Færsluflokkur: Ef niðurhal væri löglegt

Ef niðurhal væri löglegt

Þá væri ég að horfa á Mr.Brooks með Kevin Costner og Demi Moore, hún byrjar ágætlega en ég veit samt einhvern veginn að þetta getur ekki verið góð mynd. Costner hefur ekki verið góður í mynd síðan Köben brann.

Hlakka til næstu daga og vikna, skóli á morgun og meira að læra í vinnunni, fæ Aron Freyr til mín um helgina, það er alltaf gott, mér líður vel með litla manninn hjá mér og hann hefur gaman af því að koma til mín.

Best að setja inn eitthvað með kannski uppáhaldstónlistarmanninum mínum, Harry Connick Jr.


Eðlilega

tekur crouching tiger stöðuna af heskey enda getur hann ekki neitt. Verð á leiknum í rigningunni á morgun ásamt fyrrum landsliðsfyrirliða Jóni Péturssyni og Aroni Frey, sérlegum knattspyrnuráðgjafa og verðandi leikmanni Barcelona. Það virkaði fínt síðast og verður vonandi jafn skemmtilegt og á laugardaginn.

Styttist í starfslok hjá Voda, síðustu dagarnir og ég er svona að átta mig á þessu. Merkilegt nokk þá hlakka ég annars til skólans á fimmtudag, mun skemmtilegra fag á fimmtudögum og miklu færri í tímanum eða kannski er það bara það að ég er eini gaukurinn þarna.

Ef niðurhal væri löglegt væri ég búinn að vera að horfa á Louis Theroux, breskan gauk sem gerir skemmtilega heimildamyndir um mannlífið, aðallega furðufugla í USA, smá sýnishorn hér

Skemmtileg helgi framundan líka, ætla að læra smá og horfa á slatta af fótbolta,

lofa leikjadagbók(um) fyrir Jón Bjarna, svo lengi sem ég ákveð ekki að fara að þrífa, reyndar megið þið þá gjarnan koma hér við og löðrunga mig því þá er eitthvað að.


mbl.is Tekur Crouch stöðuna frá Heskey?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Seinfeld 1-5 The Stock Tip

1-5

http://www.tv.com/seinfeld/the-stock-tip/episode/2245/summary.html

Jerry, George og Elaine á kaffihúsinu. Elaine að deita einhvern sem á ketti, hún er með ofnæmi. Þekki engan karlmann sem á ketti, ætli það sé einhver karlmaður sem býr einn og á ketti? Jerry keypti hlutabréf eftir ábendingu, virkaði ekki sýnist mér. Hann er í skyrtu sem myndi sóma sér vel á hvaða bleikfataþemadegi sem er. Kramer er með frábæra viðskiptahugmynd, bindisendurnýtanleikistól, hvað sem það er.

George fékk viðskiptatip, hlutabréf, virkaði ekki, kemur á óvart. Reyndar fyrr en Jerry seldi, þá hækkaði það upp úr öllu valdi. George græddi slatta og kemur með nýtt tips, þetta fer ekki vel held ég. Þátturinn og serían búin, verst að fá ekki að vita neitt um hlutabréfið, það er erfiðara að skrifa um sjónvarpsþtti þegar maður er að spjalla eitthvað á msn, ég get ekki almennilega gert tvennt í einu, varla reyndar eitt í einu.

Ágætri fyrstu seríu lokið, svona ágætis byrjun, þetta gætu orðið langlífir þættir Smile

Annars er gjarnan talað um í USA að Seinfeld og Cheers séu bestu gamanþættir sem hafa verið búnir til þar. Er meiri Friends kall en Seinfeld eru skemmtilegir "það er ekki nokkur spurning"


Seinfeld 1-4 Male Unbonding

1-4

http://www.tv.com/seinfeld/male-unbonding/episode/2244/summary.html

Jerry og George í lyftu. Ræða um samskipti kynjanna, þetta virðist ætla að verða þema eins og ég spáði. Kramer í símanum heimá hjá Jerry þegar hann kemur heim. Er að ræða við einhvern sem Jerry vill ekki tala við, Kramer rétti honum þá eðlilega símann. Kramer fer þá að tala í sinn þráðlausa síma, þetta er frá júní ´90, síminn er frekar stór. Jerry að ræða um hvað það er auðvelt fyrir stráka að verða vinir, tölum hvort eð er ekki um neitt annað en íþróttir og stelpur, þetta er fyrir tíma tölvuleikjanna, gætum annars bætt þeim við og þá ætti þetta við núna. Jerry að segja vini sínum upp, það er heldur mikið, hann á að hætta að hringja, það er viðurkennda leiðin til að hætta með einhverjum.

