Færsluflokkur: Bloggar

Season 2

búið, töluvert skemmtilegra en fyrsta eða kannski að ég sé bara farinn að venjast þessu. Maja fær hrós fyrir að fá mig til að ná í þetta, munaði litlu að ég hætti þegar þetta hópgrenjatriði kom í fyrstu seríu en nú líst mér ágætlega á að horfa á þriðju.

Strákur sem vann aðra seríuna líka. Þar sem reppið er löngu ónýtt þá er jafn gott að enda á að setja inn atriði með honum.


Ókídókí

so you think you can dance í tv, er eiginlega að bíða eftir nfl sem byrjar kl 6 en reyndar seinni leikurinn í tv kl hálf tíu. Minime farinn heim, ætlaði held ég að fara að leika við Hlyn vin sinn, gaman að því að hann sé búinn að eignast vini í nýjum skóla og hverfi.

Fór með Degi á Jesus Christ Superstar í gær, skemmtileg sýning og dáldið öðruvísi. Eva, Niclas og co. koma í vikunni, verður snilld að hitta þau aftur. Ég fer sjaldan á tónleika eða í leikhús en sjáum til hvort ég fari á Rufus Wainwright tónleika í apríl, fer eftir því hvort ég næ að draga einhvern með mér. Ef þið vitið um einhvern sem langar á þessa tónleika þá megiði láta mig vita Smile.

Vissi svo sem ekki mikið um þennan dúdda enda ekki mikill tónlistarspekúlant en er búinn að vera að hlusta aðeins á það sem ég fann á youtube, virkar gott þó reyndar sé ég farinn að velta því fyrir mér af hverju allir virðist þurfa að kóvera hallelujah, frábært lag en samt.

Kveð því að sinni með Rufus


Leikjadagbók Middlesbrough-Liverpool 12.1.2008

Naustabryggja 29, sérlegur gestabloggari Aron Freyr, sem er að borða flatköku með hindberjamarmelaði.

14.49 best að tékka á liðinu, leikurinn er á sýn extra 1 þannig að það er lítið um stúdíóspjall

14.50 Liðið er Reina, Finnan, Carra, Hyypia, Arbeloa, Yossi, Gerri, Mascherano, Rise, hinn óviðjafnanlegi Andryi Voronin og hinn gullfallegi Fernando Torres. Ekki alveg uppáhalds uppstillingin mín, 6 varnarmenn, 2 varaliðsmenn og svo Gerri/Torres. Bekkurinn er Itandje, Agger, Alonso, Babel, Kuyt

14.54 Þorsteinn Gunnarsson er einn að lýsa, ætli það megi ekki segja fólki upp á þessum stöðvum, af hverju er ekki löngu búið að skipta Gaupa og Þorsteini út? Arnar mætti líka gera eitthvað annað en hann er svona level-i fyrir ofan Gaupa/Þorstein en það segir svo sem ekki mikið

14.56 Liðið hjá Boro er einhvern veginn, þekki engan sem heldur með Boro þannig að ykkur er sennilega jafn sama og mér hver er í liðinu hjá Boro.

14.57 Skrtel er ekki í hópnum, ekki heldur hlkajdhg, alerhkajg eða kjsrgkgf. Meira ónafnið þessi nýi gaukur, þarf að finna eitthvað nikk á hann, reyndar sá ég eina mynd þar sem hann minnti mig á private pyle úr full metal jacket, ekki hrós en allavega eitthvað, reynum Martin samt til að byrja með

14.59 Leikurinn er byrjaður og Voronin er með tagl, verst að það er ekki alveg nógu sítt til að fela það að hann er nr 10

15.01 Byrjar Þorsteinn að tala um framtíð Mascherano, bæði veit hann ekkert um það og eins skiptir það engu um þennan leik. anywho, boro fékk fyrsta hornið en ekkert varð úr því Riise reyndi sendingu á engan sem tókst ekki, hann hitti einn Boro kall

15.04 Hreinsunardellan sem kostaði okkur á endanum wigan leikinn er byrjuð aftur, gerri og arbeloa báðir búnir að hálf klúðra hreinsunum

15.06 Þorsteinn núna að mala um að það eigi eftir að líða þónokkur ár áður en að Liver getur unnið deildina, það getur svo sem vel verið að Liver vinni ekki næstu ár en á tíma þar sem t.d Chelski gat farið úr meðalmennsku í topplið á 2-3 árum með því að henda peningum í liðið þá er þetta dáldið spes komment, eiginlega bara bull, kemur svo sem ekki á óvart miðað við þulinn

15.08 Klafs og Liver fær horn sem gerri og riise tóku stutt, Gerri fékk ágætt skotfæri uppúr því en varið í annað horn

15.10 downing street með skot framhjá, hann er markahæstur í boro, með 4 mörk í deild

15.11 Arbeloa að klúðra annarri hreinsun, síðan dæmt á Hyypia fyrir að aliadiere henti sér niður, skulum kalla það ronaldotrix

15.14 Ekkert vaðr úr aukanum, annað en reyndar að mascherano fékk boltann í hausinn og vankaðist, voronin var núna að reyna 15 metra hliðarbringusendingu sem klikkaði merkilegt nokk

15.15 Riise er örvfættur

15.16 Mashcerano er eiginlega örfættur, allavega ekki sérlega stór

15.18 tuttugu búnar og lítið að gerast, ætli það tengist því að við erum með 6 varnarmenn og tvo varaliðsmenn inná

15.20 Voronin með hælspyrnu á einhvern boro kall, ekkert spes hjá honum en þó hæll

15.23 eina böggið við að slökkva á hljóðinu er að þá missir maður vallarhljóðin, af hverju er ekki hægt að slökkva á þulinum, gott upphlaup hjá boro og þeir komir yfir, fengu reyndar að skalla á milli inní markteig en ágætt engu að síður hjá þeim

15.26 Voronin fékk dæmdan á sig auka og meiddi sig við það, það er alltaf hálf aulalegt

15.27 Það er ósköp þægilegt að slökkva á hljóðinu

15.29 Finnan með svona la la skot eftir að aukinn var tekinn stutt, Huth sparkaði aftan í torres áðan en nendo sakaði ekki, mér leiðist annars þegar varnarmenn fá að renna sér aftan í menn án þess að fá spjöld, leiðist reyndar yfir höfuð þegar þegar þeir renna sér aftan í menn en einhvern veginn ákveðið réttlæti í því þegar þeir fá spjöld fyrir það

15.36 Smá tafir, þurfti að bregða mér frá örstutt

15.37 Línuvörðurinn dottinn á hausinn, hann virðist þó hafa sloppið að mestu ómeiddur

15.39 Liver hefur getað akkúrat ekki neitt í fyrri, líkurnar á skiptingu á hálfleik eru samt engar, nema reyndar ef boro skorar aftur fljótlega, litla rlíkur á því samt, þeir geta ekki mikið, Riise með skot rétt framhjá teignum, það er þá bara rúma 17 metra framhjá markinu

15.41 Nenni eiginlega ekki að horfa á þennan leik, það er afar sjaldgæft með liver leiki en þessi er hrein hörmung, voronin að reyna trix sem hann réði ekki við, veit að það þrengir trixahringinn ekki mikið enda sér maður sjaldan trix sem hann ræður við en þetta trix var sem sagt innanfótarmóttaka sem skoppaði einhvern veginn aftur fyrir hann

15.45 Þá er búið að flauta til hálfleiks, það eina jákvæða sem hægt er að segja um þennan hálfleik er að ég þurfti bara að hlusta á þorstein í sirka korter, síðan þá hefur verið þægileg þögn hér.

15.48 Veit ekki alveg hvað ég nenni að horfa á þetta mikið lengur þannig að ég hendi kannski einhverju inn ef eitthvað merkilegt gerist en annars læt ég þetta gott heita í dag

**uppfært kl 22.43

endaði sem sagt 1-1 eftir að Torres skoraði með skoti fyrir utan teig, held að honum hafi leiðst svo meðspilararnir að hann gat alveg eins farið að skjóta fyrir utan. Í fyrsta skipti þá kom einhver inná í hálfleik, babel fyrir arbeloa, skánaði eitthvað við það en liver voru arfaslakir í þessum leik. það er þá bara uppávið hér eftir


Annað ljóð

sem mér finnst gott. Er líka að finna á poemhunter

Fire and Ice
 
 Some say the world will end in fire,
Some say in ice.
From what I've tasted of desire
I hold with those who favor fire.
But if it had to perish twice,
I think I know enough of hate
To say that for destruction ice
Is also great
And would suffice.

Robert Frost


Tölvunámskeið fyrir konur

Þetta er eiginlega of fyndið. Jebbs, það er 2008

Líf vinkona mín úr kennó er ekki hrifin af þessu, skiljanlega en ég hló upphátt að þessu


Og þá voru þrír

tímar þangað til að ég fer í vinnu. Er allavega búinn með fyrstu seríuna af so you think you can dance. Alveg ágætt. Veit ekki alveg hvernig það verður að horfa á næstu tvær en við sjáum til, get þá allavega hent inn einum og einum þætti af the wire með einhverju millibili. Einn galli við þessa þætti er samt að maður þarf að horfa á þá, þ.e. með idol er einfalt að vera á netinu, horfa með öðru og hlusta. Erfiðara með þetta.

anywho.... minime verður hjá mér um helgina, grunar einhvern veginn að það verði fótbolti, æfingarnar byrjaðar aftur og slatti af leikjum um helgina sem eðlilega þarf að horfa á. ég veit ekki hvort ég er orðinn áttræður eða er bakari, allavega er ég farinn að sofna fyrir 9 og vakna fyrir 5, reyndar ekki alvitlaust það er einhver ró yfir öllu á þessum tíma sólarhringsins.

Spes tími ársins annars, svona ekki ósvipað september, samfélagið að fara í gang aftur, hlutabréf að lækka, skólar að byrja og svoleiðis. Skemmtilegt vor framundan, Eva og co að koma í næstu viku, er að spá í Sverige í sumar, að því gefnu að ég flytji ekki til Hveragerðis, sjáum hvernig það fer

það gæti farið endanlega með reppið en kveð að sinni dúddanum sem vann season 1


Ljóð og svoleiðis

útdráttur úr færslunni sem mig langaði að skrifa væri einhvern veginn á þessa leið "árans ólán" sem á ensku er cirka svona "crap,shit,fuck,bollocks,dammit,dammit,dammit"Smile ........... en c´est la vie

Skrifa frekar........

Fann þetta á http://www.poemhunter.com/ eða réttara sagt var Jón Bjarni með endann á þessu í nikkinu sínu einu sinni og benti mér á. Gott stöff

A Dream Within A Dream
 
 
 Take this kiss upon the brow!
And, in parting from you now,
Thus much let me avow-
You are not wrong, who deem
That my days have been a dream;
Yet if hope has flown away
In a night, or in a day,
In a vision, or in none,
Is it therefore the less gone?
All that we see or seem
Is but a dream within a dream.

I stand amid the roar
Of a surf-tormented shore,
And I hold within my hand
Grains of the golden sand-
How few! yet how they creep
Through my fingers to the deep,
While I weep- while I weep!
O God! can I not grasp
Them with a tighter clasp?
O God! can I not save
One from the pitiless wave?
Is all that we see or seem
But a dream within a dream?

Edgar Allan Poe


og þá

tókst mér að vera vaknaður, klukkan er sem sagt að verða hálf þrjú. skondið eiginlega, ég sofnaði yfir tv um sex í gær og fyrir utan eitt símtal sem ég hálfvaknaði við um kl 10 þá er ég eiginlega búinn að sofa 8 tíma.

eðli málsins samkvmt er ekki sérstaklega mikið að gera á þessum tíma og ég er farinn að horfa aftir á so you think you can dance. rétt áðan var einhver súrealískasta sena sem ég hef séð í tv, einn dúddinn var að dansa við eitthvað rólegt lag og það varð einhvers konar hópgrenj, ég ætlaði að hringja í maju og spyrja hvort hún væri alveg að missa það að segja mér frá þessum þáttum en þá var einn hundskammaður og fljótlega var farið að reka fólk heim, slapp fyrir horn, schadenfreude


Skemmtilega rólegt

um helgina. Fór á Ítalíu í gær, afbragðs matur og enn betri félagsskapur. Er núna í Jórsölum að gera ekkert, ég er reyndar ágætur í því að gera ekkert.

Ef niðurhal væri löglegt væri ég nýlega byrjaður á nýrri þáttaröð sem ég er búinn að vera að geyma aðeins. Þættirnir heita The Wire og eru lögguþættir frá Baltimore, dáldið spes þættir en alveg ágætir. Þetta verkfall handritshöfunda í Bandaríkjunum er að verða frekar þreytandi, þessir 12-13 þættir sem ég fylgist með reglulega eru í fríi núna og það eru ansi margir klukkutímar sem þarf að gera eitthvað annað við, ætli ég endi ekki á því að lesa í staðinn, meh...

Ábendingar um þætti eru vel þegnar, ef svo ólíklega vill til að ég eigi einhverja þætti eftir þá er þetta fínn tími til að uppgötva nýja. Idol byrjar annars eftir rúma viku, það er eins gott að það tefjist ekki.


Ástþór kallinn

ætlar víst að bjóða sig fram til forseta eina ferðina enn. Þetta væri allt saman voða sniðugt ef það kostaði ekki helling fyrir okkur að halda svona kosningar. Það eru engin lög sem banna fólki að bjóða sig oft fram, held að almennt sé bara gert ráð fyrir því að ef þú býður þig tvisvar fram og færð lítið sem ekkert fylgi þá sé þetta orðið gott.

Mikið vildi ég að Ástþór léti þetta gott heita, hann gæti meira að segja sagst ætla að draga sig út úr þessu og skorað á ríkið að gefa kosningaupphæðina til góðgerðarmála, það væri allavega gæfulegri leið til að eyða peningunum. Nú ef það berast hins vegar framboð frá fleirum en Ólafi Ragnari þá er mér svo sem slétt sama þó Ástþór sé þriðji eða fjórði maður í framboði, alltaf gaman að sjá risaaugun, hann minnir mig alltaf dáldið á einn af hundunum í sögunni um eldfærin.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband