ regluleg update frá honum. Hann finnur sér að jafnaði eitthvað skemmtilegt til dundurs. Margir í heiminum leiðinlegri en Jón.
Úrslitaleikurinn í meistaradeildinni á miðvikudag, vona að ManU vinni en er smeykur við að Chelski vinni þetta. Verður allavega fróðlegt að sjá hvor dettur oftar, Drogba eða Ronni.
Ef niðurhal væri löglegt væri ég að horfa á big brother 3 uk. Þessir þættir eru allt öðruvísi en bandarísku bb þættirnir, í bresku er bannað að ræða hverja eigi að reka út. þetta verður þess vegna dáldið döll á köflum en reyndar í staðinn "raunverulegra" fyrir vöntun á betra orði.
Stórlið Moppunnar gerði jafntefli við Puma í kvöld 3-3, Daníel Geir að dæma, merkilegt nokk fékk Moppan víti í lokin sem þeir jöfnuðu úr.
Sumardekkin komin undir Boratinn, hljóðlátari bíll fyrir vikið. Þægilegt annars að búa í miðbænum, ég nota bílinn sama og ekkert. Ekki alvitlaust að geta rölt Laugaveginn í kaffitímanum, svona ef ég væri með kaffitíma.
Horfði á So i married an axe murderer um daginn, snilldarmynd sem ég reyndar séð verulega oft áður. Best að kveðja með einhverju úr þeirri mynd....
Bloggar | 18.5.2008 | 23:03 (breytt kl. 23:19) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Um bloggið
Pétur Björn
Færsluflokkar
- Alþingi-Rannsóknarskýrsla
- Bloggar
- Ef niðurhal væri löglegt
- Ef veðmál væru lögleg
- Enski boltinn
- Fleyg orð
- Golf
- Gullfallegt
- Hlekkir í keðju skynsamlegra ákvarðana
- Idol
- Íþróttir
- Kvikmyndir
- Leikjadagbók
- Lífstíll
- Minnispunktar
- Piparsveinahornið
- Sjónvarp
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Vinir og fjölskylda
Tenglar
Lesefni
Misáhugavert lesefni
- Fótbolti.net Langbesta íslenska fótboltasíðan
- NewsNowLiver Tenglasafn um Liver
- Sports Guy Afar skemmtilegur penni, skrifar um bandarískar íþróttir og ýmislegt annað frá USA
Blogg sem ég les
Vinir, kunningjar og framandi fólk sem ég les bloggið hjá
- Fríða BifrastarFríða og vinkona hennar
- Ómaríó Skemmtilega pirraður bloggari
- Kúrbíturinn Narti smarti Maldini
- Mái Icelandair ManU kall
- Biggi 5 aur SKO kall og HK-ingur
- Fjóla Verðandi þróunarfræðingur og eilífðarstúdent
- Maja Afar skemmtilegur bloggari þegar hún er ekki allt of löt, geymir piparsveinahornið mitt
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
Eldri færslur
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Ágúst 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
Des. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 | 31 |