Lenti á msn-spjalli, mulligan á þennan þátt, ekki víst að þetta verði síðasti mullinn


Seinfeld 1-3 The Robbery

1-3

http://www.tv.com/seinfeld/the-robbery/episode/2243/summary.html

Jerry og Elaine stödd í íbúðinni hans, hann er fljótur og góður að pakka. Lætur Elaine fá lyklana, fer svo yfir reglurnar í íbúðinni, bannar henni að hafa sofa hjá í íbúðinni en ef hún verður þá eigi hún að nota baðkarið, ætli hún verði að hafa vatn í því? hvernig ætli það sé án vatns, held að það sé betra í vatni. George mættur að bjóða Jerry nýja íbúð, Elaine segist vilja fá íbúðina, það sé skref upp á við, svipað og að flytja frá Íslandi til Finnlands. Þegar Jerry kemur til baka er búið að stela sjónvarpinu og vídjóinu, Kramer hafði komið við í íbúðinni og gleymt að loka hurðinni eftir að hann náði í stöff.

Löggan kemur og tekur skýrslu, segist aldrei finna neitt. George mætir á svæðið með þungan svip, tilbúinn með lykla að nýju íbúðinni sem Jerry á að skoða. Ef niðurhal væri löglegt þá væri ég að ná í myndir fyrir mömmu og ömmu um helgina, þær verða í bústað.

Jerry, Elaine og George eru að skoða íbúð, fín íbúð, ég held að hann flytji ekki. Hmm... vitlaust hjá mér, Jerry ætlar að flytja. George mættur með leigusamninginn og segir Jerry að leigja hana ekki ef hann er ekki viss, myndi kannski sjálfur leigja nýju íbúðina ef Jerry tekur hana ekki, varð abbó þegar þeir voru að skoða. Þeir eru að rífast um hvað sé löglegt peningauppkast, telur það ef peningurinn fer í borðið? Jerry vann íbúðina en George farinn í fýlu, hmm kannski ekki pottþétt að hann flytji, ætli Kramer myndi flytja með honum?

George og Jerry á kaffiveitingadelihúsinu, stelpa af veitingahúsinu fékk íbúðina, þremenningarnir eru ekki ánægðir fyrir hennar hönd. Íbúðin var víst nálægt central park, ég´fór eitthvða að hugsa um það og mundi þá eftir plöntunni í horninu hjá mér, eitthvað svona hálftrédót, hún er dauð greyið, ég hef sennilega ekki vökvað hana síðan í mars, það gæti verið ástæðan, já og að ég er með gluggatjöldin dregin fyrir í horninu þar sem hún er, ég fer sjaldan þangað reyndar, er í annari álmu í íbúðinni, ég bý í tæplega 50 fm.


Seinfeld 1-2 The Stakeout

1-2

http://www.tv.com/seinfeld/the-stakeout/episode/2242/summary.html

Elaine og Jerry að leita að vídjómynd, Elaine segist vera búin að sjá allt en Jerry dregur þá fram klámmynd sem hann segir Elaine ekki vera búna að sjá. Þau eru fyrrum kærustupar, semja um að hann komi með henni í afmæli ef hún komi með honum í brúðkaup helgina á eftir, svona til þess að þurfa ekki að fara ein. Erfitt að pikka eitthvað upp þegar þú kemur með date, þó það sé ekki date. Jerry að lýsa því sem hann er að hugsa, svona sögumaður, þetta verður held ég ekki langlíft. Elaine er frekar myndarleg, spái því að hún verði lengi í þáttunum

Ég held að Jerry sé í rúskinnsjakka, svona hangandi týpu, skipt yfir á Jerry á sviði, hann er með dáldið annan stíl en Larry the cable guy. Jerry kemur heim og foreldrar hans eru sofandi á sófa í stofunni, heimsókn frá Flórida.

Þór frændi að hringja, hann er í Fjöltækniskólanum, er að byrja í skóla eftir 17 ára hlé, förum yfir stöðuna í næstu viku, missti af einhverju í þættinum á meðan, aðallega vandræðalegum aðstæðum þegar fólk hættir saman og ætlar að vera vinir, eru að ræða samskipti kynjanna og samskipti almennt, held að þetta gæti orðið ákveðið þema...., Jerry á sviði í jakka sem er úr svona doppóttu fjölbýlishúsaþvottahúsgólfefni held ég, allavega sá stíll


Seinfeld 1-1 The Seinfeld Chronicles

Best að byrja, er staddur í hægindastól í Jórsölum, verður líklega samastaðurinn ófáa tíma næstu vikuna.

1-1

http://www.tv.com/seinfeld/the-seinfeld-chronicles/episode/2241/summary.html

Jerry og George eru að ræða við konu sem þjónar á kaffihúsinu sínu, ætti þetta að kallast veitingahús eða kaffihús? deli? Allavega eru þeir að pæla í því hvort kona sem Jerry þekkir ætlar að hitta hann þegar hún kemur í heimsókn til N.Y. Ræða þetta á meðan þeir fara í þvottahús, svona laundromat, einhverra hluta vegna sest Jett uppá borð og krossleggur fætur, vissi ekki að nokkur karlmaður sæti svona, spái því að maður sjái þetta ekki oft. Þættirnir byrja alltaf á Seinfeld á sviði, ræða eitthvað sem tengist efni þáttarins, sniðug hugmynd, ætli þetta verði svona í öllum þáttum?

Shit hvað Jerry er í rauðum íþróttabuxum, þetta er frá júlí ´89, man samt ekki eftir að þetta hafi verið ásættanlegt þá, Kramer mættur yfir kl 1 um nótt með brauðsneið í hvorri hendi, spyr Jerry hvort hann eigi kjöt, spái því að Maja eigi eftir að fá nokkur svona bönk frá Jóni Bjarna, nýja nágrannanum sínum. Hann er síðan í íþróttaskónum sínum inni, það er dáldið bandarískt reyndar, fattaði það aldrei þegar ég bjó þar. 

George mættur með sixpensara, hann gæti litið illa út sem ósýnilegi maðurinn. Kramer aðeins æstur, virkar á mig sem æst týpa, hmm. Þeir ræða dáldið samskipti kynjanna og hvernig túlka eigi hin ýmsu merki sem fólk gefur, gæti orðið þema.....

Merkilegt nokk fór hann núna úr skónum inni hjá sér, samt ekki þegar hann kom inn heldur eftir ða hann var búinn að labba út um alla íbúð, sérkennilegt.... kom í ljós að stelpan sem hann þekkir lítið og fékk að gista hjá honum er trúlofuð, held að hann sé vonsvikinn, ekkert aksjón þá væntanlegt, hey kúl, þættirnir enda síðan á því að skipt er yfir á Jerry á sviði aftur, þetta er basically standup og sketsjar. Þáttur 1 búinn, 3 standup sem sagt og engin Elaine að sinni. George í fasteignabransanum virist vera, gengur þokkalega.


Vegna fjölda áskorana er ég ekki byrjaður

á Seinfeld ennþá. Eins og sést á kommentunum þá er að verða fullbókað í Seinfeld um helgina, gæti verið eitt laust pláss þannig að það fer hver að verða síðastur að eyða helgi í að horfa á allt of mikið TV. Ef niðurhal væri löglegt þá hefði ég verið að ná í Earl, þátt 2 af Californication og mynd sem heitir School for Scoundrels með Billy Bob Thornton. Ég væri þá búinn að horfa á þættina og væri að horfa á þessa mynd í þessum skrifuðu orðum. Mikil tímaeyðsla enda ekkert að gerast í henni, snilld því þá breytir litlu þó ég missi af slatta við að skrifa þetta.

Maja vinkona mín er að fara á Bifröst og það án þess að heimsækja mig, dapurt verð ég að segja. Sérstaklega þar sem að allt stefnir í að ég verði ekki með henni um áramótin, höfum nefnilega unnið saman síðustu 3 áramót, good times. Fjóla vinkona okkar beggja er síðan flutt á varnarliðssvæðið, ágætt að það er hægt að senda henni tölvupósta til yfirlestrar en ég á eftir að sakna hennar úr tímum, þó hún hafi skrópað ótrúlega oft síðasta vetur.

Minime byrjar í skólanum á morgun. Hörðuvallaskóli heitir nýi skólinn hans og mér líst afar vel á hann. Skólastjórinn er klár náungi og stefna skólans áhugaverð.

Best að kveðja að þessu sinni með Eminem, þeim mikla snillingi.

Stan, Lose Yourself, Toy Soldiers, Mosh og Mockingbird


Enn einn hlekkurinn í keðju skynsamlegra ákvarðana - Seinfeld

Ef niðurhal væri löglegt hefði ég verið að ná í alla Seinfeld þættina. 9 seríur, 180 þættir, hver þeirra rúmlega 20 mín þannig að þetta eru á milli 60 og 70 klukkutímar. Það eitt og sér er ekki sérlega merkilegt, reyndar ekki hitt heldur að ég ætla að horfa á þá á næstu vikunni eða svo. Er að vinna á föstudagskvöldið og tek síðan til við þetta. Minime verður í bústaðnum með mömmu og pabba og ég ætlaði að chilla um helgina þannig að þetta er líklegra ekki verra en hvað annað. Ég held að ég sé búinn að sjá flesta þættina en sé hvernig verður að sjá þetta allt í röð, hef einhvern tímann gert þetta við Friends þættina og þar sem að ég er afar ófrumlegur þegar kemur að því að drepa tímann þá datt mér þetta einna helst í hug.

Liver er reyndar að spila um helgina og ég ætla eðlilega að horfa á Torresgengið spila. Var að horfa á Chelski leikinn með Degi og Minime þannig að ég sleppti leikjadagbók en ætla að skrifa leikjadagbækur um leiki helgarinnar, Jón Bjarni verður þá ekki jafn ráðvilltur þessa helgi.

Ætla að skrifa það sem mér dettur í hug um alla Seinfeld þættina, svona þáttaskýringu, ég veit að þessir 4 sem lesa síðuna mína og ekki eru ættingjar mínir eru afar spenntir. Þið getið þá dundað ykkur við að refresh-a síðuna um helgina til að sjá hvað er að gerast í Seinfeld. Spennustig á við þetta hefur líklega ekki komið upp síðan ég var í Svíþjóð og var reglulega að segja Pétri hvað var að gerast í massalangri Tom Clancy bók sem ég var að lesa ásamt því að segja honum hvað var að gerast hjá mér í manager, Pétur Hafliði er lífsglaður maður en ég held að hann hafi verið kominn hættulega nálægt því að skera af sér eyrun þann mánuðinn. Allavega eitthvað sem þið getið hlakkað til.

Ef niðurhal væri löglegt hefði ég líka verið að ná í Bourne Ultimatum og væri að horfa á hana á meðan ég skrifa þetta. Mér þætti þetta þá vera ágætis mynd, allavega væri hún að byrja ágætlega.

Ég gæti reyndar eytt helginni í að undirbúa veturinn með því að lesa eins og eina bók en það myndi meika allt of mikið sens. Áhugasamir eru velkomnir í Jórsali um helgina en þeim hinum sömu er þá bent að taka með sér eitthvað ætilegt því ekki verður eldað hér, það tæki tíma frá Torresgenginu, Seinfeld, Kramer, Elaine og George   


Ef niðurhal væri löglegt

væri ég að horfa á Rush Hour 3 í vonlausum gæðum og þætti hún vera eins og hinar tvær, alveg þokkaleg skemmtun.

Miðvikudagurinn verður annars skemmtilegur, næ í Aron Frey fljótlega eftir hádegi og við förum með afruglarann í Naustabryggju. Þar tekur við Liver kl 14.30 og eftir það ManU og Chelski leikir. Ætti að verða afskaplega skemmtilegt enda Minime mikil knattspyrnubulla. Hann verður svo hjá mér annað kvöld þannig að ég geri ráð fyrir að við höldum áfram með Harry Potter, hlakka til að lesa bækurnar með honum í vetur. Skólinn hans byrjar eftir rúma viku, sem er afar gott, ekki síst í ljósi þess að skólinn hans er ekki svo langt frá mér.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband